Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
13
Sjálfstæðissinnar á Nýju Kaledóníu teknir til fanga í gær. Eru þeir grunað-
ir um þjófnað og morðtilraun.
' Simamynd Reuter
Handtökur á Nýju Kaledóníu
Bjami Hmriksson, DV, Bordeaux:
Á frönsku eyjunni Nýju Kaledóníu
ólgar enn og kraumar þrátt fyrir aö
sérstök sex manna sendinefnd Mic-
hels Rocard, forsætisráöherra
Frakkiands, hafi nú í tæpa viku dval-
iö á eyjunni til aö rannsaka aðstæður
og fá hin andstæöu öfl til aö ræða
saman.
Eru það annars vegar innfæddir
og hins vegar Evrópubúar, flestir af
frönskum uppruna, en hvor hópur-
inn um sig er um helmingur eyjar-
skeggja.
í gær voru þrettán innfæddir hand-
teknir, grunaöir um þjófnaö, tilraun
til morðs og ýmislegs annars. Af
þeim var funm síðan sleppt en sjö
munu koma fyrir dómstóla, þar á
meðal eiginkona annars helsta leiö-
toga sjálfstæöishreyfingar inn-
fæddra.
í nótt skaut hermaður einn inn-
fæddan til bana er hann taldi aö lífi
sínu væri ógnað.
Ríkisstjórn Rocards lætur lítið eftir
sér hafa um ástandiö á Nýju Kaledó-
níu og bíður eftir skýrslu sendi-
nefndarinnar. Undanfarna daga hafa
birst í frönskum dagblöðum, sérstak-
lega Parísarblaðinu Le Monde, nýjar
upplýsingar um árásina 5. mai á hell-
inn á eyjunni Ouvéu, skammt frá
Nýju Kaiedóníu, þar sem aðskilnað-
arsinnar héldu í gíslingu tuttugu og
þremur lögreglumönnum. í árásinni
féllu nítján innfæddir og tveir her-
menn.
Nýju upplýsingarnar benda til að
árásin hafi ekki verið óhjákvæmileg,
möguleiki hafi verið á að semja og
að kosningahagsmunir Jacques
Chiracs, fyrrverandi forsætisráð-
herra, hafi ráðið ákvörðun yfirvalda
en árásin átti sér stað einungis þrem-
ur dögum fyrir seinni umferð for-
setakosninganna. Að auki er dauði
sumra sjálfstæðissinnanna talinn
miklu frekar hrein og klár aftaka en
að þeir hafi fallið í bardaga.
Menn innan hersins rannsaka
þetta mál og víst er að ekki eru öll
kurl komin til grafar.
í Moskvu má sjá þessa dagana sovéska og bandaríska fána útstillta í til-
efni leiðtogafundar stórveldanna sem hefst um næstu helgi.
Símamynd Reuter
Enn deilt um afvopn-
unarsamninginn
Ekki er ljóst hvort Reagan Banda-
ríkjaforseti hefur með sér til Moskvu
samning um útrýmingu meðal-
drægra kjamavopna staðfestan af
Bandaríkjaþingi. Umræðurnar um
samninginn fara enn fram í öldunga-
deildinni. George Shultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, hitti um
sextán þingmenn öldungadeildar-
innar í gær og sagði hann eftir fund
sinn með þeim að ef ekki tækist að
fá samninginn staðfestan áður en
Reagan og Gorbatsjov hittast um
næstu helgi myndi það slæva ánægju
manna með leiðtogafundinn.
Reagan Bandaríkjaforseti og Gor-
batsjov Sovétleiðtogi undirrituðu í
desember síðastliðnum í Washington
samning um eyðingu meðaldrægra
kjamavopna og hefur öldungadeild
Bandaríkjaþings haft samninginn til
meðferðar síðan.
Sovésk þingnefnd mælti í gær með
staðfestingu samningsins en opin-
berir embættismenn sögðu að loka-
ákvörðunin væri háð aðgerðum öld-
ungadeildar Bandaríkjaþings. Reag-
an leggur af stað til Helsinki á mið-
vikudagsmorgun og heldur áfram til
Moskvu á sunnudaginn. Talið er
mögulegt að samningurinn verði
ekki staðfestur fyrr en á mánudag-
inn. í Helsinki mun Reagan ræða við
Mauno Koivisto forseta, Harri Hol-
keri forsætisráðherra og Kalevi
Sorsa utanríkisráðherra. Ekki er
heldur tahð útilokað að komið verði
á fundi Reagans og jólasveinsins því
að Reagan er sagður hafa spurt Hol-
keri að því í Washington hvort
Sveinki vaeri á ferðinni á sumrin
líka.
Útlönd
Stúdentar réðust á
menningarstofnun
Bandaríkjanna
Hópur róttækra stúdenta í Suöur-
Kóreu réðst í gær á menningarstofn-
un Bandaríkjanna í borginni
Kwangju og varpaði að henni eld-
sprengjum.
Um eitt hundrað stúdentar tóku
þátt í aðgeröunum fyrir utan menn-
ingarstofnunina og tókst þeim að
varpa nokkmm bensínsprengjum að
byggingunni áður en óeirðalögreglan
dreifði þeim með táragasi.
Árásin olli engum skemmdum á
eignum og engan starfsmann stofn-
unarinnar sakaði. Heimildir herma
hins vegar að fjórir lögreglumenn
hafi meiðst í átökunum sem fylgdu í
kjölfarið.
Fyrr um daginn kom til harðra
átaka milli um tvö þúsund stúdenta
og sveita óeirðalögreglu eftir að stúd-
entamir efndu til minningarathafn-
ar um þá sem féllu í Kwangju-upp-
reisninni fyrir átta árum. Taliö er
aö nær tvö hundruð manns hafi fall-
ið þegar uppreisnin var bæld niður
og hafa undanfama daga orðið mikl-
ar óeirðir í Suður-Kóreu vegna þess
að fólk hefur safnast saman til að
minnast hinna fóllnu.
Stúdentarnir höfðu efnt til minn-
ingarathafnar við háskólann í
Chonnam.
Róttækir stúdentar hafa undan-
farna daga ráðist að fleiri miðstöðv- um að koma í veg fyrir að Kórea
um Bandaríkjamanna í Suður- sameinist að nýju í eitt ríki í stað
Kóreu. Saka þeir Bandaríkjamenn þess að vera áfram skipt í tvennt.
Lögreglumenn stökkva yfir eld eftir bensínsprengjur sem stúdentarnir beittu
í átökunum við þá. Simamynd Reuter
Ódýr sérfargjöld
tll spennandi borga
með spennandi
flugfélagi
Áætlunarflug SAS teygir anga
sína víða. Aþena, Lissabon,
Barcelona, Madrid, Malaga,
Milano, Róm, Nice, París,
Briissel, Vín, Búdapest,
Istanbul, Tel Aviv, Stuttgart og
Moskva eru spennandi
áfangastaðir sem þú getur
ferðast til á ódýrum sérfar-
gjöldum SAS.
SAS er þekkt fyrir góða
þjónustu við farþega sína og þér
líður vel um borð hjá okkur.
Með SAS kemstu örugglega á
áfangastað — hvert sem er!
Allar nánari upplýsingar færðu
á ferðaskrifstofum og hjá SAS,
símar 21199 og 22299.
S4S
Laugavegi 3, símar 21199 / 22299