Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Qupperneq 21
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
21
Ustahátíðar-
dagará
Akureyri
Gyifi Kti3tján330n, DV, Akureyri:
Listahátiðardagar verða haldn-
ir á Akureyri í næsta raánuði,
nánar tiltekið dagana 3.-20. júní.
Á fundi menningarraálanefndar
bæjarins 29. apnl var dagskrá
hátíðarinnar samþykkt, en hún
samanstendur af þremur atriðum
frá Listahátíð í Reykjavik, auk
annarra atriða sem verða í gangi
í bænum á þessum tíraa.
Dagskráin hefst þann 3. júní
með sýningu á verkum málarans
Gunnlaugs Scheving, en þessi
sýning er fengin úr safhi Lista-
safns íslands. Þessi sýning verð-
ur í „Glugganum" og stendur yfir
til 20. júní.
Þann 10. júní verða tónleikar í
Gagnfi-æðaskólanum. Þar syngur
finnski söngvarinn Jorma Hynn-
inen viö undirleik Jónasar Ingi-
mundarsonar píanóleikara, lög
eftir Sibelius, Hugo Wolf og Ralph
Vaughan Williams. - Jorma
Hynninen er mjög þekktur
söngvari, hefur m.a. veriö í aðal-
hlutverkum í Metropohtan óper-
imni og syngur reglulega í La
Scala, Vínaróperunni, Parisaró-
perunni og fleiri þekktum söng-
solum.
Hinn 20. júní skemmtir „Black
ballet jazz“ í skemmunni. Hér er
um 17 manna bandarískan hóp
að ræöa sem sýnir sögu dansins
í Ameriku í 200 ár, með dansi,
látbragðsleik og söng. Sýningin
spannar allt frá afríkönskum
trommu-ritúölum til „break“-
dansins og annarra dansa sem
dansaöir eru í dag.
Fréttir
'Jlja .
nogoTT
Hvitlok
tabletter^^
HVÍTLAUKUR
Ufskraftur sjálfrar náttúrunnar. Alveg lyktar- og
bragölaus. Mikilvægasta efniö I góðum hvltlauk
heitir Allicin og llja Rogoff
laukurinn inniheldur meira af þessu mikilvæga
efni en nokkur annar hvitlaukur á markaðnum.
Þaö er tryggt aö I hverjum 100 gr séu 440 mcg
af Alliclni.
Hinn þekkti vlsindamaður á sviöi hvitlauksrann-
sókna, dr. Jerzy Lutomsky, álltur þennan hvitlauk
bestan þvi hann er ekki unnlnn vlö upphltun eða
gerjun sem hann álitur aö eyöl mikilvægustu etn-
unum úr hvitlauknum.
Fæst í apótekum, heilsubúöum, mörkuöum.
Verð á mánaðarskammti aöeins kr. 360,-
DREIFING: BIO SELEN
UMB. SÍMI 76610
íslendingar eru mjög
hræddir við flugur
-alífafgrípur um sig nokkur hræðsla þegar skordýrin fara á stjá
Samkvæmt heimildum, er DV aflaði
sér hjá sérfróðum mönnum um skor-
kvikindi, er alltaf eitthvað um bit af
völdum skordýra. Aðallega er um bit
af völdum flóa að ræða, starra- eða
fuglaflóa.
Starrahreiður fannst fyrst hér á
landi á Hornafirði 1941 en vegna hag-
stæðra veðurskilyrða fjölgaði starr-
anum verulega á Reykjavíkursvæð-
inu um 1950. Starrinn gerir sér hreið-
ur í og við mannabústaöi og honum
fylgir hin svokallaða starrafló eða
hænsnafló en hún finnst einnig á
hænsnum.
Flærnar eru fyrst og fremst í
hreiðrinu og ef fólk vill losna við þær
verður það aö fjarlægja hreiðrin og
eitra á eftir. Ekki nægir að loka
hreiðurstaðnum því flæmar lifa i
púpuformi í hreiðrinu yfir veturinn
og vakna til lífsins vorið eftir. Ef
enginn starri kemur í hreiðrið fara
flærnar að ókyrrast en þær þurfa á
blóði að halda til aö fjölga sér. Þá
verða mennirnir fyrir barðinu á
þeim.
Ef fólk gengur í grasi eða er í ná-
lægð starrahreiðurs er þaö nóg til
þess að flóin kemst í fótin og stingur
síðan.
Það getur hent að einungis einn eða
tveir úr fjölskyldunni verði fyrir
óþægindum af völdum flónna en það
skýrist af mismunandi viðbrögðum
líkamans.
íslendingar virðast afar viðkvæmir
gagnvart skorkvikindum og þegar
sögur um bit og stungur berast verða
margir hálf„hysterískir“. Var áht
sérfræðinganna að þessi viðbrögð
fólks væru stórlega ýkt og ekki í
neinu samræmi við hættu, eða öllu
heldur hættuleysi, er stafaði af skor-
dýrum. Til að mynda væru geitungar
og hunangstlugur alls ekki eins
hættulegar og fólk héldi og bitu að-
eins þegar þeim væri ógnað. Fólki
væri því ráðlegt að láta slík kvikindi
algerlega í friði.
Loks þvertóku viðmælendur blaða-
manns fyrir það að stingandi skordýr
gætu borist með heitu lofti frá Evr-
ópu og þar með viröist botninn dott-
inn úr þeim vangaveltum líka.
HLH
Sérðu
líkama þínum
fyrir nægu kalki til að
varðveita burðarþol hans?
Beinin eru máttarstoðir líkamans. Þessi
mikilvægu líffæri þurfa nóg af kalki sem
er helsta byggingarefni þeirra. Kalk er
einnig nauðsynlegt fyrir tennur, hár og
neglur og eðlilega starfsemi tauga og
vöðva.
Líkaminn framleiðir ekki kalk. Þess
vegna verðum við að sjá honum fyrir því.
Magna-kalk er hreint og ómengað og
hentar þeim sérstaklega vel sem kæra sig
ekki um aukaskammt af fítu og eggja-
hvítuefnum, en þau fylgja oftar en ekki
með í kalkríkri fæðu. Magna-kalk er því
eðlilegt svar við nýjum neysluháttum þar
sem neytendur vilja sjálfir ráða samsetn-
ingu fæðunnar.
Konur á meðgöngu eða með barn á
brjósti þurfa ríflegan skammt af kalki.
Einnig fólk um og yfir fimmtugt, einkum
konur, til að hamla gegn beinþynningu.
Mest er um vert að byggja upp kalkforð-
ann strax í móðurkviði og viðhalda hon-
um alla ævina.
Magna-kalk. Hreint og styrkjandi.
argus/sia_