Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1984, Qupperneq 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR17. JANUAR1984.
17
Lesendur Lesendur Lesendur
MYNDBANDALEIGA ÓSKAST
Óska eftir myndbandaleigu á góðum stað. Tilboð
sendist til DV fyrir 25. jan. merkt „Myndbandaleiga".
Sftr
Höfnin i Vestmannaeyjum, þar hefur mikium verðmætum verið skipað á iand. Bn stjórnarpóstinum tókst
ekki að koma til skiia, eða svo segir btéfritari.
SLÆM SKIL
—ástjórnarpósti
Eyjamaður skrlf ar:
Þaö er alkunna aö oft þarf ekki mikið
til að gleðja „hinn almenna mann”
eins og pólitíkusar komast stundum aö
orði. Margir eru þeir sem hafa aldrei
fengið stjómarpóst um ævina. Um
slíkan póst gaf þó landsfaðir Stein-
grímur fyrirheit síðla fyrra árs, bless-
aður veri hann fyrir það. Stjóm
samningasvika, kjaraskerðinga og
milliliöa ætlaði sumsé að muna eftir
sinum minnstu bræömm á jólaföstu og
senda öllum bréf — jólabréf. Upplýst
var á alþingi aö stjómarpóstur þessi
mundi kosta ríkissjóð hátt í 400 þús. kr.
Hins vegar var nokkur óvissa um hvað
fundaflakk Steingríms og hinna íhalds-
ráðherranna hefði kostað ríkissjóö.
Nú sögðu skæðar tungur að útgáfa
þessa fjölfaldaöa stjórnarbréfs mundi
varða viö lög, þar sem meðal annars er
ekki getið höfundar og útgefanda.
Jæja, hvað um það, þetta átti kannski
að vera eins konar þakkarbréf til
okkar aumra launþega fyrir það að
borga niður verðbólguna.
I Vestmannaeyjum fór heldur
böngulega með stjómarpóstinn. Við
höfum sem aðrir fengið jólakveðju frá
landsfeðrum, til dæmis um hærri
skatta og spítalagjaldið, en bréfiö
Steingríms villtist í kerfinu.
Einhver upplýsingafulltrúi í stjómar-
ráðinu komst aö þeirri undariegu
niðurstöðu að heimili í Eyjum væru
700, en em um 1400. Samkvæmt þessu
vora send 700 stjórnarbréf til Eyja. Já,
nú vantaöi illa heimilisföngin. Það
hefur líklega verið vegna þessarar
adressuvöntunar að þeir sem þó fengu
sinn stjórnarpóst veittu honum mót-
töku án utanáskriftar og þótti það
heldur kumaralegt af hendi slíks send-
anda.
Þeir sem ekki fengu bréf frá Stein-
grími hafa þó tekiö þvi meö kristilegu
hugarfari, enda hafa handhafar
stjómarbréfs án áritunar, stjómar-
sinnar sem hinir, sagt þetta hiö
ómerkilegasta plagg sem líkist helst
skrumauglýsingapésa.
DV, sem ekki hefur verið talið óvin-
samlegt ríkisstjórninni, segir þetta
„siölausan slagorðabækling” í forystu-
grein 27. okt. Þar segir meðal annars:
,,Svonefndur Upplýsingabæklingur
ríkisstjórnarinnar, sem sendur var til
allra heimila landsins, er ómerkilegur
áróöursbæklingur af því tagi er stjóm-
málaflokkarnir senda kjósendum til að
rugla þáfyrirkosningar. Bæklingurinn
felst í skreytingum og slagoröum til
vamar bráðabirgðalögum ríkis-
stjórnarinnar og öðmm gerðum
hennar í sumar.... I honum eru ein-
göngu tuggin upp gömul slagorð úr
stjórnmálarimmum sumarsins. Hann
er gersamlega laus við að vera mál-
efnalegur... ”
Álverið i Straumsvík, en þar ætla starfsmenn i verkfall efekki verður við þá
samið á næstunni. Bréfritari telur að flestum sé nóg boðið með þeirri á-
kvörðun áiversmanna.
VANÞÓKNUN
ÁVERKFÖLLUM
Launþegi skrifar:
Það hlaut að koma að því — erns og
venjulega — að þeir hæst launuöu riðu
á vaðið og krefðust kjarabóta. Þeir
Straumsvíkurmenn hafa boðað verk-
fallfrá27. janúar!
Mér þykir þeir kokhraustir. Þetta
eru mennimir sem eru meö einna
hæstar meðaltekjur hér á landi. Auð-
vitað eru margir sem þyrftu launa-
hækkunar við en þegar starfshópar í
álverinu, sem er viðurkennt sem einn
launahæsti staöur landsins, ætla að
ryðja brautina til enn skertari lífs-
kjara þá er flestum sennilega nóg
boðið.
Þaö stefnir í enn skertari lifskjör ef
nú eiga að skella á verkföll á vinnu-
markaðinum þvi það hefur enginn,
allra síst þeir launalægri, efni á að
vera frá vinnu dögum saman meðan
beöið er eftir aö fá úrskurð úr þjarkinu
í Karphúsinu.
Það sem launþegar ættu að taka til
bragös nú er aö lýsa vanþóknun á verk-
föllum, hvort sem þau eru boðuð af
hópum þeirra hæst launuðu eða öömm.
Það sem þessi ríkisstjóm verður að
gera og standa við er að lýsa yfir að
engar launabreytingar verði fram-
kvæmdar fyrir hennar tilstuðlan. En
það verður þá líka aö vera hennar
leiðarljós að engum verðhækkunum
verði hleypt í gegn á sama tíma.
Nú, þegar verðbólgan er aö komast á
það stig sem talist getur eðlilegt miðað
við nálæg lönd og vöruverð er ekki
hækkaö, þar sem gengisskráning er
stöðug, má þaö ekki henda að einstakir
starfshópar fái meðbyr til þess aðeyöi-
leggja og br jóta niöur þjóðlíf i landinu.
En það hefur skeö áður að hálauna-
hópar hafi tekið ráðin í sínar hendur, ef
svo má segja, og er t.d. ekki langt
síöan flugmenn storkuöu stjórnvöld-
um, fyrirtæki sínu og þjóðlífinu í heild
með kröfu um sífellt hærri laun og mið-
uöu sig viö starf sbræður eriendis og þi
helst í Bandaríkjunum þar sem en
greidd hæstu laun sem þekkjast.
Nú hafa flugmenn ekki þann háttinn
lengur á, vegna þess einfaldlega aö
enginn hlustar lengur á þá, allra síst
stjórnvöld. Þeir vom búnir að hrópa
„Ölfur, úlfur” nógulengi.
Sama viðhorf verður almenningur
að sýna þessum Straumsvíkurmönn-
um sem nú ætla að skara eld aðjsinni
köku í krafti þess að mikil verömæti
séu í húfi og ekki sé hægt að loka álver-
inu! — Þetta var sama bragðið og
flugmenn beittu. Þeir gengu frá borði
meö fullar flugvélar af farþegum og
fyrirtæki þeirra voru svínbeygð til að
ganga til samninga.
Ríkisstjórnin verður aö taka haröa
afstöðu og ekki endilega með því að
hóta að segja af sér. Það er engin
lausn.
Ef þessi stjórn fer frá og hringiöan
verkföll, launahækkanir, verðbólga
hefst aö nýju er engin von tU þess að ný
ríkisstjórn geti hafiö baráttuna að
nýju, hversu góð sem ný stjórn verður.
Eina lausnin er að almenningur taki
sig saman og lýsi vanþóknun á verk-
föUum og kjósi gegn þeim þegar um
þau er fjaUaö á fundum verkalýðs-
félaga.
CAR RENTAL SERVICE - @ 75
FAST VERÐ - EKKERT KÍLÓMETRAGJALD
SÖLUSKATTUR INNIFALINN IVERÐI
MITSUBISHI MITSUBISHI
COLT CALANT
/1^ ^
MITSUBISHI \
CALANT STATION
Leitið upplýsinga.
SMIÐJUVECI 44 D - KÓPAVOGI - ICELAND
AÐALSÍMI: 75 400 & 78 660
KVÖLD OC HELCARSÍMI: 43 631 & 46 211
TELEX 2271 IÐN IS
Notaðir iyftarar I /T7\
/ mik/u úrvaii JoMgi
Getum afgreitt eftirtalda lyftara nú þegar s'l'11.1.
Rafmagns
1.51.
21.
2.51. m/snúningi.
31 m/snúningi.
Dísil
2.51. m/húsi.
3.51. m/húsi.
41.
Skiptum og tökum i umboðssölu.
[Jfl LYFTARASflLABI HF. g
| ÁL- OG
| STÁLHURÐIR
| Standard eða
Imeð polyurethane
einangrun.
I Verðhugmynd:
I Hurð, 3x3 m,
_ frá kr. 19.600,
■ komplett með
| öllum
^ járnum.
I
»
Stuttur afgreiðslufrestur.
ASTRA
Síðumúla 32.
Sími 86544.
pabrjÍÍ
HÖGGDEYFAR
NÝ SENDING
MJÖG MIKIÐ ÚRVAL
ÍSETNING Á STAÐNUM EF ÓSKAÐ ER
PÓSTSENDUM.
[ELJPOCARD j
HABERG HS
Skeifunni 5a, sími 84788.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 87., 92. og 95. tölublaði Lögbirtingablaðsms 1983 á
eigniuni lóð í Krísuvík, Sveifla, Hafnarfirði, þingl. eign Blárefs hf., fer
fram eftir kröfu Hafnarf jarðarbæjar, Framkvæmdastofnunar ríkisins
og innhcimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 20. janúar 1984
kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 87., 92 og 95. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
; eigninni Arnarhrauni 17,eystri hluti, Hafnarfirði, þingl. eign Jóns Mýr-
dal, fer fram eftir kröfu Guðjóns Steingrimssonar hrl., og Sveins H.
Valdimarssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 20. janúar 1984 kl.
15.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarf irði.