Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1984, Side 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR17. JANUAR1984.
3
Steingrímur Hermannsson um
afkomutryggingu:
Lýst vel á
hugmyndina
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráöherra var inntur eftir áliti
sínu á hugmyndum Aðalheiðar
Bjamfreðsdóttur og Bjama Jakobs-
sonar verkalýösleiðtoga um lausn
kjaramála hinna lægst launuðu sem
kom fram í viðtali í Morgunblaðinu á
sunnudag.
Sagði Steingrímur Hermannsson
að honum litist vel á þessar hug-
myndir. Hann væri fullkomlega sam-
mála því sjónarmiði aö það væri
engin lausn á kjaramálum aö pró-
sentuhækkanir yrðu upp eftir öllum
launastiganum.
„Ríkisstjómin hefur lýst yfir
stuðningi sínum við aöila vinnu-
markaðarins að þeir noti það svig-
rúm sem þeir hafi til að bæta kjör
hinna lægst launuðu en viö viljum að
aðilar vinnumarkaðarins hafi
forystu um lausn þessara mála,”
sagði forsætisráðherra. „En varð-
andi þessar hugmyndir sem þarna
birtust finnst mér að tekjutrygging
kæmi t.d. alveg til greina. Hins
vegar vil ég ekki tjá mig frekar um
það mál. Við bíðum átekta og vonum
að aöilar vinnumarkaðarins geti
fundið leiðir til lausnar,” sagði Stein-
grímur Hermannsson.
Hugmynd Aðalheiðar Bjamfreðs-
dóttur og Bjarna Jakobssonar er
m.a. aö málið veröi leyst í gegnum
tryggingakerfið með milligöngu
verkalýösfélaganna. Hugmyndin er
að teknar verði upp nýjar bætur sem
kallist afkomutrygging og greiði sú
trygging mismuninn milli lágra
launa þannig að lágmarkslaun í
landinu verði í raun 15 þúsund
krónur. Segjast verkalýðsleiðtog-
amir alveg hafa misst trú á að fólki
verði hjálpað í gegnum kjarasamn-
inga því ef lágmarkslaun yrðu
hækkuð upp í samningum fengju
hinir betur settu samsvarandi pró-
sentuhækkanir.
Peningana fyrir afkomutrygg-
ingunni segja þau Aðalheiður og
Bjami að finna megi í trygginga-
kerfinu og jafnvel að ákveðinn hluti
söluskatts verði notaður í slíka fjár-
mögnun.
-H.Þ.
„Hélt að mitt
seinasta
væri komið”
— segir Sonja Sigurjónsdóttir, sem
lenti í umferðaróhappi í Flórída
Getum ekki passað
að allir geri rétt
—segir sjávarútvegsráðherra um 11 ný rækjuvinnsluleyf i
og 11 stækkunarleyfi
„Þrátt fyrir að við heimilum mönn-
um að byggja rækjuvinnslustöövar, en
lögum skv. á sjávarútvegsráöuneytiö
að sjá um þær leyfisveitingar, getum
við ekki borið ábyrgð á að leyfishafar
fjárfesti rétt, við getum ekki passaö
upp á slíkt. Það er alltaf hætta á að ein-
hvers staðar sé fjárfest skakkt en í
þessu tilviki vitum við ekki hversu
rækjuveiðarnar geta orðið miklar
nema hvaö fiskifræðingar telja aö
óhætt sé að veiða meira en við höfum
gert hingað til,” sagði Halldór
Asgrímsson sjávarútvegsráðherra í
viðtali við DV er hann var spurður
hvort ekki væri hæpið að gefa út ný
rækjuvinnsluleyfi þegar núverandi
verksmiðjur hefðu næga afkastagetu
miðað við núverandi veiðar.
Halldór sagöi aö flestir leyfishafar
störfuðu í útgerð eða í nánum tengslum
viö útgerðir og ætluðu allir aö senda
eigin skip til rækjuveiða. Þá tók hann
fram að þótt þessi leyfi haf i verið veitt
þýddi það alls ekki að allir rykju til og
hæfu framkvæmdir án þess að sjá fyrir
um hráefnisöflun.
Ellefu aðilar fengu leyfi til nýbygg-
inga rækjuverksmiðja: Páll Axelsson í
Keflavík, Ingimundur hf. í Reykjavík,
Stakkholt í Olafsvík, tslensk matvæli í
Hafnarfiröi, Dögun hf. á Sauðárkróki,
Isstöðin hf. í Garði, Sæblik á Kópa-
skeri, Pólarsíld á Fáskrúðsfirði, Hrað-
frystihúsið á Breiðdalsvík, Búlands-
tindur á Djúpavogi og Kask í Horna-
firði. Söltunarfélagið á Dalvík fékk sitt
leyfi endumýjað og nokkrir aðilar á
Arskógsströnd hafa fengið vilyröi fyrir
leyfi. 11 af 12 rækjuverksmiðjum, sem
fyrir eru, fengu stækkunarheimild, 21
umsókn er óafgreidd og 12 umsóknum
varsynjað.
-GS.
„ Skjátfandi af kulda i gaddfreðnum fötunum tókst okkur að prila upp i fiutningabiiinn," segir Sonja Sig-
urjónsdóttir.
O V-m ynd Heiðar Baidursson.
„Þegar bíllinn steyptist ofan í ána,
eftir aö ég hafði misst stjórn á honum
vegna ísingarinnar á brúnni, hélt ég aö
mitt seinasta væri komið,” sagði Sonja
Sigurjónsdóttir, búsett í Njarðvík,
þegar DV ræddi við hana fyrir
skömmu,” ég var á leið frá Flórída til
Marion í Alabama ásamt mágkonu
minni þegar óhappið skeði. Við áttum
nokkrar milur ófarnar til Mongomery
þegar við komum að brúnni. Þrátt
fyrir frost var engin ísing á þjóðveg-
inum en ég sá um seinan að brúin var
flughál og því fór sem fór. ”
Þrátt fyrir svartamyrkur, klukkan
þrjú um nóttina, tókst þeim stöllunum
aö komast út úr bifreiðinni og svamla
upp á árbakkann i jökulköldu vatninu.
„Ég grillti í skóna mína og veskin
okkar sem flutu á vatninu á meðan var
að renna inn í bílinn og kom því undir
handarkrikana. Aðeins toppurinn á
bilnum stóð upp úr vatninu þegar við
yfirgáfum hann,” sagði Sonja,” en við
fórum út um dymar þegar vatnið var
komið upp fyrir mið sæti. ”
„Annaðhvort frjósum við héma í hel
eða einhver ekur á okkur,” sagðist
Sonja hafa sagt við mágkonu sína,
þegar hver bifreiðin af annarri ók hjá
án þess að stansa, hvernig sem þær
bentu og veifuðu. Að lokum bar að 18
hjóla vöruflutningabíl, — reyndar sá
fyrsti sem þær veifuðu, — hann þorði
Urvaf
TÍMARIT
FYRIR ALLA
ekki að stansa þá af ótta viö að valda
hættu við brúna en sneri við og lagði
bílnum álengdar. >ySkjálfandi af kulda
í gaddfreðnum fötum tókst okkur að
príla upp í þennan háa bíl með erfiðis-
munum. Litlu betra var að klifra niður
á áningarstaö langferðabílstjóra sem
varskammtfrá.”
Þaðan náðu þær sambandi við
venslafólk sitt í Bandaríkjunum og
gátu aðeins yljað sér við eina ofninn
sem var í byggingunni og þurrkað skó
og sokka. „Við vorum á bílaleigubíl og
af hennar hálfu vorum viö sóttar á
áningarstaöinn og ekið til Mongomery,
þar sem við fengum annan bíl til að
geta haldið áfram ferð okkar, en satt
best að segja var ég lafhrædd við
aksturinn eftir það sem á undan var
gengið. Víða voru bílar utan vegar og á
einni brú hafði stór vörubifreið
næstum hnoðað saman fólksbíl. Þeim
vegi var skömmu síðar lokað vegna
hálku. Sjónvarpið birti myndir af
ýmsum umferðaróhöppum, þar á
meðalsást bíllinn sem ég ók í ánni.”
Sonja tjáði okkur aö kuldi hefði verið
mikill í Bandaríkjunum um áramótin,
ekki síst á Flórída. Eitt sinn ætlaöi hún
aö kaupa gosdrykk úr vél inni í
veitingahúsi, en það var ekki hægt —
hann var gaddfreðinn. -emm.
AFSLÁTTUR
NISSEN trévörumj
KLINIGÚND
HAFNARSTRÆTI tl • RVIK ■ S13469