Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1985, Side 20
20
DV. MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER1985.
ALLAR STÆROIR
HÓPFEROABÍLA
SÉRI.EYFISBlLAR AKUREYRAR H.F.
FERPASWdFSTOFA AKLMEVRAR HF.
rAdhústohgi3.AKUREYRi sMaw
KRAFTBLAKKIR
ÚTGERÐARMENN
Höfum A lagar 400 kg kraftblakkir með ains aöa
tveggja spora hjóli. Gott varð og göðir graiðsluskil-
Atlas hf
Borgartuni 24. simi 26755
BIIALEIGA
REYKJAVÍK:
AKUREYRI:
BORGARNES:
VÍÐIGERÐI V-HÚN.:
BLÖNDUÓS:
SAUÐÁRKRÓKUR:
SIGLUFJÖRÐUR:
HÚSAVÍK:
EGILSTAÐIR:
VOPN AFJÖRÐU R:
SEYÐISFJÖRÐUR:
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:
HÖFN H0RNAFIRÐI:
91-31815/686915
96-21715/23515
93-7618
95-1591
95-4350/4568
95-5884/5969
96-71498
96-41940/41594
97-1550
97-3145/3121
97-2312/2204
97-5366/5166
97-8303
interRent
Oryggið
Í ÖNDVEGI
MEÐ PHILIPS BÍLPERUM
Á bensínstöövum Shell
fást ódýrar og endingargóö-
ar Philips bílperur í öll Ijós
bifreiðarinnar.
Skeljungur h.f.
46
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8- 15655
„Skafrenningur og kafaldssnjór i kringum tjöld bandarisku hermannanna á Íslandi. Einmana hermaðurinn er eins og dökkur skuggi i hvitri
breiðunni. Á sumrin er forarsvað i kringum tjöldin."
Grein um ísland í einu Life-blaðanna sem f undust á Akureyri:
tSLENSKAR K0NUR ERU
EKKITILKIPPILEGAR
— segja bandarískir hermenn við
Life 10. maí1943 og líkja fslenskum konum við kalt veðrið
Heilsíðugrein er um Island i einu
þeirra Life-blaða sem fundust á
öskuhaugunum á Akureyri um helg-
ina. Blaðið er frá striðsárunum, 10.
maí 1943.1 greininni segir að banda-
riskum hermönnum finnist íslenskar
konur ekki tilkippilegar. „Islenskar
konur eru, eins og veðriö á Islandi,
kaldranalegar. (Like the weather,
the Icelandic girls are chilly).”
I grein Life er annars verið að
segja frá dvöl bandarískra her-
manna á Islandi. Byrjað er á því að
segja frá veðrinu á tslandi. „Veturn-
ir eru langir og þaö vorar seint á Is-
landi.”
Og áfram: „Það er norðangarri
með snjó og slyddu, beint frá heim-
skautsísnum, langt fram í apríl. Og
þegar svo voriö kemur loksins er það
kalt og votviðrasamt. Meira að segja
í júli er hitinn aöeins um 10,5 gráður
á Celcius (51,6 gráður á Fahren-
heit).”
Já, svo er nú það og það er nú svo.
Enn er haldiö áfram. „Meðfylgjandi
myndir eru fengnar úr myndasafni
hersins. Þær sýna okkur hvernig
veturinn hefur verið hjá bandaríska
herliðinu á Islandi þetta árið. En her-
mennirnir eru þar til að halda úti
herflugvelli á flutningaleiðinni frá
Bandaríkjunum til Englands.”
Þá segir að hermennirnir séu
þarna einnig til að undirbúa hugsan-
lega innrás í Evrópu. Life segir síðan
að þrátt fyrir veturinn og kaldan
storminn hafi líf haldist í hermönn-
unum, þeim hafi ekki orðiö kalt.
„Þeir hafa búið í þægilegum vetr-
artjöldum og Nissan-bröggum sem
hitaöir hafa verið upp með kabyss-
um. ökutækin hafa einnig verið
vernduð fyrir storminum og hafa til
þess verið notaðar krossviðarplötur
og timburrusl.”
Og greininni lýkur svo á þessum
orðum: „Það er aðeins eitt sem hef-
ur gert bandarísku hermennina
óhamingjusama. Þeim leiðist að fá
ekki að berjast á vígstöðvunum.
Eina skemmtunin, sem þeir hafa á
Islandi, er að fara í bíó og fá sér tvö-
faldan viskí. Islenskar konur eru,
eins og veðrið á Islandi, kaldranaleg-
ar.” -JGH
„Vindur og snjóstormur á götum herbúöanna. Hermaður er é vakt.
Bogmyndaða þakið til vinstri er Nissanbraggi, liklegast ágœtlega tœkj-
um búinn, eins og með heimasmiðaða stóla, lampa og öskubakka." „Það er reynt að æfa sig á Íslandi þrátt fyrir vetrarríkið þar og bylinn."