Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1912, Síða 67

Eimreiðin - 01.01.1912, Síða 67
67 milli i. og 2. útg. hafa þannig liðið 18 ár, á milli 2. og 3. 17 ár, en milli 3. og 4. ekki nema 4 ár. En vera má, að 3. útg. hafi lítt eða ekki selst á íslandi, enda munu margir þar hafa saknað margra kvæða, er menn vildu ekki án vera. f’ví í þessari útgáfu var aðeins úrval, og úr feld flest gáska- og gleðskaparkvæði, svo að bókin varð enn ömur- legri en vera bar, og sýndi ekki nema aðra hliðina á skáldinu. í þess- ari (4.) útg. eru aftur (eins og í 2. útg.) nærfelt öll hin sömu kvæði og í 1. útg., og þó við aukið tveimur nýjum; hefir annað þeirra (»Yið stekkinn«) ekki fyr verið prentað, en hitt (»Herðubreið«) er. og í ame- rísku útgáfunni; þar er og annað nýtt kvæði (»Kveldljóð«), sem vel hefði rnátt taka með í þessari útg. En annars hefði ýmislegt, sem hér er prentað, vel mátt missa sig, því sumt af því hefir nauðalítið skáld- kgt gildi. Á þetta einkum við ýmislegt í fyrri kaflanum (»Ljóð vinnu- mannsins«) og þá ekki sízt við eftirmælin í honum. Þau hefðu öll átt að falla burtu. Nóg að hafa þau í fyrstu útgáfunni. Alt öðru máli að gegna um eftirmælin í síðari kaflanum; þau hafa svo mikið skáldlegt gildi, að sjálfsagt var að endurprenta þau. Niðurskipun er miklu betri í þessari útg. en áður hefir verið, en þó þýðingum enn stráð innanum frumkveðnu kvæðin, í stað þess að skipa þau í sérstakan flokk. Aftan við bókina er tvöfalt registur, annað yfir upphöf kvæðanna, en hitt yfir fyrirsagnir þeirra — og mátti hvorugt vanta. Inngangurinn (um Kr. J.) hefir og verið endursaminn, og hefir tekið bótum frá því í 1. útg. En prófarkalesturinn hefir ekki tekist sem skyldi, svo áð talsvert er þar af prentvillum og stafvillum, t. d.: geðjsat (f. geðjast) bls. XIV; haonunr (f. honum) XXI; skunaði (f. skundaði) 90; dauðhljóm (f. dauðahljóm) 92; nó (f. nú) 110; þjó (f. þjór) 162; ginnmáttags (f. ginnmáttugs) 173; likur (f. lýkur) 200; systkyn (f. systkin) 212; vekji (f. veki) 229; mjallhvíta (f. mjallahvíta) 229; dagstjarn (f. dagstjarna) 240; falin (f. falinn) 242; bylt (f. bilt) 248; optavius (f. optativus) 270; gengú (f. gengnu) 271; örsla (f. özla) 319) sveipuð (f. svipuð) 341; baugskorið (f. baugskorð) 384. Að öðru leyti er hinn ytri búningur bókarinnar hinn prýðilegasti, og hefir kostnaðarmaðurinn (Jóh. Jóhannesson) auð- sjáanlega ekkert viljað til spara, til þess að umgjörðin gæti orðið sem smekklegust. Um vinsældir Kristjáns kvæða og skáldlegt gildi er nóg að vísa til ummæla vorra um 3. útg. í Eimr. XIV, 152—3 V. G. JÓN TRAUSTI: HEIÐARBÝLIÐ IV. Porradœgur. Rvík 1911. það er víst óhætt um það, að margur hefir með óþreyju beðið eftir síðasta þættinum af »Heiðarbýlinu«. Og nú er hann kominn, og sómir sér ekki síður en hinir fyrri. Þó að meginefnið sé nú ekki ann- að en að lýsa vesaldarlífinu í Heiðarhvammi, dauða Ólafs, og svo drykkjuslarki Þorsteins grenjaskyttu, þá eru bæði lýsingarnar svo góðar og inn í frásögnina ofnar svo margvíslegar þjóðlífsmyndir, að sagan verður furðu fjölbreytt. Og myndir þær, sem upp er brugðið, eru svo vel málaðar, að skáldsnildin leynir sér ekki Vér skulum taka t. d. lýs- inguna á börnum Höllu í einverunni yfir líki föður síns, meðan móðir þeirra brýzt gegnum fannkyngina til bæja, til að leita sér hjálpar. Slíka lýsingu semur enginn liðléttingur. Að Jón Trausti sé að verða eða rétt- 5*

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.