Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1984, Síða 1
38.000 EINTÖK PRENTUÐ í DAG.
ITSTJÓRN SÍMI
AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA SÍMI 27022
DAGBLAÐIЗVÍSIR
14. TBL. — 74. og 10. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1984.
Ibúar við Þingvallastrætineita að opna fyrir fógeta:
REYNT AÐ KOMAST
INN UM GLUGGA
Sáttatilraunir fram á síðustu stundu
Lögreglan á Akureyri beið fyrir há-
degi eftir skipun frá fógeta um að hefj-
ast handa við að bera út Olaf Ra&i
Jónsson, konu hans, Danielle Somers,
börn þeirra og innbú úr íbúð þeirra við
Þingvallastræti. Til taks var flutninga-
bíll.
1 ibúðinni beið f jölskyldan. Þar inni
var einnig Friðrik Magnússon hæsta-
réttarlögmaður og kona hans. Þau
höfðu boðið Olafi Rafni aðstoð sina.
Á göngum fógetaskrifstofunnar beið
fjöldi fréttamanna niðurstöðu síðustu
sáttatilraunar í málinu. Inni hjá fógeta
voru fulltrúar beggja málsaðila. Þegar
þetta er skrifað, klukkan ellefu í morg-
un, er óvíst hverjar lyktir verða.
Fulltrúi fógeta, Sigurður Eiríksson,
sagði í gær að fimm til sex lögreglu-
menn, aö minnsta kosti, færu í útburð-
inn, efafyrði.
Seint í gærkvöldi kom Skúli Ágústs-
son, einn af eigendum Bilaleigu Akur-
eyrar, óvænt inn í málið sem sátta-
semjari. Hann bauðst til þess að kaupa
eignarhlut Grímu Guðmundsdóttur í
húseigninni við Þingvallastræti í von
um að hindra með því útburð.
-KMU/JBH, Akureyri.
SÍÐUSTU FRÉTTIR:
Fulltrúi fógeta á Akureyri mætti
ásamt lögregluliði að húsinu Þing-
vallastræti 22 klukkan ellefu í
morgun. Olafur Rafn Jónsson var
beðinn um að opna húsið en hann
neitaði. Sagði hann fógetafulltrúa
að hypja sig á brott ásamt lög-
reglunni. Nýjustu fréttir voru þær
að lögreglan ætlaði að reyna að
komast inn í húsið um glugga.
Fjöldi áhorfenda var fyrir utan
húsið til að fylgjast með framvindu
mála. I ibúð hjónanna var einnig
hópur fólks.
Luma
Sovétmenn
á risaeld-
flaug sem
gæti
komið þeim
til Mars?
— sjá erlendar
fréttir bls. 8.
I ■
Simamynd kl. 11.0
í morgun:
Fógeti og lögregla ó tröppum Þingvallastrsetis 22 um klukkan 11 f morgun.
Vil þeim ekki illt
— segir Gríma Guðmundsdóttir
„Það getur enginn trúað því hvemig
það hefur verið að búa þama nema
reyna það,” sagði Gríma Guðmunds-
dóttir, 74 ára gömul kona, sem undan-
farin sjö ár hefur haft hjónin Olaf Rafn
Jónsson og Danielle Somers sem ná-
granna.
Hæstiréttur telur að þau hjónin hafi
„gerst sek um stórkostleg og ítrekuð
brot á skyldum sínum” gagnvart
Grímu Guðmundsdóttur. Samkvæmt
því gerði Hæstiréttur hjónunum
skylt að flytjast úr íbúð sinni að Þing-
vallastræti 22 á Akureyri.
„Þetta er einkennilegt fólk. En ég
hef aldrei gert þeim nokkuð. Eg bara
vona að þau sjái að sér. Eg vona að þau
fari í friði. Eg vil þeim ekki illt.
Ég hef búið í þessu húsi í 35 ár.
Þarna hefur verið búið í þremur
íbúðum frá árinu 1950 i miklum friði og
ró. Aldrei féll styggðaryrði á milli
fólks. En 1975 byrjar skálmöld,” sagði
Gríma Guðmundsdóttir.
Hún dvelst um þessar mundir í
Reykjavík. Þar er hún undir læknis-
hendi.
„Ákærur á hendur okkur og
fullyrðingar um að við höfum unnið
skemmdarverk þykja allar
fullsannaðar og því erum við úrskurð-
uö óbótafólk,” sögðu Olafur Rafn Jóns-
son og Danielle Somers er DV heim-
sótti þau í gærkvöldi. „Það sem vakti
fyrir okkur var að nota rétt okkar sem
eigenda að húseign til að endurbæta
hana svo hún komist í það ástand sem
byggingarsamþykkt gerir róð fyrir,”
sagðiOlafur Rafn.
KMU/EIU/JBH
Grfma Guðmundsdóttir. Hún hefur
búið að Þingvallastræti 22 ó Akur-
eyri f 35 ár. Fyrir sjö árum fákk hún
nýja nágranna. DV-mynd S.
vistmanna
SÁÁ
kemur oft
til meðferðar
—sjá bls. 2.
■■■ | ■ ■■■
Eimskip sjo-
tíuára
— sjá bls. 18—19.
Héh að mitt
síðasta væri
komið
— sjá bls. 3.
Lítið finnst
af loðnu
— sjá bls. 2.
„Peninga-
maðurinn"
í Karlsefnis-
málinu segir
það alls
ekki upplýst
Sjá bls. 4.