Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Side 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
Fréttir
Akureyri:
Peningaskáp með
miklum verðmæt-
um stolið
Gylfi Kxistjánsson, DV, Akureyri:
Peningaskáp meö miklum verö-
mætum var stolið er brotist var inn
í Shellnestið við Hörgárbraut á
Akureyri aðfaranótt sunnudags.
Ekki er Ijóst hvenær nætur inn-
brotið var framið en það kom í ljós
klukkan fimm um morguninn er
vaktmaður frá Securitas kom að
húsinu.
Farið hafði verið inn um glugga
á skrifstofu fyrirtækisins og pen-
ingaskápurinn, sem vegur um
fimmtíu kíló, tekinn. í honum voru
verðmæti upp á hundruð þúsunda,
mest greiðslukortakvittanir, víxlar
og fleiri skjöl sem nýtast þjófnum
ekki. Skápurinn er þess eðhs aö
ekki er hægt að opna hann með
logsuðutækjum án þess að brenna
innihaldið. Því er ljóst að þjófurinn
mun ekki hafa nein not af þeim
verðmætum sem í honum voru.
Lögreglan á Akureyri biður alla
þá sem urðu varir við mannaferðir
nærri innbrotsstaönum að hafa
samband við sig. Pétur Bjarnason,
eigandi Nestis, segir fólk einnig
geta leitað til sín með upplýsingar.
Slökkviliðið í Reykjavík:
Nokkur útköll en Irtið tión
Slökkviliðiö i Reykjavík var kallaö
nokkrum sinnum út um hvítasunnu-
helgina. Tjón voru minni háttar í
öllum tilfellum. Klukkan hálfsex á
laugardag kviknaði í tjörupappa í
nýbyggingu heilsugæslustöðvar við
Hraunberg. Mikinn svartan reyk
lagði frá eldinum. Fjórir reykkafarar
fóru inn og slökktu eldinn. Eldsupp-
tök eru talin hafa veriö íkveikja.
Um klukkan 18:30 fór brunavama-
kerfi Kleppsspítala í gang. Þar hafði
ofn ofhitnað. Skömmu áður hafði
brunavarnakerfi í húsi Hitaveitu
Reykjavíkur við Grensásveg farið í
gang vegna bilunar. Seinni hluta
sunnudags kviknaöi eldur í heyi á
vörubílspalli. Vörubíllinn var viö
Rauðavatn þegar óhappið varð. Lík-
legt er að eldurinn hafi kviknað út
frá pústkerfi bílsins. Greiðlega gekk
aö slökkva eldinn. Á sama tíma var
tilkynnt um eld í óskráðri bifreið við
írabakka. Þegar slökkvilið kom á
vettvang var bíllinn alelda. Hann
mun vera ónýtur.
í gærmorgun kviknaði eldur í feiti-
potti í Bleika pardusnum við Hamra-
borg. Eldurinn var slökktur með
dufttæki og slökkviliðið reyklosaöi
síðan veitingastaðinn.
-sme
Akureyrarkirfga:
Söfnunarbaukur brotinn upp
Gylfi Kris^ánssan. DV, Akureyri:
Hópur fólks lagði leið sína inn í
Akureyrarkirkju aðfararnótt
sunnudags. Fólkið virðist hafa átt
greiða leiö ixm í kirkjuna því hún
var ólæst.
Ekki voru unnar neinar
skemmdir í kirkjunni aörar en þær
að söfhunarkassi í anddyrinu var
brotinn upp og peningum sem voru
í honum stolið. Lögreglan kom
stuttu síðar á vettvang og handtók
nokkra aðila vegna þessa máls.
Þá var brotist inn í afgreiöslu
Bifreiðastöðvarinnar Stefnis á Ós-
eyri og stolið þaöan á milii 30 og
40 þúsund krónum í peningum.
Kolbeinshausinn úti fyrir Skúlagötu er að hverfa undir uppfyllingu. Hug-
myndir voru uppi um að steypa nýjan en engar ráðagerðir eru um slikt núna.
DV-mynd GVA
Kær var mér
Kolbeinshaus
- segir Pétur Pétursson þulur
„Kær var mér Kolbeinshaus og það
setur að manni trega þegar hann
hverfur,“ sagði Pétur Pétursson,
fyrrverandi útvarpsþulur, í samtali
við DV en Kolbeinshausinn hverfur
á næstu dögum vegna uppfyllingar.
Pétur og Jón Múli Ámason minnt-
ust stundum á hausinn þegar þeir
voru viö þularstörf í gamla útvarps-
húsinu þar sem Kolbeinshausinn
blasti við.
Pétur tók þessu þó með jafnaðar-
geði og tók sér í munn orð Steins
Steinarr: „Það bjargast ekki neitt.
Það ferst, það ferst. Viö erum búin
að horfa á eftir fleiri steinum sem
margar minningar tengjast. Til
dæmis eru Kríusteinninn við Ný-
lendugötuna og Ufsakletturinn sem,
var í Selsvörinni, báðir horfnir.
„En þurfum við nokkurn Kolbeins-
haus? Bankarnir eru búnir að setja
þjóðina á hausinn og í staðinn fyrir
Kolbeinshaus kemur Nordalshaus."
-JBj
Álverið:
Tekur langan tíma að
komast á fullan skrið
segir Om Friðriksson tmnaðarmaður
Ástand í álverinu færist smám
saman í eðlilegt horf eftir að bráða-
birgðalög voru sett á. Því heyrðist
fleygt um helgina að starfsmenn skil-
uðu ekki eðlilegum vinnuafköstum
eftir að þeir hófu störf á ný. En að
sögn Arnar Friðrikssonar trúnaðar-
manns mun ekkert vera til í þeim
orðrómi. „Það tekur nokkrar vikur
að ná upp fullri framleiðslu á ný. Það
er ekki kominn fullur straumur inn
á kerin enn. Síöustu vikurnar hefur
verið hægt smám saman á starfsem-
inni og það tekur langan tíma að
komast á fullan skrið,“ sagði Örn. í
dag mun samninganefndin setjast á
fund og kanna stöðuna.
-gh
I dag mælir Dagfari_____________
Barið á bónkum
Jón Baldvin unni sér engrar hvíld-
ar yfir hvítasunnuna, hann dró
bankamenn úr hlýjum bólunum og
skipaöi þeim að glugga í gjaldeyris-
bækur sínar og það tafarlaust.
Þetta gerði hann þó ekki í nafni
fjármálaráöherra heldur sem sett-
ur viðskiptaráðherra í fjarveru
Jóns Sigurössonar. Jón Baldvin
gegnir þá væntanlega störfum
kirkjumálaráðherra líka en þaö
breytir engu um að hann skipaði
mönnum til verka á hvítasunnu-
dag.
Þessi töm Jóns Baldvins við-
skiptaráöherra byijaði á laugar-
dagsmorgun er hann messaði yfir
gestum í Múlakaffi. Beindi hann
ekki síst spjótum sínum aö Seðla-
banka sém hafði láöst aö geta um
hveijir keyptu erlendan gjaldeyri
fyrir 1400 milljónir síðustu þijá
dagana fyrir gengisfellingu. Ráö-
herra veifaði bréfi bankans þar
sem aðeins var tilgreint hvaða aðil-
ar keyptu samtals fyrir 1.100 millj-
ónir. Hvar eru þær fjórtán hundruð
milljónir sem vantar á 2.500 millj-
ónir sem sagt er að hafi runnið út
á þrem dögum en gengið var fellt
í framhaldi af því? Það vissugestir
í Múlakaffi ekki og horfðu skömm-
ustulegir niður í bolla sína. En ráð-
herra gaf skýringu á þessu: Bank-
arnir höfðu borgað skuldir sem
þessu nam en Seðlabankinn ekki
talið þörf á að greina ráðherra frá
því um hvaöa skuldir væri að ræða.
Hins vegar væri af og frá að Seðla-
bankanum skyldi verða kápan úr
því klæðinu að halda hlífiskildi yfir
bönkunum. Og ráðherra sagðist
hraöa sér á kontórinn og skrifa
Seðlabanka nýtt bréf, ef fundar-
menn væru því samþykkir, sem
þeir voru. Ræðan í Múlakaffi var
hvalreki á fjörur fjölmiðla sem
höfðu úr litlu að moða þennan
laugardag. Þvi var Jón Baldvin
aðalnúmer í öllum fréttatímum
allra fjölmiöla þann daginn. Nordal
leist ekki á blikuna og sendi fjöl-
miölum tilkynningu þess efnis aö
Seðlabankinn hefði látiö viðskipta-
ráðherra í té þær upplýsingar sem
hann hefði beðið um. Það þurfti því
enn að ná tah af ráöherra sem fuss-
aði og sveiaði og sagði þessa til-
kynningu Nordals hárjoganir og
ekkert annað. En vegna ágangs
fjölmiöla allan laugardaginn komst
ráöherra ekki í það að skrifa bréfið
fyrr en þá um kvöldið og lauk því
ekki fyrr en komið var fram á nótt.
Hvíldist svo um stimd en reis upp
tvíefldur á hvítasunnumorgun og
lét hraðboða hvata fór sinni til
heimilis seðlabankastjóra og af-
henda bréfið. Þar er krafist skýr-
inga á 1.400 milljóna gjaldeyris-
austri bankanna og skipun gefin
um að þessar upplýsingar skuli
komnar á skrifborð ráðherra í bítiö
á þriðjudagsmorgun. Kom nú
nokkurt fát á bankamenn því að
fresturinn var stuttur. Og það er
nú svo að þótt bankamir séu skot-
fljótir að finna stöðu viðskiptavina
sinna í tölvunum finu þá gegnir
nokkuö öðru máli um fjárrreiður
bankanna sjálfra, enda um öllu
flóknari viöskipti að ræða, eins og
allir hljóta aö skilja. Bölvandi yfir
þessari afskiptasemi ráðherrans
sátu þeir svo með sveittan skallann
alla helgina við aö reyna aö finna
út hvað sjóða mætti saman varö-
andi þessar fjórtán hundruð millj-
ónir. Þótt bankamenn vinni 13
mánuði á ári meðan aðrar stéttir
vinna 12 þá eru þeir óvanir helgar-
vinnu og sóttist því verkið seinna
en ef þeir hefðu til dæmis haft 13.
mánuð ársins til verksins. En mest
gramdist þeim þó þessi hnýsni ráð-
herrans. Af hVerju skyldu bankar
ekki mega maka krókinn á yfirvof-
andi gengisfellingu eins og allir
aðrir? Er ekki hver sjálfum sér
næstur í 'þessu sem öðru? En það
var engin miskunn hjá Jóni Bald-
vin enda Jón Sigurðsson væntan-
legur heim hvaö úr hveiju og hætt-
an á að hjólin færu að snúast hæg-
ar þegar hann væri aftur tekinn
við sem ráöherra banka- og við-
skiptamála. Það var því víða unnið
fram eftir í bönkum í gærkvöldi,
skýrslum flett, tölvur voru rauð-
glóandi og pappírum raðað. Það
veröur fróðlegt að sjá útkomuna.
Kannski það komi í ljós að útflytj-
endur, sem sífellt voru að jarma
um þörf á gengisfellingu og lýstu
því yfir hver á fætur öörum að fyr-
irtæki þeirra væru komin í þrot,
hafi eftir allt saman verið gerðir
út af bönkunum. En hvaö sem því
líöur hafa tilþrif Jóns Baldvins
vakið mikla athygli og raunar ekki
ólíklegt að hann hafi haft það bak
við eyrað þegar hann lét gamminn
geisa í Múlakaffi með svo eftir-
minnilegum hætti.
Dagfari