Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1984, Qupperneq 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR17. JANUAR1984.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Palme ræddi kafbáta-
málið Wð Gromyko
—sem lofarað Rússarskuli viróa sænska landhelgi
Olof Palme, forsætisráðherra Sví-
þjóöar, átti í gærkvöldi viðræður við
Andrei Gromyko, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, og tók af honum loforð
fyrir því að landhelgi Svíþjóðar mundi
virt.
Olof Palme sagði á blaðamanna-
fundi að Svíþjóð teldi mjög mikilvægt
Sovéskur kafbátur strandaður í
sænska skerjagarðinum, en Gromyko
vildi þó ekki kannast við það fyrir
Palme að Sovétmenn hefðu rofið
sænska landhelgi með kafbáta-
siglingum.
að hafa fengið þetta loforð hjá fulltrúa
æðstu leiötoga Kremlar.
Sagðist hann hafa fært kafbátamál-
ið í tal viö Gromyko og fengiö þetta
svar hjá utanríkisráðherranum:
„Sovétríkin virða hlutleysi Svíþjóðar
og munu ekki r júfa sænska landhelgi.”
I apríl síðasta vor mótmælti sænska
stjómin harðlega því sem hún kallaöi
kerfisbundin brot sovéska flotans á
landhelgi Svíþjóðar. Moskvustjómin
bar á móti öllum slíkum ásökunum.
Gromyko, sem kominn er til Sví-
þjóðar vegna Stokkhólmsráðstefnunn-
ar sem sett verður í dag, mun ekki
hafa viðurkennt í viötalinu við Palme
að Sovétmenn bæru ábyrgö á kafbát-
unum sem Svíar hafa orðið varir í
landhelgi sinni.
Framboðsefni demókrata
í kappræðu í sjónvarpi
Jesse Jackson hefur aukið fylgi sitt til jafns við John Glenn eftir förina til
Sýrlands, þar sem hann hitti Assad forseta, þegar þessi mynd var tekin.
I sjónvarpskappræðu milli átta
framboðsefna demókrataflokksins i
Bandaríkjunum fór Walter Mondale,
fyrrum varaf orseti, með sigur af hólmi
að mati meirihlutans í skoðanakönnun-
um sem ABC-sjónvarpið og Washing-
ton Post létu gera.
Af 507 sjónvarpsáhorfendum sem
spurðir voru voru 33% þeirrar skoðun-
ar að Mondale hef ði komið best fyrir en
13% töldu John Glenn bestan og 12%
voru á bandi Jesse Jackson, mannrétt-
indafrömuðar blökkumanna.
Enginn hinna fékk meira en 3%, en
af þeim sem spurðir voru gátu 25%
ekki gert upp hug sinn.
Framboðsefnin átta hafa hvert af
öðru skipst á árásum á stefnu Reagan-
stjórnarinnar í innanrikis- og utanrík-
ismálum en í sjónvarpseinvíginu sner-
ust þau hvert gegn ööru. Þeir Mondale
og Glenn skiptust á kersknisyrðum en
Jackson reyndi að ganga í milli.
Kappræða þessi var haldin í New
Hampshire, sex vikum áöur en for-
kosningarnar fara þar fram hjá
demókrötum.
Hennar hátign og Andrew prins
fengu hækkuð launin.
Hækka laun
bresku
konungsfjöl-
skyldunnar
Breska konungsfjölskyldan hefur
fengið 4% hækkun launa sinna sem
er ögn minna en nemur verðbólg-
unni, samkvæmt því sem Nigel Law-
son fjármálaráðherra skýröi breska
þinginu fráígær.
Embættismenn segja að þessi
hækkun á lífeyri konungsfjöl-
skyldmmar rétt hrökkvi til þess að
hún geti haldið heföbundinni reisn.
Minna hefði það ekki mátt vera öðru-
vísi en aö fjölskyldan hefði neyðst til
þess að minnka við sig.
Ríkisstjórnin gerir ráð fyrir 5
milljón sterlingspunda fjárveitingu
til konungsfjölskyldunnar árið 1984.
Fjárveitingin nam 4,8 milljónum á
síðasta ári.
Þetta fé gengur að mestu til
heimilishalds Elizabetar drottningar
sem fær þetta árið 3,85 milljónir
sterlingspunda, en það er 4,8%
hækkun. — Veröbólgan nemur 4,8%.
Aðrir í konungsfjölskyldunni fá
svipaðar hækkanir, nema Karl
Bretaprins og Díana prinsessa, en
ríkisarfinn hefur sjálfstæðar tekjur
af Comwall-hertogadæminu.
Walter Mondale, fyrrum varaforseti,
þótti spjara sig best í sjónvarps-
kappræðunni og er af flestum álitinn
líklegasti frambjóðandi demókrata í
næstu forsetakosningum.
Gairy
heim til
Grenada
Sir Eric Gairy, fyrrum forsætisráð-
herra Grenada, sem dvalið hefur í út-
legð í Bandarikjunum, ætlar að snúa
heim til eyjarinnar á laugardaginn
kemur, sem yrði þá í fyrsta sinni síðan
vinstri menn byltu stjóm hans fyrir
fimm árum.
Formaöur sameinaða verka-
mannaflokksins á Grenada segir að
flokkur hans undirbúi mikils háttar
viðtökur fyrir Gairy, sem áður stýrði
flokknum. — Virðist sem Bandaríkja-
stjórn ætli ekki að leggja neinn stein í
götu Gairys fyrir heimkomuna.
Gairy sagði í síðustu viku að hann
hefði verið hlynntur afskiptum Banda-
ríkjamanna á Grenada. Sagði hann að
eftir kosningar, sem fyrirhugaðar eru
á Grenada síðar á þessu ári, mundi
flokkur hans f ara þess á leit við Banda-
ríkin og Bretland að þau heföu eitt-
hvert herlið þar í framtíðinni.
Ætlar Gairy ekki að taka þátt í
kosningunum, en flokkur hans, sem
hefur unnið allar kosningar síðan 1950,
býður fram í öllum 15 kjördæmum
landsins.
Útlönd
Fullorðin kona á Partnerútsölunni:
ERU ÞETTA EKKI
GALLAÐAR BUXUR?
„Aldrei reynt að halda öðru fram, fröken,
segir afgreiðslumaður á PartnerútsölunnL
rr
Það var allt á fullu á
Partnerútsöhumi er við
komum þangað. Mikið úrval af
lítið gölluðum buxum, ef við
getum kallað það galla að
tvinni sé upplitaður. En þannig
er nú gæðaeftirlitið hjá
strákunum hjá Partner. Ekki
leið á löngu þar til ljósmyndar-
inn var kominn á kaf í buxna-
hlaðann og farinn að velja sér
buxur.
Þarna gekk fimm manna
fjölskylda út og það höfðu allir
fengið eitthvað við sitt hæfi. Að
minnsta kosti glansaði andlitið
á yngsta stráknum enn eftir
fjörið í barnahorninu. Hús-
bóndinn raulaði lágt fyrir
munni sér. Hann hafði nefni-
lega getað setið og drukkið
kaffi og borðað kleinur á með-
an konan verslaði. Það var
greinilegt á frúnni að hún þótt-
ist hafa gert nokkuð góð kaup.
Hún gægðist ofan í einn pokann
og þuklaði á erminni á forláta
peysu og tautaði eitthvað fyrir
munni sér ánægð.
Afgreiðslumennirnir, sem
allir eru sjóarar sem demba
sér í Partnerstuðið einu sinni á
ári, voru á þönum í kringum
viðskiptavinina og einn beljak-
inn, Diddi bátsmaöur, var með
málband á öxlunum og títu-
prjóna út úr öðru munnvikinu.
Sem sagt með töluvert mikið á
hreinu.
— Þetta eru gallaðar buxur,
sagði fullorðin kona og benti á
hnapp sem var laus á buxunum
sem hún hélt á í höndunum. —
Aldrei reynt aö halda öðru
fram, ungfrú, svaraöi Diddi að
bragði og lak af honum smjaðr-
ið. Eigum við að síá af þeim X
krónum? — XX krónum, svar-
aði konan hvöss. — Nei, heyrðu
mig nú, fröken, sagði vinurinn.
— Ekki viltu að ég borgi með
þeim. Það endaði með því að
þau sættust á X krónur.
Stebbi, sem er dagmaður í
vél, var í pásu inni í barnakrók.
— Sjáiði krakkar, sagði hann.
— Eg get látið krónu hverfa.
Börnin horfðu agndofa á þegar
Stefán skaut krónunni af hand-
arbakinu á sér út í vegg. — Ég
skil ekkert í þessu. — Þetta
hefur aldrei klikkað, sagði
Stefán. — Ég skal, sagði ein
stelpan og lék bragðið með
krónuna fimlega. — Nú skuluð
þið líta á videoið, sagöi Stefán,
ég hef ekki tíma til aö leika
fleiri brögð, ég gleypi sverðið
ekki fyrr en síðdegis.
Ljósmyndarinn var kominn út
úr fatahrúgunni með ekki neitt
venjulega rauðar buxur. —
Flott stöff, sagði hann. Þegar
við komum að afgreiðsluborð-
inu sagði afgreiðslumaðurinn
og gerði skyggni með höndun-
um: — Hvar fannstu þessi
ósköp? — Maður fær ofbirtu í
augun. — Hafðu ekki áhyggjur
af því, sagöi ljósmyndarinn: —
Þú færð peningana, ég geng í
þeim.”
Nú er tækifæri fyrir borgar-
búa að kynnast Partnerútsöl-
unni með eigin augum því hún
er opin daglega frá kl. 9 til 17
og á laugardögum frá kl. 10 til
16. Fyrir þá sem vilja athuga
vöruúrval í síma þá er síminn
þeirra 13919.