Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1985, Blaðsíða 43
DV. MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER1985.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýöubankiau: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65—74 ára geta losað inn-
stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikning-
arnir eru verötryggðir og með 8% nafnvöxt-
um.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9%
nafnvöxtum.
Lífeyrisbök er fyrir þá sem fá lífeyri frá líf-
eyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextir eru 29% og ársávöxtun 29%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
27%, en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uöi án úttektar upp i 33%. Arsávöxtun á
óhrevf ðri innsíæðu er a fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sérvöxt-
um, Gullbókin, er óbundin með 34% nafnvöxt-
um og 34% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu
eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reikn-
ings reynist hún betri. Af hverri úttekt drag-
ast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 36% nafnvöxtum og
39,2% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaöarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30% árs-
ávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5% vöxt-
um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að
vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og
31.12.
Landsbaukinn: Kjörbók er óbundin með
34% nafnvöxtum og 34% ársávöxtun eða
ávöxtun 3ja mánað verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 22%, eftir 2 mánuði 23,5%, 3 mánuði
25%, 4 mánuði 26,5%, 5 mánuði 28%, eftir 6
mánuði 29,5% og eftir 12 mánuði 31,6%. Árs-
ávöxtun á óhreyfðu innleggi er34,l%, eða eins
og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum reikning-
um reynist hún betri. Vextir færast tvisvar á
ári.
Utvegsbankinn: Ábót ber annaöhvort hæstu
ávöxtun óverðtryggðra reikninga i bankan-
um, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings með 1% jafnvöxtum sé
hún betri. Samanburður er gerður mánaðar-
lega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af
reikningnum gilda almennirsparisjóðsvextir,
22%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga i bankanum. Nú er ársávöxtun ann-
aðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum 6
mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum. Af
úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
. hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila árs-
fjórðung.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja
mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
meö svokölluðum trompvöxtum, 32% með
34,3% ársávöxtun. Miðaö er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á
vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæöur innan
mánaðar bera trompvexti sé reikningurinn
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega.
Spariskírteini
Spariskírteini Rikissjóös Islands eru seld i
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýj-
ustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100
þúsund krónur.
) Við kaup á viðskiptavixlum og viðskiptaskulda
bréfum er miðað við sérstakt kaupgengi. kge, hjá
þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá
sparisjóðunum i Hafnarfirði, Kópavogi, Keflavík
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára en inn-
leysanleg eftir þrjú ár, 10.09.88. Nafnvextir
7%. Vextir, vaxtavextir og verðbætur greið-
ast með höfuðstól við innlausn. Með vaxta-
miðum, skírteini til mest 15 ára, innleysanleg
eftir 5 ár, 10.09.90. Vextir eru 6,71% á höfuð-
stól og verðbætur, reiknaðir misserislega og
greiddir út gegn framvisun vaxtamiða. Verð-
bætur greiðast með höfuðstól við innlausn.
Með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxta-
auka, til 18 mánaða eða 10.03. 87. Vextir eru
meöaltal vaxta á 6 mánaða verðtryggðum
reikningum bankanna og með 50% álagi.
Vextir, vaxtavextir, vaxtaauki og verðbætur
greiðast með höfuðstól viö innlausn. Gengis-
tryggð skírteini eru til 5 ára, 10.09.90. Þau eru
bundin safngjaldeyrinum SDR og bera 9%
vexti. Vextir og vaxtavextir greiðast við inn-
lausn með höfuðstól, í samræmi við stöðu
SDR.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12—18% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 3. ársfjórðungi 1985: Til
einstaklinga 677 þúsundum króna, 2—4
manna fjölskyldna 860 þúsundum, 5 manna og
fleiri 1.004 þúsundum, 7 manna og fleiri 1.160
þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á
3. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn er
hámark 320 þúsund krónur til einstakiings,
annars 130—160 þúsund. 2—4 manna fjöl-
skylda fær mest 400 þúsund til fyrstu kaupa,
annars 160—200 þúsund. 5 manna fjölskylda
eða stærri fær hámark 470 þúsundir til fyrstu
kaupa, annars 190—235 þúsund. Lánslími er
21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, láns-
upphæðir, vextir og lánstima. Stysti timi að
lánsrétti er 30—60 mánuðir. Sumir sjóðir
bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og
áunnin stig. I.án eru á bilinu 150—700 þúsund
eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru
verðtryggð og með 5—8% vöxtum. Iánstími
er 15—35 ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóöum.
IMafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í
einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tím-
ans 1.220 krónur og ársávöxtunin þannig 22%.
Liggi 1000 krónur inni í 6+6 mánuði á 22%
nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6
mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur. Á
hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mán-
uði. Þannig verður innstæðan í lok tímans
1.232 krónur og ársávöxtunin 23,2%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,5% á mánuði eða 42% á
ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því
0,1166%.
Vísitölur
Lánskjaravísitaia í september er 1.239 stig,
en var 1.204 stig í ágúst. Miðað er við 100 í júní
1979.
Byggingarvisitala á 3. ársfjórðungi 1985 er
216 stig á grunninum 100 frá janúar 1983, en
3204 stig á grunni frá 1975.
og Sparisjóði Reykjavikur.
2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána
er 2% á ári, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán,
nema í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum.
VEXTIR 8ANKA OG SPARISJÚÐA (%)_________________________________________21.-30.09.1985
INNLÁN MEÐ SERKJÖRUM SJA sérlista 5 1 111! tl II 11 !l iiif ii li
innlAn óverðtryggo
sparisjOosbækur úbunán mstaða 22.0 22,0 22,0 22.0 22.0 22,0 22.0 22.0 22.0 22.0
SPARIREIKNINGAR 3fa mánaóa uppsogn 25.0 26.6 25,0 25.0 23.0 23.0 25.0 234) 25.0 25.0
6 ménaða uppsogn 31.0 33.4 30.0 28,0 28.0 30.0 29.0 31.0 28.0
12 mánaóa uppsogn 32.0 34.6 32,0 31.0 32,0
SPARNADUR LANSRÉTTUR Sparað 3 - 5 minuöi 25JJ 23.0 23,0 23.0 23.0 25.0 25.0
Sparað 6 mén. og mmra 29.0 26.0 23,0 29.0 28.0
INNLANSSKlRTEINI Ti 6 márutða 28.0 30.0 28.0 28.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareárangar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0
Htauparmhrangar 10,0 10.0 8.0 8.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0
INNLÁN VERDTRYGGD
SPARIREIKNINGAR 3fa mánaða uppsogn 2.0 1.5 14) 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0
6 mánaða uppsogn 3.0 3.5 3.5 3.5 3.0 3.0 3.0 3.5 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGÐ
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandar íh jadotar ar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0
Slertngspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 11.0 11.5 11.5
Vsstur þýsk mork 5.0 4.5 4,25 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5
Danskar krónur 10.0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0
ÚTLÁN DVERÐTRYGGÐ
ALMENNIR VÍXLAR IforvBxtv) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0
VIOSKIPTAVlXLAR IforvextB) 32.5111 32.5 32.5 kga 32.5 kge kga kga 32.5
ALMENN SKULDABRÉF 32.0(2) 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 324) 32.1) 32.0
VKJSKIPTASKULOABRÉF 33.51) 33.5 kge 33.5 kge kg. kge 33.5
HLAUPAREIKNINGAR Yfvrkátlur 31.5 31.5 31.5 31,5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5
UTLÁN VERÐTRYGGÐ
SKULOABRÉF Að 2 112 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Ltmgnen? 1/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
UTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU
VEGNA INNANLANDSSOLU 27.5 27.5 27.5 27.5 27.5 27.5 27.5 27.5 27.5
VEGNA UTFLUTNINGS SDR rrahramfTTt 9.5 9.5 9.5 9.5 9.5 9.5 9.5 9.5 9.5
43
Sandkorn
Sandkorn
a
Suðurnesjum
Stuadum eiga sér stað
óvæntar uppákomur í dans-
húsum landsmanna. Við
greindum frá því hér í
Sandkorni er kona ein hóf
mikla fatafellusýningu á
Stuðmannaskemmtun ný-
lega.
En ævintýrin gerast víð-
ar. Við gefum blaðinu
Vikurfréttum orðið:
„Það varð óvænt
skemmtun sem gestir fengu
á danshúsi einu á Suður-
nesjum fyrir skemmstu.
Einn dansgestanna úr hópi
kvenna hóf að tina af sér
spjarirnar í grið og erg og
hætti ckki fyrr en hún var
stöðvuð af dyravörðum
hússins, þá aðeins á nær-
buxum einum f ata.
Varð hún ókvæða við og
taldi að með þvi að leiða sig
í burtu væru þeir að svipta
hana virðingu sinni...”
Dagur til
vinstri
Nú er Dagur á Akureyri
orðinn að dagblaði, eins og
heimsfrægt er orðið. Væntu
tryggir lesendur og stuðn-
ingsmenn blaðsins þess að
einhverjar breytingar yrðu
á því á þessum merku tíma-
mótum.
En nú segja árvökulir að
cina breytiugin sem orðið
hafi á blaðinu sé sú að haus
þess hafi verið færður til
vinstri.
Það er kannski engin til-
viljun að forsíðufyrirsögn
fyrsta blaðsins eftir breyt-
Hinn dagkgí Dagur, mcð haus-
inn iil vinstri.
ingu skuli vera: „Þetta er
afarviðkvæmtmái”.
Göturnar i Kópavogi hafa
lengi verið sérstakur kapí-
tuli i bæjarlifinu þar.
Margar þeirra voru á sín-
um tíma „teppalagðar"
mcð oliumöl yfír pollana og
án undirbyggingar. Teppið
seig svo hér og þar, bólgn-
aði anuars staðar eða hrein-
lega sprakk. Þannig var
komið í veg fyrir allan hrað-
akstur, enda hefur hann
ekki verið stórvægilegt
vandamál í bænum.
Smám saman cru Kópa-
vogsgötur þó að brcytast til
samræmis viö venjulegar
götur i þéttbýli. Og þá hafa
greinilega vaxið áhyggjur
viðkomandi yfirvalda af
stórhættulegum hraöakstri.
Þess vegna var Borgar-
holtsbrautinni lokaö um
næstsíðustu helgi og tvær
gangbrautir lagðar bungu-
malbiki með iniklum túþríf-
um. Arkitektar að bungun-
um hafa greinilega haft
hagsmuni bæjarvinnunnar i
huga. Á miðvikudaginn fór
nefnilega aö rigna og á
fimmtudaginn var nóg að
gera með loftpressu við að
brjóta regnvatni lelðir
gegnum nýmalbikaðar
bungurnar.
Hagkaup fékk hcldur en
ekki auglýslnguna síðastlið-
innmiðvikudag.
Þann sama dag var sjón-
varpað í beinni útsendingu
leik tslendinga og Spán-
verja í Sevilla á Spáni.
Lciknum var vitaskuld
einnig sjónvarpað á Spáni
en á völlinn komu um 50.000
manns.
Svo geröist það í miðjum
leik að Pétur Pétursson
slasaðist og lá hreyflngar-
laus á vcllinum. Þá þustu til
íþróttaþjálfari og læknir.
Annar hélt á rækilcga
merktum Hagkaupspoka
sem allt í einu fyllti skjáinn
eins og skrattinn úr sauðar-
leggnum.
Ekki dónateg auglýsing
það!
Prófkjörs-
fiðringur
Nú er farið að styttast í
prófkjör sjálfstæðismanna
fyrir borgarstjórnarkosn-
ingarnar í Reykjavik í vor.
Enn hef ur ekki vcrið endan-
lega ákveðið hvcnær það fer
fram, en rætt er um 24.-25.
nóvember næstkomandi.
Arni Sigiússon.
Margir hafa verið nefndir
sem fulltrúar yngri manna
ftokksins í prófkjörsslag-
inn. En þar ber einna hæst
nafn Árna Sigfússonar,
fyrrverandi formanns
Heimdallar og núverandi
framkvæmdastjóra Full-
trúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna i Reykjavík.
Árni hefur stundað nám
í opinberri stjórnun við há-
skóla i Tennessce í Rauda-
rikjunum. Hann hefur nú
lokið námi, eftir tveggja
ára puð. Telja kunuugir að
Árni njóti mikiis stuðnings
fari hann i framboð í próf-
kjörinu.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir.
I
4!
i
i
1
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
| HÁSKÓLABIÓ — AMADEUS ★ ★ ★ ★ 1
KVIKMYND SEM HRIFUR
Amadeus.
Leikstjóri: Milos Forman
Handrit: Peter Shaffer eftir eigin leifkriti.
Kvikmyndun: Miroslav Ondricek.
Aðalleikarar: F. Murray Abraham og Tom Hulce.
Leikrit Peters Shaffer hafa ekki
fengið góða meðhöndlun í kvikmynd-
um. Equus og The Royal Hunt Of The
Sun eru, þrátt fyrir að hæfileikamikl-
ir leikstjórar hafi stjórnað þeim,
misheppnaðar kvikmyndaútgáfur af
góðum leikritum. Svo er ekki farið
með Amadeus. Sjálfur hefur Peter
Shaffer tekið að sér að gera handrit
eftir þessu fræga leikriti sínu og svo
síðast en ekki síst gefur tónlist Moz-
arts margfalt meiri möguleika í
kvikmyndaformi.
Saman hafa þeir Milos Forman og
Peter Shaffer gert ógleymanlega
kvikmynd um snillinginn Mozart og
höfuöandstæðing hans, Antonio
Salieri. Amadeus byggist að mestu
leyti á þeim sögusögnum sem voru í
gangi snemma á nítjándu öld um aö
Salieri heföi orðið Mozart að bana
vegna sjúklegrar afbrýðisemi.
Myndin byrjar á geðveikrahæli
þar sem Salieri dvelur flestum
gleymdur og heldur hann því fram
við prest, sem kominn er til að taka
við syndajátningu frá honum, að
hann hafi drepið Mozart. Fer hann
að rekja sögu sína um aðdragand-
ann.
Salieri er hirðskáld Austurríkis-
keisara. Þegar hann heyrir tónlist
Mozarts finnur hann til smæöar
sinnar sem tónskáld. Það sem fer
samt verst meö hann er að Mozart er
duttlungafullur flagari og sjálfs-
traustiö uppmálað. Salieri getur
ekki skilið að svo lítilf jörlegur maður
skuli fá að gjöf þá náðargáfu að geta
Tom Hulce hlaut ekki óskarsverð-
launin, en hann skilar samt hlut-
verki sinu frábærlega.
samið tónlist sem gerir hans eigin
tónlist að ómerkilegu tónaflóði.
Smám saman eykst öfund Salieris í
garð Mozarts sem kemur með hvert
snilldarverkið á fætur öðru. Salieri,
sem á yfirborðinu þykist vera vinur
Mozarts, kemur því til leiöar ásamt
vinum sinum aö verk Mozarts eru
lítið leikin.
Brátt tekur að sækja á hann sú
hugmynd að hann muni ekki fá frið
fyrr en Mozart sé allur og skipu-
leggur hann morðið á Mozart í
smáatriðum....
Amadeus er mikið sjónarspil.
Fléttað er saman atriðum úr
þekktum óperum Mozarts við
magnaðan söguþráðinn. Aðeins
fannst mér Amadeus vera farinn að
þreyta mig með öllum skarkalanum í
seinni helmingi myndarinnar. En sú
yfirkeyrsla gleymdist fljótt við hin
stórkostlegu endaatriði myndarinn-
ar.
Samkvæmt fyrirmælurn
hans að sálumessu
I lokaatriðunum nær Amadeus
hámarki. Mozart, þjáður á líkama og
sál, biður Salieri að skrifa nótur og
Salieri finnst sem hann nálgist
meistarann með aö fá að skrá nótur
hans. Þetta er atriði sem seint
gleymist. Og í lokin, þegar Salieri
hefur lokið sögu sinni, hefur
presturinn löngu gleymt til hvers
hann kom og situr dolfallinn eftir
meðan Salieri er keyrður í hjólastól á
gangi geðveikrahælisins heilsandi
sjúklingum á báðar hendur. Þessi
atriði gera það að verkum að áhorf-
andinn finnur að hann hefur séð eitt-
hvað sem ekki verður endurtekið.
Það reynir mikið á aðalleikarana
tvo og þótt þeir F. Murray Abraham
og Tom Hulce sýni báðir stórbrotinn
leik í hlutverkum sinum þá er
skiljanlegt hvers vegna F. Murray
Abraham fékk óskarsverðlaunin en
ekki Tom Hulce.
Hlutverk Salieris er fyrst og
fremst stærra og alvarlega. Það er
alltaf stutt í gamansemina hjá
Mozart og allur húmor myndarinnar
er kominn frá honum. Tom Hulce
gerir hlutverkinu virkilega góð skil
en það er Salieri sem er miðdepill
myndarinnar og F. Murray
Abraham tekst aðdáunarlega vel að
sýna þennan aumkunarverða
einstakling.
Milos Forman hefur gert stór-
brotna kvikmynd sem á fyllilega
skiliö öll þau óskarsverðlaun sem
hún hefur fengið og er samanburðar-
hæf við hans bestu mynd hingaö til,
Gaukshreiðrið. Hilmar Karlsson.
* * * * Frábær ★ ★ ★ Góð ★ ★ Miðlungs ★ Léleg O Afleit