Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1984, Page 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR17. JANUAR1984.
Utlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Luma Sovétmenn
á risaeldflaug
sem komið gæti
þeim til Mars?
Bandaríska geimskutlan mun hafa
tekiö mynd af háleynilegri sovéskri
eldflaug, sem talin er nógu öflug til
þess að flytja menn til Mars, eftir því
sem breska sjónvarpið segir.
ITN-sjónvarpið sagði í gærkvöldi að
þessi 88 metra langa eldflaug væri sú
stórbrotnasta og öflugasta sem menn
heföu hingaö til smíðað. — Hún á aö
hafa sést á skotpalli i Tyuratam í
Kazakhstan.
Sagði í fréttum sjónvarpsins í gær-
kvöldi aö John Young geimfari hefði
tekið mynd af flauginni á 59. hringferö
skutlunnar umhverfis jörðu í
desember. Þegar tölvur höfðu stækkað
myndina kom í ljós öflugasta eldflaug
sem sést hefur. — Er sagt að eld-
flaugin hafi til þessa verið undir
feluneti til þess að dylja hana fyrir
njósnaaugum gervihnatta.
Segir að flauigin sé ekki alveg eins
stór og Satúrnus 5-flaugin, sem flutti
bandaríska geimfara til tunglsins, en
kröftugri, enda gæti hún borið 180 smá-
lestir.
Haft er eftir bandarísku geim-
ferðastofnuninni að eldflaugin —
manna á milli kölluö ,,G-farartækið”
— kunni að verða notuð til þess að
flytja 12 manna geimstöð út í geiminn
eða menn til Mars. — Sagt er aö drög
að smíði þessarar flaugar hafi verið
lögð fyrir 20 árum en hin mesta leynd
ríktumhana.
Breska sjónvarpiö segir að ýmis
óhöpp hafi orðið til að seinka smíði
flaugarinnar. Ariö 1969 hafi hún
sprungið þegar sett var á hana elds-
neyti og 1971 hafi hún komist í 12 kíló-
metra hæð en þá hrist í sundur.
Upphaflega hafi eldflauginni verið
ætlað að sigra í kapphlaupinu við
Bandaríkjamenn til tunglsins.
HershöfðingjadeilaníV-Þýskalandi:
Var tvffaranum
teflt fram til
að rugla málið?
Glistrup hefur kært yfirvaldið fyrir landráð.
Glistrup laus í bili
Mogens Glistrup var í gær látinn
laus úr fangelsinu og hélt nánast beint
þaöan á þingflokksfund hjá Framfara-
flokknum í Kristjánsborgarhöll.
Glistrup hefur formlega kært
fangelsisstjórnina og dómsmála-
McCartney og Linda lumuðu á
maríjúana, sem fannst hjá þeim.
Paulbítilltekinn
meö maríjúana
Bitillinn Paul McCartney og kona
hans Linda voru sektuö um 100 doil-
ara á Barbadoseyjum fyrir aö
hafa haft maríjúana í fórum
sínum. — Bítlahjónin eru ásamt
börnum þeirra, James og Stellu, í
orlofi á vesturhluta Barbadoseyja.
— Lögreglan gerði húsieit í fyrra-
dag á heimilinu þar sem þau dvelja
og fann þar lítilræði af maríjúana
sem hald var lagt á en Paul og
Linda gengust strax við því að eiga
þaö.
ráðherrann fyrir landráð, þar sem þeir
hafi haldið kjörnum þingfulltrúa í
fangelsi sem sé bannaö samkvæmt
stjórnarskránni.
Danska þingið kemur saman 25.
janúar og er búist við því að eitt fyrsta
verk þess verði að svipta Glistrup
þingheigi svo að hann verði að halda,
áfram að afpiána fangelsisdóminn
sem hann fékk fyrir skattsvik.
Deilan um afsögn Giinter Kiesslmg
hershöfðingja hjá NATO er nú komin í
nýja flækju eftir getgátur um að teflt
hafi verið fram tvífara hers-
höföingjans til þess aö rugla þýsku
leyniþjónustuna í ríminu.
Varnarmálaráðuneyti V-Þýska-
lands neitar því alfariö að hugsanlega .
hafi verið farið mannavillt á hers-
höfðingjanum og dáta einum nauöa-
líkum honum, sem fannst fyrir
nokkrum dögum og hefur verið í yfir-
heyrslu. Segist ráðuneytiö hafa
sannanir fyrir því aö hershöföinginn
hafi verið tíöur gestur á kynvillinga-
krám í Köin.
Kiessling hershöfðingja var fyrir-
varalaust vikið á eftirlaun, þar sem
hugsanlegt þótti að öryggi NATO væri
hætt meðan næstæðstráðandi herafla
NATO hefði eitthvað það að dylja sem
óprúttnir aðilar gætu notað til þess að
kúga út úr honum leyndarmál.
Hershöföinginn hefur þvertekið
fyrir það aö eiga nokkur tengsl eða
mök við kynvillinga og undirbýr núna
að höfða meiðyrðamál gegn varnar-
málaráðherranum.
Wömer varnarmálaráöherra segir
að lögreglan hafi nú greitt úr tvífara-
flækjunni og hrundið þeirri kenningu
aö villst hafi verið á mönnum. Lét
ráðherrann svo ummælt að einhver
hefði teflt fram dátanum eftir á en að
hann eftirléti það lögreglunni aö finna
út hver þaö hefði gert og í hvaða
tilgangi. Hann sagði að hershöfðinginn
lægi ekki undir neinni ákæru um laga-
brot né vofði yfir honum nein tyftun.
Ráðherrann sagðist ekki eiga
neinna annarra kosta völ en vík ja hers-
höfðingjanum frá af öryggisástæðum
og mundi gera eins í dag og fyrir ein-
um mánuði.
MESTIUSTAVERKAÞJÓFN-
AÐUR SÖGUNNAR UPPLÝSTUR
Ungversk yfirvöld tilkynna aö fund-
ist hafi aftur ómetanlegt listaverk eftir
meistarann Rafael en því var stolið í
Búdapest í nóvember í vetur. Tveir
Ungverjar munu hafa játaö hlutdeildí
þjófnaöinum.
Yfirvöld gruna auðugan grískan
iðjuhöld um að vera heilinn á bak við
þjófnað á sjö málverkum sem hurfu úr
listasafninu í Búdapest í nóvember.
Samvinna er hafin við grísku lögregl-
una um aö ná aftur hinum málverkun-
um sex sem talið er að hafi verið flutt
til Grikklands. — Þar á meöal er
„Esterhazy-madonnan” eftir Rafael.
Hin Rafael-myndin er „Portrett af
ungum manni”, en hún fannst grafin í
jörð og þó óskemmd í úthverfi Búda-
pest fyrir tilvísun Ungverjanna
tveggja.
I Róm hafa þrír Italir verið hand-
teknir grunaðir um hlutdeild í lista-
verkaþjófnaðinum eftir ábendingu
Interpol.
Þetta er talinn mesti listaverka-
þjófnaður sögunnar.
„Portrett af ungum m£umi” mun
hafa verið skilið eftir í Ungverjalandi
til tryggingar greiðslum á hlut Ung-
verjanna tveggja í þýfinu.
Mannæturnar reyndu að flýja fangelsið
Þrír félagar í bófaflokki, sem
sakaður var um mannát, voru skotnir
þegar þeir reyndu að strjúka úr fang-
elsi á Filippseyjum um helgina.
Vopnaðir ísöxum höfðu þeir ráöist á
fangaverði, yfirbugað þá og reynt aö
komast út um fangelsishliðið þegar
það var opnað á heimsóknartíma.
Allir voru þeir úr „skólausa
genginu” svokallaða, sem lögreglan
smalaði saman í fyrra, en sá bófa-
flokkur hafði að minnsta kosti 20
mannslíf á samviskunni og hafði ráðiö
lögum og lofum í fjalllendinu í Cebu-
héraði.
Nokkur fórnardýr bófanna höfðu
verið hálshöggvin og fláð af þeim
skinnið og virtist sem í einhverjum
tilvikum heföu fómardýrin verið étin í
eins konar inntökuathöfn fyrir nýja
meðlimi í f lokkinn.
Foringi þessara bófa, Solomon
Languita, fyrirfór sér í fangaklefa sín-
um í síðasta mánuöi — að sögn lög-
reglunnar á Filippseyjum.