Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1984, Blaðsíða 36
36
DV. ÞRIÐJUDAGUR17. JANUAR1984.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Ruth Lawrence er yngsti nemandi
sem nokkru sinni hefur verið hleypt
inn í enskan háskóia. Ruth er aöeins
tólf ára gömul — ekki einu sinni orðin
táningur. Það var fyrir tveimur árum
sem Ruth tók inntökupróf inn í Oxford-
háskóla, virtasta háskóla Bretlands,
og ekki nóg með það heldur tók hún
hæsta inntökuprófiö af þeim 531 nem-
anda sem þreytti sama prófið. Allir
hinir voru komnir undir tvítugt en
Ruth þá aðeins tíu ára gömul.
Ruth hóf síðan nám við Oxford sl.
haust. Hinn undraverði námsferill
Ruth hófst þegar hún var aöeins fimm
ára gömul. Þá fannst foreldrum
hennar hún vera betur gefin en venju
sætti og ákváöu að kenna henni sjálf í
stað þess að setja hana í skóla. Síðast-
liðin sjö ár hef ur Ruth því stundaö nám
sitt allt heima viö í Huddersfield í
norður Englandi. Faðir hennar, Harry,
sem er 45 ára, útbjó prógramm fyrir
hana sem samanstóð aðallega af eðlis-
fræði og stærðfræði. Harry Lawrence
hætti m.a.s. starfi sínu sem kerfis-
fræðingur til aö kenna Ruth þótt hann
sinnti hálfs dags starfi heima við.
,,Við fórum mikið á bókasöfn,” segir
Ruth. „Þá fengum við afnot af
rannsóknastofum í háskólanum í
Huddersfield til að gera eðlisfræði-
rannsóknir.”
Öll vinna fööur hennar við kennsluna
fór að sýna árangur þegar Ruth var
níu ára gömul og tók að kljást við stöðl-
uð stærðfræðipróf sem iöulega eru lögð
fyrir miklu eldri nemendur og stóöst
þau meðglans.
Stærðfræðin er aðaláhugamál Ruth.
Hún segir að þegar fólk sé búið að
nema nauðsynlegan grunn stærðfræð-
innar og allt það „leiðinlega” opnist
undraheimur og mjög spennandi.
Ruth stefnir á magistergráðu í
stærðfræði við St. Hugh skólann í Ox-
ford.
MYNDARLEG UST
„Stærðfræðier mjög skemmtíieg," | segir Ruth Lawrence, 12áragömul,
nemandi við Oxford háskóia.
UNDRABARN VIÐ
OXFORD HÁSKÓLA
Richard Simmons heitir maðurinn á myndinni og er nú einhver þekktasti
megrunarpostuii vestur i Bandaríkjunum. Hann var i eina tið mjög feitur,
vó um 125 kiló. „Nei, hann er ekki hættur að hugsa um linurnar og tekinn
til viðátið að nýju," segir i texta með þessari mynd. Allur maturinn þarna á
borðinu á heimili Simmons i Los Angeles er úr plasti og vaxi. „Þetta er
stöðugt þarna á borðinu til að minna mig á það hvernig óg varð einu sinni
feitur og tilað forða mér frá þviað faiia isama farið aftur, "segir Simmons.
~ V
...
Fljúg-
andi
hross
„Mikið óskaplega er
erfitt að komast á bak á
þessum fijúgandi
hestum," gæti maður-
inn verið að segja.
Sannleikurinn er hins
vegar sá að hér er um
að ræða sérstaklega
færan tamningamann
og sérstaklega færan
hest sem fer i þetta
fljúgandi spiitt þegar
húsbóndinn skipar svo.
Vasaklútar seljast í milljón eintaka árlega um vída
veröld. í Ijósi þeirrar staðreyndar settist þýskur
uppfinningamaður í Nuremberg í Þýskalandi niður og
fann upp þetta tœki sem leysa á vasaklútinn afhólmi.
Kvefaðir eiga að hafa tcekið á nefinu 24 tíma á sólar-
hring en ekki fylgir sögunni hvað gerist þegar það er
tekið niður eftir t.d. vikunotkun.
Hvað i ósköpunum skyldi þetta nú vera? Jú, listaverk, ekki ber á öðru. Og
það sem meira er, listaverkið sigraði nýiega i myndasamkeppni i Dan-
mörku. Á hvað skyidiþað annars vera málað?