Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Side 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
Spumingin
Telur þú að stjórnin muni
sitja út kjörtímabilið?
Magnús Halldórsson: Nei, þetta er
engin stjórn til þess að sitja út kjör-
tímabilið.
Edda Hámundardóttir: Nei, hún
hrekkur upp af í haust.
íris Gunnarsdóttir: Nei, ég held ekki.
Ásgrímur Guðmundsson: Já, ég
reikna með því.
Jón Víðir Njálsson: Já, ég held það,
en er ekki ánægður með hana.
Ingibjörg Einarsdóttir: Nei, ég myndi
halda ekki.
Lesendur
Refur, lax og minkur:
Hver á að tiyggja afkomu?
Jóhann Guðmundsson skrifar:
Ef ríkiö vill halda úti refarækt
þá verður að tryggja afkomu refa-
bænda næstu þijú árin!! - Eitthvað
svipað þessu var boðskapurinn
sem hljómaði á öldum ljósvakans í
gærkvöldi (miðvikudaginn 18. maí)
þegar viðtal var haft við fram-
kvæmdastjóra Sambands íslenskra
loðdýraræktenda.
Ég segi og meina; hér er nóg kom-
ið af svo góðu, nú stoppum við og
gerum dæmið upp. Ekki bara refa-
ræktina heldur hka þá ævintýra-
mennsku sem virðist blómstra í
þessum atvinnugreinum, ef svo má
nefna það sem hefur verið flokkað
undir aukabúgreinar, en er aö
verða eitt allsherjarfúafen í hönd-
um ýmissa fyrirtækja sem hafa
verið stofnuð utan um fiskeldi, aö-
allega lax.
Nú hefur refaræktin sungið sitt
síðasta og henni á ekki að koma til
hjálpar, hvað sem rauiar og tautar.
Aö hjálpa refaræktendum til að
fara yfir í minkaræktina yrði bara
eitt ævintýrið enn. Áætlaður
kostnaður við aöstoð við refabænd-
ur er metinn á 300 til 500 milljónir
„Minkurinn hefur unnið sér rétt til búsetu í landinu," segir m.a. í bréfinu.
- Verður minkastofninn nýttur til að útrýma laxaseiðum?
króna. Ekki er nú nákvæmninni Framleiðnisjóði lán. Hvaryrðislíkt
fyrir að fara! Síðan eigi að útvega lán tekið? Erlendis, aö sjálfsögðu.
En vel á minnst, lán, sem hver
greiðir svo? Auðvitaö við, skatt-
greiðendur, en ekki refabændur,
minkabændur eða laxeldismenn.
Ef rétt er að málum staðið á að
gera nákvæma úttekt á þessum
þremur búgreinum með tilliti til
framtíðarmöguleika þeirra. Refa-
ræktinni má að vísu sleppa, þar
sem hún virðist nú þegar hafa
sungið sitt síðasta, svo að ekki þarf
að eyða tíma í þá athugun.
Þá er það minkur og lax. Það er
þess virði að láta kanna nákvæm-
lega hvernig ástatt er um þessar
atvinnugreinar en verði útkoman
eitthvað svipuð og í refaræktinni,
sem er alls ekki ólíklegt, þá legg
ég til að minkastofninn verði nýtt-
ur skipulega til að útrýma laxaseiö-
um þeim sem hér eru til staðar svo
að ekki þurfi að koma til þess að
þeim þurfi beinlínis að henda.
Minkurinn hefur nú einu sinni
unnið sér fastan sess til búsetu í
landinu og hann á það inni hjá
okkur að hann fái góða máltíð und-
ir lokin - áður en hann fer á fram-
færi Framleiðnisjóðs.
Athugasemd frá fræðslu-
og skemmtideild Ríkis-
útvarpsins, hljóðvarps
Gunnar Stefánsson skrifar:
LOja Ó. Ólafsdóttir skrifar í les-
endabréfi DV16. maí um Sverri heit-
inn Kristjánsson sagnfræðing m.a.:
„Hefur það vakiö furðu mina hversu
lítið útvarpið hefur endurflutt sígild
erindi þessa gamla snillings...
Hvers vegna var Sverrir Kristjáns-
son ekki heiöraður sem skyldi á átt-
ræðisafmælinu, einn vinsælasti út-
varpsmaður allra tíma?“
Vissulega mætti gera meira af því
að endurflytja efni látinna útvarps-
manna sem vinsælda nutu á sinni
tíð. Sverrir Kristjánsson var tíður
gestur í dagskrá útvarps, en ekki er
fjarska mikið af efni hans varöveitt,
enda flutti hann oft erindi sín beint
í hljóðnemann.
Hins vegar var ákveðiö að heiðra
minningu Sverris í vetur í tilefni af
áttræðisafmæli hans og var það gert
á KVÖLDVÖKU12. FEBRÚAR. - Um
það var þá send til blaða svofelld
kynning sem sum blaöanna birtu:
„Á KVÖLDVÖKU á rás 1, klukkan
20:30, verður flutt hugleiöing Sverris
Kristjánssonar sagnfræðings, „Fög-
ur er hlíðin“. Sverrir les sjálfur og
er þetta upptaka frá árinu 1972.
Sverrir Kristjánsson lést 1976. Hann
Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur,
sem lést árið 1976. - Einn vinsæl-
asti útvarpsfyrirlesari þjóðarinnar
og alþýðufræðari um söguleg efni.
var á sinni tíð einn vinsælasti út-
varpsfyrirlesari þjóðarinnar og al-
þýðufræðari um söguleg efni.
í þessari hugleiðingu íjallar Sverrir
um Fljótshlíð, en þar dvaldist hann
löngum hjá bróður sínum, Klemens
Kristjánssyni á Sámsstöðum. Rit-
snilld Sverris nýtur sín ágætavel í
þessari frásögn sem er endurflutt til
að minnast höfundarins, en um þess-
ar mundir eru áttatíu ár frá því að
hann fæddist."
Þjónustuieysi í Hafharfirði:
Endðv nÍ77np iindnr
cngar piæur, vii^wi
pítur, engir ?,subs“!
óli Garðarson skrifar: borða, svo viö fórum bara og feng-
Maður hrópaði húrra. - Loksins um okkur kjúklingabita i staöinn,
myndum við fá pizzur í fjörðinn. eftir 2ja tíma biö þama.
Ég hef fariö nokkrum sinnum á En síðan, sunnudaginn 15. maí,
Bleika Pardusinn í Hafnarfirði, og förum við aftur á Bleika pardusinn
þvilík þjónusta! Alltaf eitthvert og ætluðum að reyna pizzumar -
vesen.Þaðerusvonatveirmánuðir en nema hvað! Því miöur, pizza-
síðan opnað var þaraa. Betur hefö- bökunarmeistarinn þeirra var ekki
um við sleppt húrrahrópunum. á staðnum og engar pizzur þann
Kvöldið sem Evrópusöngva- daginn! Allt í lagi, þá tökum við
keppnin var í sjónvarpinu ætluð- bara „subs“ í staðinn (langt brauð
um við aldeilis að gera okkur glað- með kjötfylhngu). Við fengum þaö,
an dag og fá okkur pizzu og horfa en ekki fyrr en eftir rúmlega hálf-
á Sverri og félaga á meðan. - En tíma. Á meðan við biðum heyrðum
því miður, pizzudeigið var búið! Þá við að þær sem voru á bak viö að
pöntuðum við okkur pítur og fran- steikja kölluðu fram til hinna: Þaö
skar. En vití menn, við biöum í 2 er bara eitt „sub“-brauð eftir
tíma, ótrúlegt en satt. Þegarviðsvo og pítubrauðin eru aö verða bú-
spuröum hvers vegna þetta gengi in.
svonaseint,varsvariö:Þaðerbara Ég hugsaði; Hvað fa þeir sem
svobijálaöaðgera(semviðauövit- koma á eftir? - Engar pítur til á
að vissum) - og svo hljóp kokkur- staðnum og klukkan rétt um hálf-
inn bara út, sögöu stelpurnar í af- átta á sunnudagskvöldi! - Já, þvilík
greiðslunni. þjónusta. Ég skora á eigendur
Allt í lagL Þetta var nú sá dagur, „Bleika og Dinos“ aö bæta þjón-
og mjög margir eins og við að fa ustuna á staðnum.
sér eitthvaö svona fljótlegt að
Kraftaverkamenn
Haraldur Guðnason skrifar:
Kraftaverk hafa oft gerst. Stein-
unn sagði líka í útvarpinu í morgun
að íslendingar séu kraftaverka-
þjóð. Fyrsta kraftaverkið sem ég
haföi spurnir af var þá er Jesú
breytti vatni í vín, sjálfsagt við
álíka fögnuð og lýðsins nú, þegar
„hið háa Alþingi“ skenkti okkur
áfenga bjórinn eftir sjötíu ára stríð
hinna bjórþyrstu. - Já, krafta-
verkamenn hafa verið uppi á öllum
tímum og eru enn.
Allir vita um Kristinn Finnboga-
son. Ekki þurftí annað en kalla
hann til þegar Tíminn var aö fara
á hausinn. Hann rétti óðara við
fjárhaginn. - Steingrímur Her-
mannsson er eiginlega krafta-
verkamaður. Sá og sigraði í Kefla-
víkinni, sem fáir trúðu fyrirfram.
Fór til ísraels á sínum tíma til aö
kenna þeim þar í landi að rétta við
bágan fjárhag. Og vill nú reyna að
koma vitínu fyrir þá Shamir og
Arafat
íhaldið má muna fífil sinn fegri.
Varla kvensterkir lengur. Flokkur-
inn átti mikinn kraftaverkamann,
Ólaf Thors, sem einn gat sameinað
alla broddana, þar sem hver og
einn togaði í sinn hagsmunaskæk-
il. - Næstur honum kom Albert,
sem byggði hallimar þeirra og var
vinur hinna stóru og smáu. Þá var
öldin önnur, er Gaukur bjó á Stöng.
Kratar eiga hka sinn krafta-
verkamann, Jón Baldvin. Hann
veit hveijir eiga ísland og hann
einn þorir, þorir að gera það sem
íhaldið þorir ekki, t.d. að leggja
sama skatt á fátæka og ríka. Sam-
kvæmt kokkabók Jóns sterka er
matarskatturinn mesta kjarabótin,
en það skilja íslendingar ekki.
Skatturinn jafnar tekjumuninn og
Jón er ,jafnaðarmaður“ eins og
alþjóð veit. - Þeir ríku éta nefnilega
dýrari graut en láglaunalýöurinn,
og það þýðir meira í kassa rósa-
riddarans. Því hærri matarskattur,
þeim mun betri kjör allra. Þess
vegna væri langbest að hafa matar-
skattínn Jóns sem hæstan.
Svo eru jafnvel stórkaupmenn að
spyrja: Er vitlaust gefið? Tala um
ofsköttun, of dýrt fjármagn og op-
inbera skriffinnsku. - Annað segir
Káta (krata) maskínan.
Alþýðubandalagiö (hálfkratar) á
eiginlega engan kraftaverkamann,
nema ef vera skyldi á heimsvísu.
Sá er nú farinn að tala eins og þeir
hörðustu í Garðastrætinu, - eða
svo segir Víglundur. - Kvennahsta-
menn hafa nú slegið íhaldinu við,
eiga þó engan kraftaverkamann
(eða kraftaverkakonu).
Nú bendir allt tíl þess, að bændur
(sunnlenskir, a.m.k.) hafi fengið
sinn kraftverkamann. Jón H. Bergs
hafði stjórnað Sláturfélagi Suður-
lands farsæhega í 31 ár. En svo
fundu bændur kraftaverkamann,
og Jón látínn taka pokann sinn.
Kraftaverkamaður bændanna er
ungur og efnilegur og ekki háir
honum minnimáttarkennd, eftir
ræðubútum hans á fundum að
dæma. Og hann getur svifið um
loftin blá. Hann gæti kannski slegið
tvær flugur í einu höggi, látið eitt
og eitt „íjallalamb" detta niður til
að minna á sig og hið nýja SS.