Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1985, Síða 29
DV. MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER1985.
29
„Veiðum vonandi vænar
hrygnur næsta sumar”
— segir Þórarinn Sigþórssonr sem veiddi tæplega
300 laxafsumar
„Veiöin hefur sjaldan gengiö eins
illa og í sumar, ég fékk tæplega 300
laxa en var samt mjög marga daga
viö veiðar,” sagöi Þórarinn Sigþórs-
son tannlæknir.
Stærstu laxar sumarsins?
„Eg fékk tvo 18 punda, annan í
Laxá á Ásum, hinn í Höklunum í
Laxá í Kjós, skemmtilegir laxar.
Annars missti ég stórlax, örugglega
vel yfir 20 pund í Höklunum í Laxá í
Kjós eftir mikla viðureign. Laxinn
þaut út í sjó og barst leikurinn út all-
ar fjörur og slitnaði loksins þegar
allt var komið út af hjólinu.”
Besti veiöitúr sumarins?
„Minn besti veiðitúr í sumar var í
Laxá á Ásum. Þar veiddi ég 30 laxa
og voru óvenjumargir vænir. Þetta
var skemmtilegur veiðidagur í góð-
um félagsskap. Leirvogsáin gaf okk-
ur Stefáni Guðjohnsen góða veiði,
veiddum þar 22 laxa, vorum svo stál-
heppnir aö lenda í göngu.”
En hvers vegna fékk hann ekki
fleiri laxa?
„Ég hef líklega ekki haft nógu af-
kastamikla aðstoðarmenn til aö
plasta og beita, eins og einhver
nöldurseggur vildi halda fram í les-
endabréfi NT. En í alvöru talað voru
ástæðurnar einkum vatnsleysi og við
slíkar aðstæður tekur laxinn oft illa.
Ég fór líka oft sem einhvers konar
Þórarinn Sigþórsson.
hjálparkokkur.”
Var ekki óvenjumikið um smálax?
„Jú, mikið af smálaxi og þá eink-
um 5—7 punda hængum. Ég vonast
svo eftir aö vænu hrygnurnar láti
sjá sig næsta sumar.”
Hvaö finnst þér um hið háa verð á
veiðileyfum?
„Verðið er oröið óheyrilega hátt
og við íslenskir stangaveiðimenn er-
um í samkeppni við útlendinga sem
flestir vita ekki aura sinna tal. Ef
veiðileyfin hækka enn get ég ekki
ímyndað mér að þau seljist á inn-
lendum markaöi. Annars virðist sem
útlendingar séu aö draga saman
seglin og fækka komum sínum
hingað.”
Ef veiðin minnkaði enn og veiði-
leyfin hækkuðu meira á þá að draga
inn færið?
„Það yrði erfitt að kyngja því að
þurfa að hætta því að veiðidellan á
nú einu sinni svo sterk ítök í manni.”
„Sé betur og betur hvað
Norðurá er góð veiðiá”
„Veiðin fór rólega af stað í sumar,
var lítil þangað til kom fram í júlí en
þá varð þetta mjög gott,” sagði
Magnús Jónasson. „Þó að vatnsleys-
ið væri mikið fór maöur aldrei lax-
laus úr veiðitúrunum þegar veiðin
byrjaði loksins í júlí. Veiðin hjá mér
hófst 1. júní og veiddist enginn lax,
lauk sumrinu síðan í Laugardalsá í
Isaf jaröardjúpi 15. september og við
fengum 7 laxa á einum og hálfum
degi.”
Hver var besti veiðitúrinn?
„Það var í Miðfjarðará og þar
veiddum við vel, félagarnir, ég,
Kristján Bjarnason og Ólafur
Rögvaldsson: 67 laxa á þremur dög-
um á þrjár stangir. Miðfjarðaráin
fyllist af laxi á þessum tíma. Norður-
áin gaf mér líka vel í sumar og veiddi
ég þar mest 33 laxa; veiddi oft í
Norðuráísumar.”
Er Norðurá eitthvað sérstök?
„Uppáhaldsáin min og eftir því
sem ég veiði í fleiri veiðiám sé ég
— segir Magnús Jónasson
betur og betur hvað Norðurá er góð
veiðiáogberaf.”
Eftirminnilegustu laxar sumars-
ins?
„Tveir laxar eru eftirminnilegir. Eg
var að prófa 9 feta stöng, Orvis, í
Miðfjarðará og 12 punda lax, ný-
genginn, tók Blue Charm fluguna.
Þetta var mikil barátta í Grjóthyln-
um og stöngin vann fiskinn skemmti-
lega. Fiskurinn, sem ég veiddi í
Skarðafljóti í Miðá í Dölum, var
hreint ævintýralegur. Hann djöfl-
aðist um allan hylinn og tók vel í. Ég
var með sterkan taum, 12 pund, og
þetta var 12 punda lax og tók græna
fransis; að lokum var honum
landað.”
Hvað er búið að veiða marga laxa í
sumar?
„Ætli maður sé ekki búinn að fá á
milli 200 og 250 laxa.”
Hvað finnst þér um verðlag á
veiðileyfum?
„Vonandi aö veiðileyfi hækki ekki
Magnús Jónsson.
meira en orðið er, þetta er orðið
alltof hátt núna. Þessari stefnu verð-
ur að linna aö veiðileyfi fylgi verð-
laginu, sem er ekki oft í samræmi við
veiöina.”
Dagur Garðarsson.
„Þetta var 25
—30 punda lax”
— segir Dagur Garðarsson
„Þetta hefur verið huggulegt sum- ekki fengist til að taka.”
ar, sól og blíöa, og maður hefur lítiö
þurft á regnkápu að halda. Hef veitt
30—40 laxa og flesta á flugu,” sagði
Dagur Garðarsson. „Mjög gott sum-
ar, en vatnsleysið var orðið sums
staðar of mikiö og þaö hefði mátt
rigna dag og dag.”
Stærsti laxinn?
„Hann var 18 pund og veiddist í
Gíslakvörn í Laxá í Dölum og tók
rauöa fransis, en sú fluga hefur ver-
ið gífurlega sterk í Laxá í Dölum í
sumar.”
Misstirðu stórlax í sumar?
„Já, mjög stóran lax seint í ágúst í
sól og blíðu í Þegjandakvörn í Laxá í
Dölum. Gæti hafa verið 25—30 punda
lax og þetta var klukkutíma barátta
og hann tók rauða fransis númer 10.
Laxinn tók djúpt í hylnum og var
varla byrjaöur að þreytast þegar lak
úr honum; mikill og vænn fiskur;
margir hafa séð hann en hann hefur
Fékkstu flesta laxana á flugu?
„Já, flesta nema í Staðarhólsá í
Dölum, þar veiddi ég á maök, alla
hina á flugu, uppáhaldsáin var Laxá
í Dölum og gekk vel í henni sem
endranær. Rauð fransis var uppá-
haldsflugan hjá mér í sumar, en
þetta gæti breyst næsta sumar. ”
Nú veiðir þú mikið á flugu, er
fluguveiðin skemmtilegri en
maðkurinn?
„Já, miklu skemmtilegra að veiöa
á flugu. Þar sem mikiö er af laxi get-
uröu kannski tekið 2 laxa á maðk en
margaáflugu.”
Hvað finnst þér um verö á veiði-
leyfum? Er þaö orðið of hátt?
„Mér finnst það fáránlegt, vil frek-
ar fara í Laxá í Dölum en Gljúfurá í
Borgarfirði fyrir svipað verð, ef
maður tekur dæmi. Verðið er orðiö
nóguháttnúna.”
„Mikið af laxi að
ganga f Víðidalsá”
segir Björn Lárusson, bóndi á Auðunnarstöðum
Víöidalsá þykir góð veiöiá og
margir veiðimenn leggja þangaö leið
sína á hverju sumri. En þar sem
veiðin var frekar dræm í Víðidalsá í
sumar og töluvert til af veiðileyfum í
ánni undir þaö síðasta höfðum við
samband viö Björn Lárusson, bónda
á Auðunarstöðum og formann veiði-
félagsins, og spurðum frétta.
Hvað er að frétta, B jörn?
„Lax er ennþá að ganga í Víði-
dalsá og það er mikið af laxi í ánni.”
Hvað veiddust margir laxar í ánni
í sumar?
„Það veiddust um 700 laxar og 3000
bleikjur, mjög góð silungsveiði. Okk-
ar kúnnar eru auðvitað óhressir með
þessa tregðu í sumar, en fiskifræð-
ingar halda að áin sé aö komast upp
úr lægöinni.”
Er lax að ganga ennþá?
„Mér finnst það merkilegt að lax
sé að ganga ennþá. Ég hef veitt og
búið hér á bökkum Víðidalsá í 50 ár
og ekki séð lax svona seint.”
Hvað getur það þýtt þegar laxinn
kemur svona seint?
„Það væri kannski hægt að lækka
veiðileyfi eitthvað ef veiðitíminn yrði
lengdur og laxinn fengist til að ganga
svona eins og núna.”
Hvað finnst þér um verö á veiði-
leyfum?
„Það hefur hlakkað í veiðimönnum
núna vegna lélegrar veiði, en því
ekki að láta þá borga fyrir góða
veiði.”
„Þetta er búið að vera gott sumar”
— segir Snæbjörn Kristjánsson
„Þetta er búið að vera gott sumar,
þó að vatnsleysið hafi háö veiðinni
töluvert,” sagði Snæbjörn Kristjáns-
son. „Ég hef veitt víða í sumar og ég
hef veitt rúma 200 laxa.”
Sá stærsti?
„Veiddi hann í Holunni í Laxá í
Kjós og það var 15 punda lax, ný-
genginn og tók vel í, mikil barátta í
honum. Maður missir alltaf væna
laxa á hverju sumri og þannig fór
líka í sumar. I Stóru-Laxá í Hrepp-
um, fyrir neöan Hólmahylinn í
strengnum, missti ég um 25 punda
lax, ég hef líklega verið meö hann í
4—ðmínútur.”
Uppáhaldsáin?
„Miðfjarðará hefur alltaf verið
min uppáhaldsá og er sannkölluö
VEIÐIVON
GunnarBender
paradís á jörðu. Fallegt að veiða við
hana og margir skemmtilegir veiði-
staöiríhenni.”
Fékkstu góöa veiöi í henni í
sumar?
„Það gekk vel og við vorum við
veiðar í henni í júlí og þá voru miklir
vatnavextir. Mikil barátta við laxinn
þegar áin er í miklum vexti.”
Eitthvað minnisstætt frá sumrinu?
„Ætli það sé ekki frá Laxá í Kjós
þegar veiðifélagi minn, Hlöðver Vil-
hjálmsson, setti í rosalegan lax í
Höklunum og laxinn hafði ekki verið
lengi á þegar hann tók strikið út í sjó
og fór með alla flugulínuna og undir-
línuna líka og þar með skildi á milli
þeirra.”
Hvað finnst þér um verð á veiði-
leyfum?
„Kominn tími til að lækka það og
fækka mætti stöngum í mörgum
veiðiám eins og í Norðurá, Laxá í
Kjós og Miðfjarðará.”
Snæbjörn Kristjónsson.