Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1984, Page 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR17. JANUAR1984.
7
Neytendur Neytendur
Bamaöryggisstólar:
Lánaðir heim
f rá fæðingar-
deildinni
Á einum spítala í New York fylki
hefur veriö tekin upp sú nýbreytni aö
mæður sem fara þaöan með nýfædd
böm sín geta fengið lánaöa öryggis-
barnastóla til að hafa í bílum. Þessir
stólar eru ætlaðir ungbömum fram að
þriggja mánaöa aldri eða þar til þau
hafa náö um 10 kílóa þyngd. Viö lántök-
una greiðir móöirin ákveðna
tryggingarupphæð (30$) og fær síðan
þessa upphæð endurgreidda þegar
stólnum er skilað svo framarlega sem
ástand hans er eins og við lántökuna.
I New York fylki er í lögum frá 1982
að allir undir 4 ára aldri verða aö sitja í
viðurkenndum barnastólum þegar þeir
feröast í bíl.
Það er ekki gott að segja hvort þessi
hugmynd, að fæðingardeildir láni bíl-
stóla til barna, á viö hér á landi. En
þaö er þó ekki fráleitt að hugsa sér að
komið yrði á einhvers konar skipta-
verslun með þessa hluti. Yfirleitt eru
þetta dýrir hlutir sem notaðir em í
tiltölulega stuttan tíma. Stólamir yrðu
með þessu móti betur nýttir og gætu
komið mörgum börnum aö notum í
stað kannski bara eins eöa tveggja
bama.
-APH
\ LEYSTU MÁLIÐ
Vantar þig hugmynd að
kjörgrip sem kemur
á óvart og
stendur sem
minnisvarði um
ókomin ár.
Hafðu samband við okkur í síma 85411
• Glit, Steinblóm
• Glit, Listasmiðja
• Glit, Minjagripir
Hreint skila-
verð á ísuð-
um fiski
Við höfðum heyrt að hreint skilaverð
til fiskseljenda fyrir „gámafiskinn”
væri ákaflega misjafnt og sumir hafa
efast um að þessi útflutningur borgaði
sig alltaf. Við höfðum því samband við
Jón Asbjömsson en á vegumheild-
verslunar hans hefur mikið magn af ís-
fiski verið selt.
„Hreint skilaverð á ísuðum fiski
hefur verið frá tíu krónum og allt upp í
þrjátíu og átta krónur fyrir kílóið,”
svaraði Jón Ásbjörnsson.
Hann sagði einnig að draga mætti 8—
10 krónur frá söluveröi fisksins fyrir
hvert selt kíló. Söluverð hefur verið frá
18—47 krónur á hvert kíló.
„Tíminn frá því fyrst í nóvember og
fram í febrúar er besti markaðstíminn
erlendis og hæsta verðið. Fyrst
þetta tækifæri býðst til að fá gott verö
fyrir fiskinn þá er þetta mikil
gjaldeyrisöflun í þjóöarbúið.”
En Jón taldi aftur á móti aö banna
mætti þennan útflutnmg á fiski á tíma-
bilinu frá maí og fram í nóvem-
berbyrjun. Þá væri aflinn lélegri og
um leiö markaöshorfur.
En bætti við að þetta ætti ekki viö um
allar fisktegundir, til dæmis skarkola,
hann væri hægt að flytja út á þessu
timabili.
-ÞG
. . . sagði Bárður fisksali að hann hefði aldrei haft önnur eins ósköp af
fiski og þessa dagana. Hér er hann i miðri torfunni.
AUKABLAÐ
UM
SKÍÐAFERÐIR
OG
VETRARFERÐIR
innanlands og utan
kemur út
laugardaginn
4. febrúar nk.
AUGLÝSENDUR!
Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa vörur sínar og þjónustu í þessu
aukablaði vinsamlegast hafi samband við auglýsingadeild DV, Siðu-
múla 33, sími 27022, virka daga kl. 9-17, sem fyrst, eða í síðasta lagi
fimmtudaginn 26. janúar.
Auglýsingadeild,
Síðumúla 33,
sími 27022.