Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1985, Qupperneq 8
8
DV. MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER1985.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Gandhihhtir
Jayewardene
Juníus Jayewardene, forseti Sri
Lanka, og Rajiv Gandhi, forsætis-
ráöherra Indlands, hafa ákveöið aö
hittast á næstunni á Bahamaeyjum
til að ræöa kynþáttaóeiröimar á Sri
Lanka og ráð til úrbóta. Síöasti
fundur leiötoganna í júni síðastliðn-
um varö til þess að komið var á
vopnahléi á milli stjómarhersins
og skæruliða tamila sem berjast
fyrir aöskilnaöi og sjálfstæðu
tamílaríki.
Á síðustu tveim árum er talið aö
yfir 2000 manns hafi fallið í átökum
kynþátta á Sri Lanka.
Lestkeyröiábfl
Ein kona dó og f jórir særðust al-
varlega þegar bíll rakst á lest á
ferð i Frakklandi, nálægt Tours.
Ekki er vitað hvað olli slysinu.
Engan sakaði í lestinni.
Nú hafa 85 manns látist í
frönskum lestarslysum á þessu árí.
76 manns dóu í tveimur árekstrum
i ágúst og í júlí fórust átta í árekstri
lestar og bíls.
Yfirmaður frönsku járnbraut-
anna, Andre Chardeau, sagöi af sér
fyrir þremur vikum. Hann sagðist
bera ábyrgðina á hinum tíðu slys-
um.
DelVaHe
tekurvið
Hinn nýi forseti Panama, Eric
Arturo del Valle, vann eiðstaf sinn
um helgina, eftir afsögn fyrir-
rennara síns. Nicolas Adito
Barletta sagði af sér eftir að hann
sagðist hafa misst traust hersins.
Del Valle, sem er mikill iðnjöfur,
sagði aö fyrri stjóm hefði vantað
festu. Hann sagði að þjóð Panama
stæði frammi fyrir miklum félags-
legum, efnahagslegum og stjóm-
málalegum vandamálum.
„Beinar"
viðræiiur
Israelsmenn eru klofnir í afstööu
sinni til ræðu Husseins Jórdaníu-
konungs á allsherjarþingi Samein-
uðu þjóöanna. Konungurinn sagðist
vera reiðubúinn að tala við Israels-
stjóm, „fljótlega og beint”. Það er
orðið „beint” sem hefur vakið eftir-
væntingu hjá ýmsum í Israel.
Yitzhak Shamir . utanríkisráð-
herra sagði að ekkert nýtt hefði
komið fram hjá Hussein. En einn
ráðherra Verkamannaflokksins,
Gad Yaacobi, segir rétt að „fagna
verulega” þessu tilboöi.
Hussein hefur áður viljað ræða
viö Israelsmenn ásamt fulltrúum
Frelsissamtaka Palestínu, en Isra-
elsst jóm þvertekur fyrir það.
Haugheyrétt
slappúrháska
Fyrrverandi og liklega tilvon-
andi forsætisráðherra trlands,
Charles Haughey, bjargaðist naum-
lega eftir að skúta hans sökk untlan
Suöur-Irlandi. Honum var bjargaö
af björgunarfleka snemma i gær.
Fjórum öðrum var bjargaö með
honum, en hann hafði veríð með
>eim á skútu sinni, Taurime II.
Skútan sökk eftir aö hún rakst á
klett I þoku að næturlagi. Ratsjá
skútunnar var í ólagi. Áöur en skút-
an sökk náði Haughey aö senda
neyðarskeyti.
Talið er líklegt að Haughey kom-
ist aftur í forsætisráðherrastólinn
eftir næstu kosningar.
Brixton-hverfið í Lundúnum logaði í
óeirðum um heigina. Átökin blossuðu
upp eftir að lögregla skaut saklausa
svarta konu.
Lögregla réðst inn á heimili Cherry
Groce, 38 ára gamallar sex barna móö-
ur, sem var sofandi í rúmi sínu þegar
lögreglan kom. Lögreglumennimir
voru að leita að syni konunnar. Groce
er nú á spítala. Hún kann að verða löm-
uð til frambúðar.
En stuttu eftir skotið á konuna hófst
ofbeldið á götum úti. Unglingar hentu
bensínsprengjum að lögreglustöð
hverfisins, kveiktu í bílum og bygging-
um, rændu verslanir og lúskruðu á
gangandi vegfarendum.
Lögregla segir að 53 hafi særst og
fleiri er en 150 verið handteknir.
Árið 1981 var barist á sama hátt í
Brixton þar sem einkum búa ungir at-
vinnulausir blökkumenn.
Félagsmálaleiðtogar í Brixton eru
sammála um aö samband lögreglu og
íbúa hverfisins hafi batnað nokkuö
síðan 1981.
P. W. Botha, forseti Suður-Afríku,
heldur ræðu í dag í Höfðaborg þar sem
búist er við yfirlýsingu stjórnarinnar í
Pretóríu um hvernig stjórnin ætlar sér
að taka á málum í kjölfar vaxandi ólgu
í landinu. Um helgina féllu átta blökku-
menn í óeirðum.
Á siöustu 20 mánuðum hafa yfir 720
manns fallið i átökum iitaöra kynþátta
viö lögreglu og her landsins.
Botha forseti hefur áður gefið út þá
yfirlýsingu að búast megi við stefnu-
yfirlýsingu í dag í ávarpi sínu á þingi
Þjóðarflokksins. Ríkisútvarp Suður-
Afríku, sem oft er taliö túlka stefnu
stjórnarinnar, segir aftur á móti að
ekki sé aö búast við neinum stefnu-
markandi yfirlýsingum frá forsetan-
um.
Mikil ólga hefur verið í Durban yfir
helgina. Stuðningsmenn Buthalezi,
höfðingja Zulu ættbálksins, börðust um
helgina við stjórnarhermenn og féllu
að minnsta kosti sex manns er hóp-
göngu stuöningsmanna ættbálkahöfö-
ingja laust saman viö andstæðinga á
laugardag. Boöaö hefur verið til auka-
kosninga í Suöur-Afríku 30. október
næstkomandi. Þjóöarflokkur Botha
forseta virðist á undanhaldi og hefur
samkvæmt skoðanakönnunum misst
fylgi. Telja stjórnmálaskýrendur aö
Botha verði aö boða harðnandi að-
gerðir ef honum eigi að takast að koma
í veg fyrir of mikla fylgisaukningu
hægri flokksins.
Stjóm íhaldsmanna hafnaöi kröfu
Verkamannaflokksins um rannsókn á
óeiröunum um helgina.
Samband lögreglu og íbúa í Brixton er nokkru betra nú en 1981, en það kom ekki i veg fyrir átta
klukkutima öldu ofbeldis i hverfinu.
BJARTSÝNIR EFTIR
Viðræðumar eru á milli Þjóöarand-
spyrnuhersins, sem hefur barist gegn
yfirvöldum í Kampala í fjögur ár, og
fulltrúa stjórnvalda. Samningavið-
ræðunum var slitiö í gærkvöldi. Menn
voru vonglaðir um að brátt næðist
samstaða um leiö til að binda enda á 20
ára tímabil óaldar og spennu í Uganda.
Samningamenn hittast í Kenýa, á
fundum sem forseti Kenýa, Daniel
Arap Moi, stjórnar. Hann hefur fyrir-
skipað fréttabann af fundunum. En ut-
anríkisráðherrann, Elijah Mwangale,
sagði blaðamönnum að báðir aðiljar
hefðu sýnt raunverulegan vilja til að
leysa ágreiningsefni sín.
Otraust vopnahlé rann út í sandinn
fyrir tveim vikum, þegar bardagar
Samningavioræðum er haldifl áfram í Nairobi milli fulltrúa Ugandastjórnar
og skæruliða ar háð hafa blóðuga orrustu gegn stjórnarherrunum í
Kampala á siflustu árum.
blossuðu á ný upp á stórum svæðum í
Uganda. I gær bárust fréttir um harða
bardaga um bæinn Masaka í suövest-
urhluta landsins. Það er þriðji stærsti
bærinn í landinu. Dagblaö í Uganda
sagði aö skæruliðar hefðu náð völdum í
bænum, en íbúar þar sögöu að enginn
virtist hafa fullkomin yfirráð.
Götubardagar
í Frankfurt
Mótmælagöngu vestur-þýskra
vinstrisinna í miðborg Frankfurt í gær-
kvöldi lauk með götubardaga göngu-
manna við lögreglu eftir að göngu-
menn hófu grjótkast að verslunum og
bifreiðum í helsta banka- og skemmti-
hverfi Frankfurt. Vinstrimennirnir
voru aö mótmæla dauða eins félaga
sinna er varð undir lögreglubifreið ný-
verið. Gerðu vinstrimenn aðsúg aði
fundi vestur-þýskra nýnasista og var
lögregla fengin til að gæta þess að fylk-
ingunum lysti ekki saman. Átelja
vinstrimenn lögregluna fyrir dauöa fé-
laga síns og telja yfirvöld höll undir
samtök nýnasista.
Að sögn lögreglunnar voru f jölmarg-
ar rúður brotnar í hverfinu og miklar
skemmdir unnar í nærstöddum bif-
reiöum. Töluvert var einnig um rán og
gripdeildir úr brotnum gluggum versl-
ana.
Rúmlega 1500 mótmælendur höfðu
safnast saman til að mótmæla dauöa
félaga síns í gærkvöldi. Er leið á kvöld-
ið jókst æsingur mótmælenda og við-
búnaöur lögreglu jókst. Undir mið-
nætti hófu nokkur ungmenni grjótkast
aö lögreglu og út brutust götubardag-
ar.
Lögregla beitti tankbifreiðum með
háþrýstislöngum í baráttu sinni við
óeirðarseggi og handtók tugi þeirra.
YFIR-
LÝSINGA
AÐ
VÆNTA
FRÁ
BOTHA
í DAG?
LOGANDIOEIRÐIR
ÍBRIXTONÁNÝ
UGANDA-VIÐRÆÐUR
Búist er við að friöarviðræður milh
hinnar nýju stjórnar Uganda og skæru-
liða, andstæðinga hennar, muni hefjast
að nýju í dag. Merki eru um að eitt-
hvaö hafi gengið í viöræðunum, þó enn
berjist aðilar um mikilvægan bæ í Ug-
anda.