Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1984, Blaðsíða 14
14
DV. MANUDAGUR10. DESEMBER1984.
Efstalandi 26 —jGrímsbœ Sími 31262
Andlitsböð — Handsnyrting — Húðhreinsun
— Litanir — Fótsnyrting — og öll almenn
snvrtiþiónusta. TT. < • . r*.
Hitamaskinn kommn artur.
Pantið tímanlega fyrir jólin.
Ilmvötn í giæsilegu úrvali.
HϚ 97 cm, lengd 170 cm,
breidd 75 cm.
VÖNDUÐ VARA Á VÆGU VERÐI.
Smiðjuvegi 6, Kópavogi símar: 45670 — 44544.
Svefnsófar i úrvali
ÚTSALA
Boddíhlutir í Skoda 110 árg.
70—'76 á hlægilegu verði.
DÆMI.
Afturbretti kr. 500.
Húdd kr. 750.
Hurð kr. 850.
Afturgafl kr. 750.
JÖFUR hf Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
Varahlutadeild
Menning Menning Menning
Kammersveit Reykja-
víkur í Áskirkju
Tónleikar Kammersveitar ReykjavBcur f
Askirkju 4. desember.
Efnisskrá: Johannes Brahms: Sextett fyrir
strengi f B-dúr opþ 18; Amold Schönberg: Var-
kUirerte Nacht, op. 4.
Ekki gekk það þrautalaust aö
koma vetrarstarfi Kammersveitar
Reykjavíkur í gang þetta haustið.
Fyrstu tónleikunum var tví- eða þrí-
frestað. Eg held aö það hafi spillandi
óhrif ó aösókn þegar fresta þarf tón-
leikum. En svo kann líka vel að vera
að ýmsir þeir sem annars hefðu kom-
iö ó tónleika Kammersveitarinnar
hafi setiö heima vegna verkefnavals-
ins. Þaö virðist enn vera til fólk (svo
furðulegt sem það nú raunar er) sem
fælist nafii Arnolds Schönberg eins
og hverja aöra pest. Skýringin ó
heldur dræmri aösókn vona ég aö
feUst í þessum tveimur atriðum
fremur en að fólk spari við sig
tónleikasókn af efnahagsóstæðum.
Kammersveitin er siður en svo eini
hópurinn sem orðið hefur fyrir barð-
inu ó dræmri aðsókn nú í haust, en
flestir, eða allir þeir tónleikar sem
svo hefur farið fyrir eiga það sam-
merkt aö hafa lent i frestunum og
öðru þess hóttar veseni.
A/ftaf þörf fyrír svert í
gæðafíokki
Svo loksins þegar Kammersveitin
Tónlist
Eyjólfur Melsted
gat látið verða af því aö spila fengu
menn biðina ríkulega launaða. Sveit-
in lék tvo sextetta, hvom öðrum erf-
iðari, með stökustu prýði. Þar spilaði
eitt hljóðfæri, en ekki sex einstakl-
ingar. Slík var samstilHngin.
Kammersveitin var aö visu búin að
spila þessa efnisskró um fyrri helgi ó
Isafirði. Það út af fyrir sig er eitt
undrið í íslensku músíklífi að þar
vestra skuU vera áhugi og grundvöU-
ur fyrir því að halda konserta af
þessu tagi. Endurtekningin kann að
hafa hleypt enn meira Ufi í leikinn en
það fór heldur ekki fram hjó neinum,
hygg ég, hversu fróbærlega vel
undirbúin Kammersveitin mætti til
leiks. Það er engin nýlunda, öUu
fremur venja. Þegar Kammersveit
Reykjavíkur hóf starfsemi sína var
hún næsta ernróð ó sínu sviði. Eftir
að mikið Uf færðist í markaðinn hafa
sumir spurt hvort raunverulega sé
þörf fyrir Kammersveit Reykjavík-
ur? Hún hafi komið þessu af stað og
þar með hafi þessi „óhugamanna-
sveit” gegnt hlutverki sínu. Menn
skyldu leiða slíkar hugrenningar hjó
sér — því hvenær er ekki þörf fyrir
kammersveit í hógæöaflokki?
EM
íkarus með grímu
eða ást og hryðjuverk
Ámi Bergmann
Með kveðju fró Dublin
Skáldsaga
Mél og menning 1984
Með kveðju fró Dublin er póUtisk
óstarsaga þar sem feUd eru saman
póUtisk stórtíðindi og viðkvæm óstar-
mól. Söguhetjan, Björn Hermannsson,
er miðaldra menntaskólakennari og
kominn óravegu fró uppruna sínum,
sonur vigreifs bardagamanns að
norðan, ættin ÖU einþykk og óstríðu-
fuU. A skólaórunum orti hann vond ljóð
einsog gengur — en rauður loginn
brann í hjarta og sjóndeUdarhring. Þó
var lífiö fuUt af rómantík og þess virði
að Ufa því. Tíminn valtaði hinsvegar
yfir hugsjónirnar og kona með sólguU i
hóri varð aö sifullri belju með freðýsu-
augu, sóUn sökk í austrinu og prinsess-
an settist i öskustó. VonbiðiU hamingj-
unnar varð að lífsþreyttum pöddu-
smala i hinu íslenska skólakerfi, bakið
beygt af þraut og hausinn fuUur af
„marklausum oröum, rykföllnum
bókum og dauðum hugsjónum” (28).
Eina úrræði hans aö éta hund og gelta
ó nóungann, snúa sig útúr leiðanum
með hólfkæringi og hundsku. En þó
gerist þaö að óstin kemur inni veröld
Bjöms Hermannssonar og breytir öUu,
smyrlingurinn verður iifandi i eina
stund eða tvær sem móske réttlæta
allar hinar. Móske — því stundum
getur iifið orðið of dýrt.
HvaO er dapuríegra...?
Hvað er dapurlegra en Hfslöngun
dauöadæmds manns? Við sögulok
vitnar höfundur í ljóö eftir írskan upp-
reisnarmann sem kvað fyrir aftöku
sina: .fegurð þessa heims, fegurð
þessa heims hefur gjört mig dapran”
(189). Söguhetja hans er ó þeirri
stundu full af háska þótt sól sé yfir
öUum fjöUum og „loftiö hreint og tært
eins og hinn fyrsta dag, alUr Utir
skærir og bjartir en gul og brún mUdi
haustsins í nónd” (189). Þessi trega-
tónn ó sinn botn í atburði löngu óður
ísögunni þar sem söguhetjan stendur
ósamt vini sínum frammi fyrir .í’aUi
Ikarusar” eftir Breughel A myndinni
er friðsælt landslag, bóndi aö starfi,
skip ó sjó en við sjóndeUdarhringinn
sér i Ujar flugkappans á leið oní hafið.
Bjöm leggur útaf myndinni líktog væri
hann að túlka eigin ævi:
„Enginn Htur upp fró sínu hvunn-
dagsamstri, enginn tekur eftir því að
Ikarus reyndi að vinna mikið afrek,
stórtíöindi, fyrsta flugslys sögunnar,
er ekki annað en smógusa langt úti á
sjó og yfir.öUu brosir sóUn bUtt og sam-
viskulaust þótt hún hafi brætt af
kappanum vængina” (47).
Saga Araa er, líktog mörg nútima-
skóldverk, óbein útfærsla á Ikarusar-
sögninni enda merking hennar sigUd.
Sniðið er þó vel falið i efninu þvi sagan
er sett niður í sögulegt samhengi og ÖU
mmmmmm—rnmmmmmmmm—mmm*
Bókmenntir
MatthíasV.
Sæmundsson
með raunsæislegum blæ. Atburöarásin
er slungin mörgum þróðum sem sumir
teygja sig inní forsiöufréttir seinustu
óra. Þótt verkið sé um sumt ævintýra-
legt kappkostar höfundur að gera það
sennilegt meðal annars með fróðleik
sem ó stundum verður full yf irdrif inn.
Ást og hryðjuverk
Lífið klappar einhverntíma á dyr
hvers manns og flestir það vitibornir
aö skima útum gættina. Sumir draga
hurð sína jafnvel uppá gótt og þoka sér
framyfir þröskuldinn en hrasa þar
reyndar flestir um sjólfa sig. Aðrir
r júka hinsvegar tU þegar kalUö kemur,
siá upp flekanum og hraða sér út með
fótinn fastan á miUi stafs og huröar.
SUkt reynir Bjöm Hermannsson.
Einsog aðrir hamingjusamir Is-
lendingar felur hann eld sinn undir is-
heUu, persónuleikinn i logum sem
aðeins þurfa leysingu Ul að brjótast
uppúr freranum. SUkt býðst Bimi
þegar hann kynnist írsku stúlkunni
Deirdre í Suður-Frakkiandi þar sem
sagan gerist að nokkrum hluta. Astar-
ævintýrið leysir úr læðingi orku sem
síðan beinist inná æsilegan farveg því í
gegnum Deirdre kynnist Bjöm bask-
neskum og írskum þjóöernissinnum —
mönnum sem vilja vera tU en sjó ekki
aðra leið til að koma sér á landakort:
en hryðjuverk. Smóm saman flækist
Bjöm inní mól þeirra og fer að lokum
heim til Islands með hlutverk og grímu
í trússi sínu. Oþarft er að rekja
atburðarásina frekar en Arna tekst að
gæða hana spennu sem endist allt til
loka.
Sumum hefur þótt atburöarósin
heldur ótrúleg en igrundi maður skap-
gerð og reynslu Bjöms verður hún
fyUUega hugsanleg. Hjó ETA og IRA
lq'nnist hann einbeittum vUja „sem
þekkir hvorki hik né málamiðlun” (78)
— vUja sem helgar mólstað sinn með
því að leggja aUt i sölumar fyrir hann.
Hann geymir inntak og hita sem Bjöm
þráir í lif sitt og finnur ekki hér heima,
skapgerðin sUk aö efi og varkórni
hljóta aö víkja þegar ó reynir. Barátta
Baska og Ira höfðar Uka tU hans, bæöi
sem manns og Islendings. Ami dregur
skýrt fram hUðstæður þessara þjóða
ón þess þó að einfalda um of, bendir tU
dæmis á aö Islendingar gætu, liktog
Baskar eða Irar, lent í höggi viö „ofur-
efli hægfara aölögunar, mUdrar og
hljóðlótrar útþurrkunar alls sem gaf
lífi þjóðarinnar keim og lögun og Ut”
(78). Aðstæður þurfa ekki að breytast
ýkja mikið tU að viðUka óstand skapist
hér og með hinum þ jóðunum tveimur. I
sögunni fer fram mikU umræða um
póHtísk hermdarverk. Höfundur
fjaUar af þekkingu og skilningi um or-
sakir þeirra en hafiiar þeim þó sem
baróttuleið því: ógnarverkið leiðir tU
tortímingar og snýst að lokum gegn
sjólfu sér — einsog dæmi Bjöms sýnir:
athöfn hans í senn úti hött, hlóleg og
sorgleg.
St'ri/ og hroðvirkni
Með kveðju frá Dublin er
skemmtUeg aflestrar, einkasagan og