Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1986, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1986, Blaðsíða 22
22 DV. MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRUAR1986. Iþrótlíir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Haan stjómar Anderlecht í Víkingspeysu Hollenski landsliðskappinn Arie Haan, sem er framkvæmdastjóri Anderlecht í Belgiu, tók í vetur ástfóstri við æfmgaskyrtu sem er með Víkingsmerkinu í. Hann stjórnaði Antwerpen í þeirri peysu og að sjálfsögðu tók hann peysuna með sér til Anderlecht þegar hann tók við stjórninni af Paul van Himst. Það má þvi segja að það séu tveir Vikingar í herbúðum And- erlecht - Haan og Arnór Guð- johnsen, fyrrum leikmaður Vík- ingsliðsins. Hér á myndinni má sjá peysuna góðu sem er með Víkingsmerkinu i. -SOS Barron til Akraness frá Kanarí Englendingurinn Jim Barron,. sem mun þjálfa Skagaliðið í sumar, er væntanlegur til lands- ins fljótlega. Eftir að Barron, fyrrum markvörður Nottingham Forest, gekk frá samningum við Skagamenn á dögunum fór hann til Kanarieyja með fjölskyldu sína til að slappa af fyrir átökin á ís- landi. Barron kemur því hress og endurnærður frá Kanarí - upp á LeHturfær liðstyrk Leiftur frá Ólafsfirði hefur feng- ið góðan liðstyrk fyrir 3. deildar- keppnina i knattspyrnu. Þorvald- ur Jónsson, sem hefur leikið i markinu hjá KA, hefur á ný geng- ið til liðs við Leiftur. Þá hefur Óskar Ingimundarson, fyrrum markaskorari úr KA og KR, gerst þjálfari og leikmaður með liðinu. Þriðji nýi leikmaðurinn, sem Leiftur hefur fengið, er Ólafur Björnsson sem lék með Njarðvík. -SOS Stund milli stríða. - Stofnfundurinn var haldinn í miðjum klíðum íslandsmótsins í innanhússknattspyrnu sem fór fram sl. helgi. Voru því fundarmenn víða að komnir. (DV-myndHH). Stúlkur úr öllum 1. deildar félögun- um í knattspyrnu hafa stofnað með sér samtök um kvennaknattspyrnu. Á stofnfundinum, sem haldinn var í Laugardagshöll sl. sunnudag, sagði Ragnhildur Skúladóttir, Val, stjórn- andi þessa fyrsta fundar, að meining- in með þessu væri að efla íslenska kvennaknattspyrnu í landinu. „Okk- ur hefur vantað samstöðu fram að þessu en nú verður breyting á,“ sagði hún. Fyrsti formaður félagsins var kjör- inn Karólína M. Jónsdóttir úr KR. Hinn nýkjörni formaður sagði í samtali við DV að hlutverk félagsins yrði margþætt því að í mörg horn væri að h'ta. Hún nefndi í því sam- bandi siðlausa ákvarðanatöku stjórnar knattspymudeildar Víkings um að leggja niður kvennaknatt- spyrnu innan félagsins án þess að hafa nokkurt samband við stúlkurn- ar. Hið nýstofnaða félag mun í fram- Á myndinni eru, frá vinstri: Arna Steinsen, mfl., leikmaður úr KR, Ragnhildur Skúladóttir, Val, fundarstjóri, og Karólína M. Jónsdóttir, KR, formaður hinna nýstofnuðu samtaka. (DV-mynd HH). FÍKK- nýstofnuð samtök um knattspymu kvenna tíðinni taka afstöðu til slíkra mála. nafnið Félag íslenskra knattspyrnu- Hún sagði m.a. að ærin verkefni Hvert 1. deildar félag á einn fulltrúa kvenna (FÍKK). væru framundan og árnaði hinu íframkvæmdastjóm. Svanfríður Guðjónsdóttir, stjórn- nýstofnaða félagi heilla. Hinu nýja félagi hefur verið gefið armaður í KSÍ, sat stofnfundinn. -HH. Gylfi og Held austur fyrir Berlínarmúrinn - til að semja um leikdaga í Evrópukeppninni Sigfried Held, landsliðsþjálfari íslands, og Gylfi Þórðarson, for- maður landsliðsnefndar KSI, fara austur fyrir járntjald í mars. Þeir fara til Austur-Berlínar 10. mars til að semja um leikdaga Islands í Evrópukeppni landsliða. Mótherjar íslands í EM eru Rússar, A-Þjóðverjar, Frakkar og Norðmenn en íslendingar hafa áður leikið gegn öllum þessum þjóðum í undankeppni EM eða HM. Held, sem er 44 ára, lék með landsliði V-Þjóðverja í HM í Eng- landi 1966 og í Mexíkó 1970, eins og hefur komið fram. Hann varð Evrópumeistari bikarhafa þegar hann lék með Dortmund 1966. Dortmund vann sigur, 2-1, yfir Liverpool í úrslitaleik sem fór fram í Glasgow. Held skoraði þá fyrsta mark leiksins en Dortmund vann síðan á sjálfsmarki Yeats í fram- lengingu. Þess má geta að Held hefur haft mikið að gera að undanförnu. Hann hefur verið að horfa á lands- leiki íslands undanfarin ár á mynd- böndum. Þannig hefur hann fengið tækifæri til a_ð sjá alla bestu knatt- spyrnumenn íslands í leik. -SOS. Sigfried Held. Gylfi Þórðarson. HM-lið Uiuguay vildi fá leik á Islandi -æfingaleikfyrir HM-keppnina í Mexíkó Heimsmeistaralið Uruguay vildi ferð i Evrópu. Uruguay, sem leikur í sinni, gegn Norðmönnum, N-írum og koma til íslands og leika hér vináttu- riðli með V-Þjóðveijum, Skotum og Svisslendingum. leik 20. apríl, á leið sinni frá keppnis- Dönum, leikur þrjá leiki i Evrópuferð ^gj t j orðjð við ósk Urugu- ay-manna þar sem grasvellir hér á landi eru ekki tilbúnir á þessum tíma og þá er erfitt að kalla saman sterk- ustu landsliðsmenn íslands sem eru að leika með félögum sínum. Uruguay undirbýr sig nú á fullum krafti fyrir HM en landsliðið er nú í þriðja sæti hjá veðmöngurum yfir sigurstranglegasta landsliðið í HM. Brasilíumenn eru í fyrsta sæti og svo köma Argentínumenn. ____ -SOS. Einherji í æfingabúðir -tilFæreyja Leikmenn 2. deildarliðsins Ein- Verða þeir í viku á Suðurey og leika heija frá Vopnafirði eru ákveðnir þijá leiki i Færeyjum. Þjálfari Ein- að undirbúa sig vel fyrir knatt- heija er Njáll Eiðsson, fyrrum spyrnutímabilið. Þeir halda í æf- landsliðsmaðurúrKAogVal. ingabúðir til Færeyja um páskana. -SOS .. ..IWW—WIU'... v..n . ..u ....—..

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.