Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Qupperneq 17
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
17
Lesendur
Hálendisvegir:
Eyðileggjum ekki
náttúrparadís
Jón S. Þorleifsson skrifar:
Skáldin, Steinn Steinarr og Halldór
Laxness vöruöu á sínum tíma við
áráttu arkitekta og skipulagsfræö-
inga viö aö ofgera umhverfi sínu. -
Steinn með ódauðlegu kvæöi um leir-
inn, og Halldór með greinum um
mennina með reiknistokkana.
Þessi orð eiga við nú, þegar enn
einn fræðinfeurinn geysist fram, ný-
kominn frá hinni menguðu Ameríku,
þar sem ofskipulagningin eirir engu,
og kemur fram með þá ógnvænlegu
hugmynd að vegaleggja allt hálendið.
- Eg tel að það yrði meiriháttar
mengunarslys ef af yrði.
Þessi náttúruparadís á að fá að
vera í friði, torfarin og leyndardóms-
full eins og áður.
Vörðuvígsla á Sprengisandi. - Maðurinn á myndin'ni heitir Hallgrímur Jóns-
son.
Heimsent pappivsflóð:
ÞJónusta Hagstofu
getur hjálpað
Lárus Jón Guðmundsson skrifar:
Hér á síðunum hafa af og til birst
bréf frá lesendum sem segjast
þreyttir og pirraðir á endalausu
flóði allskyns auglýsingabæklinga,
dreifibréfa, tilkynninga, kosninga-
rita og áróðursbæklinga, að
ógleymdum öllum „nú eða aldrei“
kostaboðunum og happdrættismið-
unum sem naga samviskuna eftir
að þeim hefur verið fleygt út í
tunnu.
Ekki er að efa að allur þessi papp-
ír er sendur af góðum hug í þágu
góðra málefna en hóf er í öllu best.
Islendingar eru örlát þjóð en jafn-
vel þeir gjafmildustu fá nóg þegar
rignt hefur yfir þá beiðnum um að
láta fé af hendi rakna frá ótrúle-
gustu félagasamtökum til styrktar
jafnvel enn ótgrúlegri málstaðar.
Þeim sem senda allt þetta papp-
írsmagn er það vissulega frjálst en
svo er Hagstofu íslands (Hverfis-
götu 8 - 10, R.) fyrir að þakka að
okkur, viðtakendum pappírsflóðs-
ins, er einnig frelsi gefið, nefnilega
frelsið til að láta „afmá nöfn okkar
úr nafnaskrám í vörslu Hagstofu
íslands sem kunna að verða notað-
ar til útsendingar dreifibréfa, til-
kynninga, auglýsinga eða áróðurs,
sbr. 2. málsgrein 13. greinar laga
nr. 63, frá 1981 svo og til útsending-
TU Hagstoíu Islands, Hverlisgötu 8-10.101 Reytjavft
Beiönl um að naln só almáð úr nalnaskrám
sem beilt er U1 útsendtngar
dreilibréfa, Ulkynnlnga, auglýsinga eða áróðurs
(sbr. 2. mgr. i 3. gr. laga nr. 63/1981)
svo og happdreUismiða. f
Ég uodirriuður/uadirriluð ö«k« h*r B*ð «ftir þvL «ð MÍn mitl v*r4t itmið
úr niíMikrim I vdrilu Hígitrfu liUndi, k» kunni tð veri nouðir til út-
Kndingir driifibrífi. Ulkynnmgi, luglýitngi *f» iréðuri. ibr. 2. miligritn
13.gninir Ugi nr ójfrl l98l,ivoogUl úuendtngir hippdrauiimiði.
iulur o| átgnUuii
Fullt niín....
Nifnnúmer:
Fmðingirdigur, -minúður og -ir:------
AðKtur (þe nútildtndi póitíing
nm fnmttlieyðublið og onnur
ocinber «ð»n *ru Knd i):.-..-...-...-
Okkur er frelsi gefið - frelsi til að
„afmá nöfn okkar úr nafnaskrá
Hagsfofu". - Sjá eyðublað Hag-
stofunnar.
ar happdrættismiða“ svo vitnað sé
í eyðublaðið sem Hagstofan af-
hendir lysthafendum til útfylling-
ar.
Sá er þetta ritar ráðleggur öllum
þeim sem eru orðnir leiðir á að tína
upp hvern bréfabunkann á fætur
öðrum og lalla með þá út í tunnu,
að notfæra sér þessa þjónustu Hag-
stofunnar og því má svo við bæta,
að það getur sparað sendendum
nokkurt fé að hætta að senda þeim
einstaklingum bréf sem annars
heíðu hent þeim út í öskutunnu. -
Sem sé, allra hagur.
giörðu
svovel
Hvort sem þú ætlar aö veita vatni um lengri eöa skemmri veg
er varla til auöveldari og ódýrari leið
en gegnum rörin frá Reykjalundi.
Rörin frá Reykjalundi eru viöurkennd fyrir gæöi
og auðvelda meöferö.
Flestar stæröir vatnsröra, kapalröra, frárennslisröra
og hitaþolinna röra eru jafnan til á lager og
meö tiltölulega stuttum fyrirvara er hægt aö afgreiöa sverari rör.
Sérstök áhersla er lögð á mikla og góða þjónustu.
Rörin frá Reykjalundi
- rör sem duga.
REYKIALUNDUR
i Söludeild • Sími 666200