Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1984, Side 19
19
4*.cr ki »i ri ,\T. ci i v<»
DV. ÞRIÐJUDAGUR17. JANUAR1984.
■FLOKKÖR nr.
I;.ÐA SÁ. LR SlDAK ÖDLAST Á I.ödlU.OAN TlATf V.HTNAttRJETI A» HLUTA*
BRJLH ÞLSSU. I'R ÍÍIOANDI AD
FIMMTÍU KRONUM
( HÚITAIdeUaiNU EiMSKIPAFJELAG ISLANDS MKI> Ól.LUM I!Jf XTINI>.
t.’M FJKLAOSMANNAOO HÁPIJif M IM SKVi t’t'M >1’ I.ÓG FJFIAGSINS AKVEIXA.
liEYKJA ViK.
STJÓRN H F EIMSKIPAFJELAGS ÍSLANDS
formaður
'rfý'Mcv*
Fimmtiu króna hlutabróf i Eimskipafólaginu.
Fossar Eimskipafélagsins.
Hafnarstræti 16 i Reykjavik. Skrif-
stofur félagsins voru á efri hæð
hússins 1913 og frá 1915 til 1921.
E.S. „Gullfoss" skirður. Á mynd-
inni er Katrin Guðmundsson i
skautbúningi en fyrir aftan hana
Emil Hielsen.
,, vólrítunardeild" Eimskipafél-
agsins á fjórða áratugnum.
Fyrsta stjórn félagsins og framkvæmdastjóri.
Núverandi forstjóri
Eimskipafélagsins,
Hörður Sigurgestsson.
Frá móttöku E.S. Gullfoss i Reykjavik 16. aprii 1916.
70 ára í dag:
íslenskt og hlutir svo
gæti eignast hlut”
stofnunarfélagsins
stjóri. Varaði hann viö því aö gerður
yröi nokkur bindandi samgöngusamn-
ingur viö erlend skipafélög því að nú
yröi aö stofna íslenskt eimskipafélag
sem ætti aö sjálfsögðu aö sitja fyrir
þeim styrk er veittur væri til sam-
gangna á sjó. I fundarlok var sam-
þykkt samhljóða ályktun um að sam-
göngumálum væri fyrst komið í gott
horf þegar Islendingar heföu sjálfir
tekið samgöngurnar í sínar hendur og
skoraö var á þing og þjóö aö styðja
slíkt eindregiö og öfluglega.
— Allur aödragandi og undirbún-
ingur stofnunar Eimskipafélagsins
var gætilegur og hyggiiegur, segir
Guðni Jónsson. Fyrst var unnið að
málinu í kyrrþey, jarövegur kannaður
og upplýsingum safnaö, áætlun gerö
um rekstur fyrirtækis. Smátt og smátt
voru fleiri menn teknir til skrafs og
ráðagerða, áhuginn fyrir málinu
breiddist út, sérstakur fundur var
haidinn með þingmönnum og blaða-
mönnum og annar með helstu mönnum
í kaupmannastétt. Rekstraráætlunin
gekk í gegnum hvern hreinsunareldinn
á fætur öðrum uns hún fékk samþykki
allra sem hlut áttu að máli. Til marks
um það hversu varlega var farið í sak-
imar má geta þess að fyrsta árið
(1915) reyndust gjöldin 6150,38 kr.
lægri en áætlaö var í hlutaútboðsbréfi,
en tekjumar uröu á sama tima hins
vegar stórum hærri en áætlað hafði
verið, eða 27861,49 kr. meiri. Ástæðan
til þess að tekjur fóm svo langt fram úr
áætlun var einkum sú að flutningur
með skipunum varð miklu meiri en
gert var ráð fyrir í útboðinu.
^ kveðið var strax í upphafi að allt
hlutafé í félaginu skyldi vera íslenskt,
aö hlutir yrðu svo lágir aö hver maður
gæti eignast hlut í félaginu. Byrjað
skyldi meö tveimur skipum og skyldu
bæði vera nýbyggð.
Vestur-lslendingar tóku þátt í stofn-
un Eimskipafélagsins meö hlutafjár-
söfnun eftir að boðsbréf hafði verið birt
í blööum þar árið 1913. Nokkrir máls-
metandi menn meðal Islendinga í
Winnipeg sóttu Island heim þegar
formleg stofnun Eimskipafélagsins
átti sér stað í janúar 1914 og sögöu í
skýrslu eftir Islandsförina aö það væri
skoðun manna á Islandi að með þvi aö
koma á fót alíslensku eimskipafélagi
þá væri síöasti hlekkurinn slitinn í
verslunareinokun á Islandi.
Á stofnfundi félagsins í Iðnaðar-
mannahúsinu í Reykjavík, 17. janúar
1914, var borin fram svohljóðandi til-
laga frá Jóni Þorlákssyni, Sveini
Björnssyni, Jóni Gunnarssyni og Olafi
G. Eyjólfssyni: ,,Fundurinnákveður
að stofna hlutafélag, er nefnist Eim-
skipafélag Islands.” Tillagan var sam-
þykktíeinuhljóði.
Hin fyrsta stjórn er kosin var á
stofnfundinum skipti þannig með sér
störfum: Formaður Sveinn Bjömsson,
varaformaður Haildór Daníelsson, rit-
ari Olafur Johnson, vararitari Garðar
Gíslason, gjaldkeri Eggert Claessen og
meðstjómendur Jón Gunnarsson og
Jón Björnsson. Otgerðarstjóri var ráð-
inn Emil Nielsen og gegndi hann fram-
kvæmdastjórastarfi fram til 1930 er
Guðmundur Vilhjálmsson tók við. Á
eftir Guðmundi tók Ottarr Möller við
forstjórastarfinu og því næst Hörður
Sigurgestsson forstjóri félagsins síðan
1979.
A ð rekja sögu félagsins sl. sjötíu ár
yrði of langt mál hér. En á þessum
tímamótum Eimskipafélags Islands
má geta þess að hluthafar í félaginu
eru nær þrettán þúsund. Og er ríkið
stærsti hluthafinn með um 5 prósent.
Starfsmenn Eimskipafélagsins eru
sjö hundmð og stjórnarformaður er
HalldórH. Jónsson.
Skipakostur Eimskipafélagsins er
fimmtán skip eða þaö fimmtánda,
Fjallfoss, er væntanlegt fyrir mánaöa-
mót.
Auk þess hefur félagið f jögur skip
á leigu en aöalathaf nasvæði þess er við
Sundahöfn í Reykjavík. Heildarflutn-
ingur Eimskipafélagsins sl. ár var 660
þúsund tonn og er það 16 prósent aukn-
ing frá árinu þar áður.
HÞ.