Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1985, Blaðsíða 23
DV. MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER1985.
23
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
• Héðinn Gilsson tsonur Gils Stefánssonar, fyrrum leikmanns með FH) sóst hér í baráttu við KR-vörnina i leiknum á laugardag. DV-mynd Bjarnleifur.
Stefán Kristjáns og
Guðjón áttu stórleik
— og FH-ingar unnu þriggja marka sigur á KR, 23-20, í Haf narf irði á laugardaginn þrátt fyrir
að hafa aðeins skorað eitt mark á tuttugu mínútum í seinni hálfleik.
Guðjón meiddist og Óli fékk rautt
„Ég er ekki í neinum vafa um aö
þetta lið verður á toppnum eftir eitt til
tvö ár. Okkar staður í deildinni þetta
árið verður líklega 3.-5. sætið en við
erum með mjög ungt lið,” sagði Þor-
gils Öttar Mathiesen, FH, eftir að lið
hans haf ði unnið sigur á KR í köflóttum
baráttuleik í íþróttahúsinu í Hafnar-
firði á laugardaginn. Lokatölur urðu
23—20 eftir að FH hafði haft átta mörk-
um betur í hálfleik, 16—8.
FH haföi mikla yfirburði í fyrri hálf-
leiknum með Guðjón Arnason og
Stefán Kristjánsson sem bestu menn.
Guðjón þurfti reyndar að yfirgefa leik-
völlinn eftir tuttugu minútna leik, eftir
að hafa snúið sig á ökla, en fram að
þeim tíma haföi hann verið aöalspraut-
an í sóknarleik Hafnfiröinganna.
I seinni hálfleiknum gekk hvorki né
rak hjá FH-ingum í byrjun og þeir
skoruðu aðeins eitt mark á tuttugu
mínútum. KR náöi að minnka muninn í
17—15. Heimamenn héldu haus á loka-
mínútunum og náðu aö vinna þriggja
marka sigur, 23—20.
Leikurinn var nokkuö grófur og
mikiö um brottrekstra. Einn leikmað-
ur fékk að sjá rauða spjaldið fyrir
þrjár brottvísanir. Það var Olafur
Lárusson sem fékk að sjá þaö í fyrri
hálfleik.
Þeir Guðjón og Stefán voru bestu
leikmenn FH í fyrri hálfleiknum en í
þeim seinni var kæruleysið yfirsterk-
ara leikgleöinni hjá flestum leikmanna
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
L
McAvannie markahæstur
Frá Sigurbirni Aðaisteinssyni,
fréttamanni DV i Englandi:
Frank McAvannie, leikmaður
með West Ham, er nú marka-
hæstur í 1. deildinni ensku í knatt-
spymu. McAvannie hefur verið á
skotskónum að undanförnu og
hefur skorað 9 mörk fyrir West
Ham.
í öðru sæti yfir markahæstu
leikmenn cru margir frægir
kappar, þeir Mark Hughes, Manch.
Utd, Ian Rush, Liverpool,og Gary
Bannister, QPR.
Alan Hansen fyrirliði
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV í Englandi:
Ekki er enn ljóst hvað verður
um Phil Neal hjá Liverpool en
eins og fram hefur komið í frétt-
um virðist Kenny Dalglish, fram-
kvæmdastjóri Liverpool, ekki
hafa áhuga á Neal, alia vega ekki
sem stendur.
Alan Hansen tók við fyririiða-
stöðunni af Neal á laugardaginn
og leiddi tið sitt til stórsigurs
gegn Tottenham.
-SK.
1
I
I
1
I
I
I
I
I
I
I
I
J
liösins.
I vesturbæjarliðinu áttu Páll Olafs-
son og Bjarni Stefánsson bestan leik.
Mörk FH: Stefán 6/5, Þorgils Ottar
5/4, Guðjón 4, Guðmundur Magnússon
3/1, Oskar Ármannsson og Jón Erling
Ragnarsson 2, Valgarður Valgarðsson
og Héðinn Gilsson 1.
Mörk KR: Bjarni 6/5, Jóhannes
Stefánsson 5, Páll 4, Ragnar Her-
mannsson, Haukur Geirmundsson,
Friðrik Þorbjörnsson, Olafur Lárusson
og Björn Pétursson 1.
-fros.
• KR-ingar lentu í þeim vandræðum i leiknum gegn FH að aðeins þrir
leikmenn voru eftir inná og sjást þeir þremenningar verjast i leiknum gegn
FH á laugardag. DV-mynd Bjarnleifur.
íslenska
landsliðið
f ékk mjög
mikið hrós
—íbreska
sjónvarpinu en þar
voru sýndir kaf lar
úr landsleiknum
gegn Spáni
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DVI Englandi:
íslenska landsliðið i knatt-
spyrnu var í sviðsljósinu hér í
Euglandi um helgina en þá voru
sýndir langir kaflar úr landsleik
tslendinga og Spánverja sem
fram fór í Sevilla í síðustu viku.
Umsjónarmenn þáttarins, sem
kaflaruir voru sýndir í, voru þeir
Ian St. John, fyrrum leikmaður
með Liverpool, og Jimmy Greew-
es. Er skemmst frá því að segja
að þeir félagar hældu íslenska lið-
inu óspart og sögðu að greinilegt
væri að ísland væri með mun
betra landslið en raargir hefðu
gert sér grein fyrir. Sérstakt hrós
fékk Sigurður Jónsson fyrir leik
sinn og er vonandi að Howard
Wilkinson, framkvæmdastjóri
Sheffield Wednesday, hafi verið
með bæði augun opin þegar sjón-
varpið sýndi frá landsleiknum.
Einnig sögðu þeir félagar að
Bjarni Sigurðsson hefði oft varið
mcistaralega og hann hefði öðr-
um fremur bjargað íslenska lið-
inu frá verri útreið á Spáni.
-SK.
í
• Sigurður Jónsson fékk mikið
hrós í breska sjónvarpinu fyrir
frammistöðuna i landsleikn-
um gegn Spánverjum i Sevilla.
Joe Jordan
til Man. City?
— verður líklega
seldurfrá
Southampton
Frá Sigurbirni Aðalsteins-
syni, fréttaraanni DV í Eng-
landi:
Allar líkur eru nú á að Joe
Jordan verði seldur frá
Southampton. Þessi snjalli
knattspyrnumaður hefur
ekki sloppið í lið hjá Dýrling-
unum að undanförnu.
Chris Nicholl, fram-
kvæmdastjóri Southampton,
hefur lýst því yfir að Jordan
sé einfaldlega orðinn of gam
all til að hægt sé að nota hann
hjá Southampton. Aldur
kappans hefur þó ekki komið
í veg fyrir míkinn áhuga
Mauchester City sem sagt er
tilbúið að kaupa þennan fyrr-
um skoska landsliðsmann.
Frægastur varð Jordan þeg
ar hann lék með Manchester
United og varla er hægt að
líkja því við ýkjur þegar sagt
er að Jordan sé einn besti
skallamaður sem leikið hefur
knattspyrnu á Bretlandseyj-
um. -SK: