Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1985, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1985, Síða 12
12 DV. MÁNUDAGUR30. SEPTEMBER1985. Ú'.gáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurogútgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlASSNÆLAND JÖNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PALLSTEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn: SÍÐUMÚLA12-14, SlMI 686611 Auglýsingar: SlÐUMÚLA33, SlMI 27022 Afgreiðsla.áskriftir.smáauglýsingar ogskrifstofa: ÞVERHOLT111 ,SlMI 27022 Slmi ritstjórnar: 686611 Setning,umbrot,mynda-ogplötugerð: HILMIR HF„ SIÐUMÚLA12 Prentun: ARVAKUR HF.-Askriftarverðá mánuði 400 kr. Verð I lausasölu virka daga 40 kr. - Helgarblað 45 kr. Þrírjafnirí,þingbyrjun I skoðanakönnunum síðustu tíma hefur athyglin eink- um beinzt að Alþýðuflokknum. Fólk spyr: Hvernig tekst hinum nýja formanni að halda fylgisaukningu flokksins? Síðasta skoðanakönnun DV svarar því. Alþýðuflokkurinn hefur tapað miklum hluta af því fylgi, sem hann hafði áður unnið. Alþýðuflokkurinn er ekki lengur öruggur í öðru sæti flokkanna. Hann hefur nú svipað fylgi og Framsóknar- flokkur og Alþýðubandalag. Þetta eru töluverðar sveiflur á einu sumri. Jafnan hefur verið sagt, að fylgisaukning Alþýðuflokks- ins byggist á framgangi flokksformannsins, Jóns Bald- vins Hannibalssonar. En í raun hefur þessi flokksformaður verið í „sumar- leyfi”. Á því sjáum við, að Alþýðuflokkurinn nýtur í þessari skoðanakönnun ekki lengur góðs af persónutöfrum flokksf ormannsins. Því er svo komið, að Alþýðuflokkurinn er ekkert stærri en Framsóknarflokkur eða Alþýðubandalag. Ekki kemur á óvart, að hinum óákveðnu fjölgi í þessari skoðanakönnun. Hafa verður í huga, að stjórnmál hafa verið í ládeyðu yfir sumarmánuöina. Einkum hefur stjórnarandstaðan verið í undaríegu sumarfríi. Aö því athuguðu er ekki skrítið, þótt sumir flokkarnir í stjómarandstöðu spjari sig illa. Þetta gildir þó ekki um Alþýðubandalagið, sem kemur vel út úr þessari könnun. Sjálfstæðisflokkurinn kemur vel út. En sjálfstæðis- menn skyldu varast að fagna sigri. Fylgisaukning þeirra stafar af því, að fleiri þeirra, sem nú teljast óákveðnir, hafa yfirgefið vinstri flokkana. Þannig er fylgi Sjálfstæðisflokksins í slíkri könnun stöðugra en fylgi vinstri flokkanna. Rætur Sjálfstæðisflokksins standa djúpt. í skoðanakönnunum reynist fylgi Sjálfstæðisflokksins yfirleitt meira en flokkurinn fær í kosningum. Sjálfstæðismenn skyldu því ekki hrósa sigri eftir þessa skoðanakönnun. Margt ber að athuga. Einkum það, að hlutfallsleg fylgisaukning sjálfstæðismanna byggist á því, að ýmsir fyrri kjósendur vinstri flokkanna segjast nú vera óákveðnir. Alþýðubandalagið kemur þokkalega út úr þessari skoðanakönnun. Flokkurinn var í deyfð í júníkönnuninni. Nú virðist hafa úr rætzt. Bandalag jafnaöarmanna hefur helzt vakið athygli fyrir innbyrðis sundrung. Slíkur flokkur getur ekki vænzt sigurs samkvæmt skoðanakönnunum. Hinir góðu pennar flokksins hafa mestmegnis verið í „ritbanni”. Bandalag jafnaðarmanna hefur þannig misst af sinni stóru stund. Að öllu samanlögðu hefur stjórnarandstaðan verið í sumarfríi. Þegar við nú athugum, hvernig flokkarnir standa eftir sumarfríin og rétt fyrir þingbyrjun, blasir við, að þrír flokkar eru að heita má jafnir, Alþýðuflokkur, Alþýðu- bandalag og Framsóknarflokkur. Frammistaða þeirra í þingbyrjun mun skera úr um, hver þeirra hlýtur annað sætið í flokkakerfinu. Nú er til dæmis spurning, hvort formaður Alþýðu- flokksins vaknar og þá með hverjum hætti. Haukur Helgason. „Þeir þarna upp frá eru með fullt af kreditkortum í gangi. Fólkið hefur bara gleymt að nota þau til þess að borga afborganir með." Rauði dregill- inn í ísrael „Heyröu mig. Ertu búinn aö dusta rauða dregilinn, góðurinn minn?” sagöi æösti ráðherra í Israel viö aðal- ráögjafann í landinu. „Þú veist sem er að við eigum von á tignum gesti norðan úr íshafi. Eg held ábyggilega aö landið hans heiti Island.” „Jú, jú, herra ráðherra. Eg er löngu búinn að gera allt klárt. Við höfum, eins og þú manst, átt von á honum þónokkuð lengi. Og nú hefur hann þegiö boð okkar um að halda þennan langþráöa og þarfa fyrirlest- ur um stjórnmál í veröbólguþjóðfé- lagi.” „Já, ekki veitir af, góðurinn. Þessi verðbólga hér er alveg að kaffæra okkur. Ertu búinn að pússa drykkj- arhornin? Þeir þarna norður frá eru alveg vitlausir í bjór. Það er alveg bannað að drekka hann þar svo að þú gætir þess að fylla hornin alltaf nógu vel. Svo er annað. Við verðum allir að fá okkur nýja hatta, svona texas- hatta. Það er móöins á Islandi að vera með svoleiðis höfuðföt. Ekki getum viö verið síöri en þeir.” „Þetta er allt á hreinu, herra ráðherra. En hefurðu nokkuð velt því fyrir þér hvernig þessir Islendingar fóru að ná verðbólgunni svona nið- ur?” „0 já,” sagði æðsti ráðherra. „Sko, fyrst létu þeir launin hjá verkalýðnum standa í stað en af- borganir af lánum, sem lýðurinn þurfti t.d. að borga af húsum sínum, stóðu ekki í stað. Þau hækkuðu. Þar með komu heilmiklir peningar í kassann. Nú, lýöurinn herti bara sultarólina og sagði ekki múkk í þó- nokkurn tíma. Fólkið hélt nefnilega að ráöamenn á Islandi ætluðu líka aö herða sultarólina en ég hef þó heyrt annað. M.a. kaupa þeir sér fína bíla með einhverjum opinberum styrkj- um og eitthvað eru launin há hjá ráðamönnum, ætli þau séu ekki 6— 10-föld mánaðariaunin hjá gesti okk- ar miðaö við verkamannalaunin þarnanorðurfrá.” „Hvað ertu að segja? Tekur lýður- inn þessu alveg þegjandi og hljóða- laust?” „Nei, nei, góöurinn. Osköp ertu skilningssljór. Þaö er allt búiö að 9 „Góðurinn minn. Þetta er bara trassaskapur í fólki að láta íbúðir fara á nauðungaruppboð! ” 4 Kjallarinn ERNA V. INGÓLFSDÓTTIR HJÚKRUNARFRÆÐINGUR vera logandi í verkföllum og ókyrrð á vinnumarkaðnum. Hvað heldurðu aö lýðurinn hafi heimtað? Jú, að launin væru m.a. í takt viö lána- greiðslur sem hann þarf aö inna af hendi. Æðsti ráðherra á Islandi þurfti að samþykkja þetta. En þú hlýtur aö sjá aö þetta gaf ráðamönnunum visst forskot.’l „Jæja, er þá þetta Island barasta ekkert verðbólguþjóðfélag? ” „Það er nú það, góðurinn minn. Eg hef heyrt að verðbólgan sé alltaf á niöurleið. Af hverju heldurðu aö ég hefði annars verið að biðja þig að dusta rauöa dregilinn fyrir þennan höfðingja? Við ætlum að læra af hon- um. Skilurðu þaö ekki?” „Já, en ráðherra. Ég hef heyrt að það sé verið að selja fullt af íbúðum á nauðungaruppboðum þarna norður frá. Leiga á 2ja herbergja íbúð sé komin upp í 12 þús. krónur á mánuði. Það sé ekki einu sinni hægt að fá leigt fyrir því, vegna lítils framboðs. Og meira. Unga fólkið þorir ekki aö byggja vegna hárra og óhagkvæmra lána. Því er meira að segja fleygt að ungmennin, menntuð og dugleg, séu farin að líta á búsetu í öðrum löndum hýru auga.” „Góðurinn minn. Þetta er bara trassaskapur í fólki, að láta íbúðir faraánauöungaruppboö! Þeirþarna upp frá eru með fullt af kreditkortum í gangi. Fólkið hefur bara gleymt að nota þau til þess að borga afbórganir með.” „En heyrðu, ráðherra. HVað með öll þessi rauöu strik hjá þeim? Ef farið verður upp fyrir þau þá er heil- mikil hætta á að lýðurinn segi upp samningum og að það verði verkfall. Nýjustu fréttir herma, meira að segja, að stórt, stórt félag með fullt af verkalýð innan sinna vébanda hafi sagt samningum sínum lausum frá og með næstu áramótum.” „Það getur kannski vel verið. En þú veist það, góöurinn, að dollarinn hefur lækkað en ýmis gjaldmiðill í Evrópu hækkað. Stjórnin á Islandi getur augljóslega ekkert gert að því. Nei, ég skal segja þér það. Mér er sagt að þessi æðsti ráöherra frá Is- landi hafi ráð undir rifi hverju og haldi líka fast í stólinn sinn. Sjómenn á síld eru raunar eitthvað að ybba sig. Það veröur ábyggilega allt í lagi með það. Við fáum áreiöanlega fullt, fullt af ráðleggingum frá æösta ráð- herra á fyrirlestrinum. Bíddu bara.” Og asðsti ráðherra í Israel og góður- inn hans fóru að pússa drykkjarhom- in betur. -Erna V. Ingólfsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.