Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1984, Síða 34
34
DV. ÞRIÐJUDAGUR17. JANUAR1984.
Plús:
Mjög eyðslugrannur.
Þýðgeng vél, miðað við gerð.
Lipur í akstri.
Gott rými í framsætum.
Gott útsýni.
Öruggir aksturseiginleikar.
Mínus:
Takmörkuð fjöðrun.
Takmarkað rými aftur i.
Fremur litið farangursrými.
Grófur vélargangur á miklum
snúningi.
Sá litli er orðinn fullorðinn!
Suzuki. Vélhjól og smábílar með
saumavélarhljóöi. Japönsk bitabox
handa ungpíum („Sísí sveimar á
Suzuki...”).
Ekki lengur. Suzuki SA 310 hefur
breytt ímynd þessa merkis á einni
nóttu. Nýr og stærri Suzuki, dannaöur
og þroskaður. Sá hefur mannast!
Suzuki er orðinn stór! Eins og út-
sprungið blóm.
Ekki svo að skilja að Suzuki SA 310
sé stór bíll. Nei, þetta er enn smábíll í
stærðarflokki meö Daihatsu Charade,
Nissan Micra, Fiat Uno, Peugeot 205,
Renault 5 og styttri gerðinni af Mitsu-
bishi Colt. Vélin tæp þúsund cc og spar-
neytnin slík að meiri gerist hún vart,
heldur ekki á 1 'tlu Súkkunni. En aö
öðru leyti ei v, i hægt að bera þessa
tvo Suzuki bíla saman. Miðað við litla
Suzuki bílinn er rými í framsætum
þess nýja viðátta, hljóöiö í vélinni golu-
þytur í grasi og hegöun á vegi mörgum
klössum fyrir ofan.
Á litla bílnum var eins og framhjólin
dingluðu þegar ekiö var á inngjöf í
slæmum holum. Þannig virkaöi þetta
að minnsta kosti í reynsluakstri, en
síöan hefur ótrúleg seigla þessa bíls
komið í ljós, bæði í reynslu eigenda um
allt land og ekki síöur þegar Ulfari
Hinrikssyni tókst aö aka þessum litla
bíl i gegnum Ljómaralliö og sigla á
honum klakklaust yfir ótai ár í vexti á
öræfum landsins, þar sem margfalt
öflugri bílar festust. Það var lygilegt.
Þar stóð sá iitli fyrir sínu sem oftar
og stendur enn sem sáraódýr valkostur
á sviði samgöngutækja.
En Suzuki-verksmiðjumar eru á
harðri uppleiö í Japan, hafa þrefaldað
framleiösluna á fimm árum og smíða
nú um 700 þúsund bíla á ári, eina og
hálfa milljón vélhjóla og margt fleira.
Það hlaut að koma aö því aö slíkur
framleiðandi léti ekki sitja við aöeins
einn stærðarflokk fólksbíla, og þar
kemur Suzuki SA310 til sögunnar.
Reynsluekið í
spönskum fjöllum
Suzuki SA 310 var kynntur bílablaöa-
mönnum Evrópu í Marbella á Spáni
fyrir skemmstu og þar gafst þeim
kostur á að aka þessum nýja bíl um 170
kilómetra í fjöllunum fyrir ofan þenn-
an dvalarstaö Sean Connery og ann-
arra frægra leikara. Því miður var
leiðin ekki malarvegur, þótt krókótt,
brött og óslétt væri, en okkur Sighvati
Blöndahl á Mogganum tókst að komast
af leiðinni á tveimur stööum á stutta
malarvegarkafla, svona rétt tii þess að
aka eitthvað við séríslenskar
aðstæður.
Þrátt fyrir þetta var þessi reynslu-
akstur ekki algerlega íslenskur, en
sáralitið vantar þó upp á að hægt sé að
gefa nokkuð glögga hugmynd um
þennan nýliða á íslenska bílamarkaðn-
um.
Þrír strokkar
í dulargervi
Það er vélin sem vekur mesta
athygli við fyrstu kynni af þessum bíl.
Þótt hún sé þriggja strokka og ekki
búin neinum sérstökum ás til titrings-
jöfnunar þá er hún svo þýðgeng og
hljóðlát að maður opnar vélarhúsið
aftur og telur kertin: Jú, þau eru
aðeins þrjú. Vélin er aöeins 63 kíló,
kambás og sveifarás eru holir, nýjasti
rafeindabúnaður mikið notaöur i
kveikjukerfi og blöndungi. Innsogið
sjálfvirkt og vinnsla vélarinnar upp í
6500 snúninga á mínútu er aldeilis
prýðileg. Þaö er ekkl fyrr en við síð-
ustu þúsund snúningana, frá 5500 upp í
6500, sem maður fer að merkja erfiðis-
hljóð frá vélinni, sem eru í ætt við þrjá
strokka í eyrum bíladellukarla, en að
öðru leyti er þessi vél í meistaralegu
dulargervi.
General Motors hafa keypt 5 prósent
Suzuki-verksmiöjanna, og þessi véi
veröur væntanlega á þeirra snærum á
Bandaríkjamarkaði. Sögusagnir hafa
og gengið alllengi um að GM væri að
koma fram með þriggja strokka vél en
þeir verða ekki sviknir af henni, þess-
ari. Allt er mjög aögengilegt í vélar-
húsi SA 310 og hjálpar þar til aö húddið
opnast aö framan, eins og kjaftur á
krókódíl.
Næstum því víðátta í
framsætum
Eg sagði áðan að miöaö við litlu
Súkkuna væri framsætisrými í stóra
bróður eins og víðátta. Ekki svo að
skilja, að sá nýi sé eins og amerískur
dreki frammi í, bíllinn er aðeins 1,55
metrar á breidd að utanmáli, heldur
hitt aö þessi litli bíll gerir mörgum
stærri bílum skömm til þegar um er að
ræða rými í framsætum. Framsætin
má færa heila 16 sentímetra fram og
aftur á sleöunum þannig að allir geta
fengið stillingu við sitt hæfi.
Þótt SA 310 sé lægri en flestir keppi-
nautarnir er lofthæð nóg inni í bílnum
frammi í. Stýri, stjórntæki og hnappar
liggja vel við hendi, sætin eru ágæt og
mælaborðiö í heild í viðkunnanlegasta
lagi miðað viö bíla í þessum veröflokki.
Hanskahólf vel stórt og vasar í fram-
huröum á GL-týpunni.
Mælaborðið er dálítiö í bandaríska
Ómarreynsluekur
Suzuki SA 310
áSpáni:
stílnum, sem og fleira hvaö snertir
stjórntæki, og bendir það til þess að
bílnum sé ætlað stórt hlutverk á
Bandaríkjamarkaði. Gæti þess vegna
staðist að GM geri hann að arftaka
Chevrolet Chevette. Hvað um það, hér
er greinilega um „universal” bíl aö
ræða, bíl sem gjaldgengur á aö verða í
öllum heimshlutum. Sætin frammi í
eru stinn en ágæt, en í reynsluakstrin-
um var ekki laust viö marr í mælaborð-
inu sem sérfræðingar verksmiðjanna,
sem staddir voru á Marbella, kváðu
vera smágalla á viðkomandi bíl sem
fljótlegt væri að kippa í lag.
Viðfelldinn bíl
Suzuki A 310 er boðinn í tveimur
gerðum og hugsanlegt aö bíll með f jög-
urra strokka, 1300 cc vél komi síöar.
Odýrari geröin af A 310 er ansi
„nakin” og líklegt er að GL-týpan
muni njóta meiri vinsælda því að hún
er ríkulega útbúin, fimm gírar,
snúningshraðamælir o.s.frv. o.s.frv.
Utlitiö á þessum bíl er ágætlega
heppnað, hugsanlega fullsviplaust og
líkt öðrum bílum af svipaðri stærð, svo
sem Honda Civic og Nissan Micra, en
þetta er hins vegar bíll sem engum
getur fundist Ijótur heldur venst vel og
þaö bendir til þess að honum sé ætlað
að falla vel í geð fólki af ólíku
sauöahúsi.
Eins og í Civic, Micra og Styttri gerð-
inni af Colt er gnægð rýmis frammi í en
minna aftur í. Sitji ríflega 180 sentí-
metra hár maður frammi í og færi
sætið ekki aftar en hann þarf kemst 180
sentímetra maður fyrir í sætinu fyrir
aftan án þess aö hné nemi við
framsætisbak eöa höfuö við loft. Aftur-
sætiö er hins vegar fulllágt frá gólfi
þannig að stuðning vantar undir lærin.
En þetta er nú nokkuö sem er regla
fremur en undantekning á bílum af
þessari stærð. Séu framsæti færð aftur
í öftustu stööu er fullvöxnum karl-
mönnum næstum úthýst úi' aftursæti,
svo mjög þrengist þá um fætuma. En
Suzuki A 310 er ekki fremur hannaður
fyrir fjóra meistaraflokksmenn í
körfubolta en flestir bílar af þessari
stærð.
Greinilega er reiknaö með langal-
gengustu notum þessa bíls, með einum
til tveimur sálum um borð, stundum
börnum aftur í og einstaka sinnum
Daihatsu Charade Micra Suzuki SA310 Fiat Uno
Þyngd 670 625 680 700
Lengd 3,55 3,65 3,59 3,65
Breidd 1,55 1,56 1,55 1.55
HæO 1,43 1,40 1.35 1,43
Hjóihaf 2,32 2.30 2.25 2,36
Sporvidd 1,34/1,31 1,35/1,33 1,33/1,30 1,34/1,30
Innanbreidd 127 1,28-1.30 1,30 1,32
Farangursrými 120 1521 ca 135 178
Hæð frájörðu, einn um borð. ca 18 sm 17 sm 16 sm 16 sm
Vél, strokkar, rúmtak 3/993 4/988 3/993 4/903-1118
Afl/snún. 52/5600 50/6000 50/5800 45 eða 55
Tog/snún. 7,6/3200 7,4/3600 7,6/3600 6,8eða8,8
Viðbragð O—100 km ca 15,4 sek. 19sek. 15.9 sek. 17,5 eða 15
Hámarkshraði 143 145 145 140 eða 150
Eyðsla, 90/120/bær. 5.217,716,8 4,9/6,616,5 4,216,716.4 4,3/5,816,4 eða 4,8/6,417,8
Snúningshringur 9,4 m 8,8 m 9,2 m 9,8 m
Verð: 259—269þús. 247-257þús. 230—255þús. 225—265þús.