Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1986, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1986, Page 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR1986. 5 Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Hagstæð kjör hjá ríkinu Fjármálaráðherra, Þorsteinn Páls- son, hefur beðið Fasteignamat ríkis- ins að kanna hvort kaupverð á lækn- isbústaðnum í Borgamesi hafi verið eðlilegt miðað við markaðsverð þar. Ráðherrann svaraði í gær fyrir- spum Eiðs Guðnasonar, Alþýðu- ílokki, um þessi kaup. í svarinu kom fram að gerður hefði verði kaup- samningur vegna þessara kaupa 7. nóvember á síðasta ári. Það var stjóm heilsugæslustöðvarinnar sem tók ákvörðun um kaupin með fyrir- vara um samþykki heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneytisins. Fjár- málaráðuneytið fékk hins vegar ekki formlega upplýsingar um þessi kaup fyrr en 21. janúar. í fjárlögum var ekki gert ráð fyrir þessum kaupum en í meðferð fjárlaga var samþykkt heimild fyrir þeim. Keypt var fasteignin Dílahæð 3 sem er 180 fermetra einbýlishús. Kaupverð þess var 4,3 milljónir króna og greiðist það að fullu á einu ári. Eiður Guðnason sagði að einkenni- lega hefði verið að þessum kaupum staðið. Ekki hefði verið auglýst eftir húsi og hann hefði gmn um að tölu- vert langur tími hefði liðið þar til íjármálaráðuneytinu var kunnugt um þessi húsakaup. Það kom fram í máli fjármálaráð- herra að stefiit væri að því að sam- ræma allar fjárfestingar á vegum ríkissjóðs og ekki yrði ráðist í þær nema í samræmi við gerðar áætlanir. _ -APH Frumvarpum kostnaðarhlut: Hlutur útgerðar- , innar skerðist 85 milljónir Lagt hefúr verið fram frumvarp á Alþingi til staðfestingar þeim breyt- ingum á kostnaðarhlut útgerðarinn- ar sem ákveðinn var við síðustu fiskverðshækkun. Þá var ákveðið að auka þann kostnaðarhluta sem kemur til skipta um 2,5% fyrir skip sem landa innan- lands og um 1% fyrir skip sem landa erlendis. Þessi ákvörðun var tekin í ljósi þess að gasolíuverð lækki 1. mars um 7% og síðan um 3% 15. mars. í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að hver 5% lækkun á olíuverði lækkar útgerðarkostnaðinn um 120 milljónir króna á ári. Með þessum breytingum, sem ákveðnar hafa verið í sambandi við fiskverðsákvörðun- ina, skerðist hins vegar kostnaðar- hlutur útgerðarinnar um einar 85 milljónir á ári. -APH Úrval vid allra hœfi Guðrún Helgadóttirþingmaður: „Ekki réttað sækja kjarabætumar íríkiskassann „Okkur þingmönnum finnst það furðulegt að það sé verið að ráð- stafa fjármunum úr ríkiskassanum í Garðastræti sem Alþingi hefúr hvergi komið nærri. Á sama tíma erum við að reyna að kría út nokkrar milljónir í þörfustu mál- efni en í Garðastræti er verið að tala um milljarða. Mér er engin launung á því að mér finnst þetta vera kyndug vinnubrögð,“ sagði Guðrún Helgadóttir, þingmaður Alþýðubandalagsins, í viðtali við DV. Hún gerði þetta að umtalsefni á miðstjómarfúndi flokksins á dögunum og gagnrýndi verkalýðs- forystuna fyrir að vera bendluð við þessi vinnubrögð. „Það er nýlunda að kjarabætum- ar séu allar sóttar í okkar ríkis- kassa og atvinnurekendum gefið frí. Ég benti á það á þessum fundi umar um 23 prósent á föstu gengi. að árið 1985 jukust útflutningstekj- Sú var tíðin að Sjálfstæðisflokkur- Guðrún Helgadóttir þingmaður. inn taldi að laun ættu að aukast í takt við útflutningstekjumar. Og þegar þær hafa aukist um fjórðung finnst mér tími til kominn að launafólk fái eitthvað af þeirri köku í stað þess að sækja kjarabæ- tumar beint i ríkiskassann sem launþegar sjálfir halda uppi. Ég er ekki ein um þessa skoðun og ég veit um að margir stjórnar- þingmenn em undrandi yfir þeim vinnubrögðum sem nú em viðhöfð í sambandi við kjarasamningana. Ég vil leggja á það áherslu að það dugir ekkert annað en að auka kaupmáttinn og tryggja launin. Ég fagna auðvitað úrbætum í hús- næðismálum en það em fyrst og fremst launin sem verður að lag- færa,“ sagði Guðrún Helgadóttir. -APH —II tilSviss íslenska handknattleiksliðið valdi sér Svala til hressingará heimsmeistara- mótið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.