Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Page 22
22
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
Fréttir
Á myndinni má sjá árgang 77-78 við rásmarkið við upphaf hlaupsins.
DV-mynd JS
80 ungmenni
runnu Lands-
bankaskeiðið
Landsbankahlaupið, sem í ár var
haldið í 3ja sinn um land allt, er að
verða eitt mesta hlaupamót ungu
kynslóðarinnar og þátttakendur
skipta hundruðum. Hlaupið á Húsa-
vík fór fram í hefðbundnu Lands-
bankahlaupaveðri, þ.e. sólskini og
blíðu.
Um 80 ungmenni frá Húsavík og
nágrannasveitum hlupu með tilþrif-
um um götur bæjarins, og að hlaupi
loknu þáðu þau veitingar á borð við
pylsur, gos og súkkulaðikex.
Lokaprofunum
fagnað
Ómai Garðaissan, DV, Vestmannaeyjum;
Þaö var allt í grænum sjó þegar
nemendur Stýrimannaskólans í
Vestmannaeyjum fógnuðu próflok-
um á viðeigandi hátt á dögunum,
enda veður til þess - sól og sumar.
i Eyjum
Það var slegið upp grillveislu í bak-
garöi heimavistarinnar í tilefni dags-
ins og vel var að staöið eins og sjá
má. Friörik Ásmundsson skólastjóri
er sá greifalegi í stólnum og með
honum viö gáminn er Sigurgeir
Jónsson kennari. DV-mynd Ómar
Fylltu togarann á
87 klukkustundum
- Breki, Vestmannaeyjum, aflahæsti togari landsins
Ómai Gaiðaisson, DV, Vestmannaeyjum;
Það tók Sævar Brynjólfsson skip-
stjóra og áhöfn hans á skuttogaran-
um Breka VE 61 ekki nema þrjá sól-
arhringa og 15 klukkustundir að fá
fullfermi frá því trollinu var kastað
og lagt var af stað heimleiðis. Þetta
gerðist fyrir nokkrum dögum og afli
togarans var 220 tonn, mest þorskur,
en um 50 tonn karfi og ufsi. Aflinn
fékkst að mestu á Papa- og Öræfa-
grunni. Á vertíðinni er Breki kominn
með 2970 tonn sem er mjög góður
afli. Reyndar mesti afli togara hér á
landi það sem af er ársins. Afli Breka
síðustu 12 mánuðina er 6280 tonn,
einhver mesti ársafli, sem um getur.
Breki VE 62 í Vestmannaeyjahöfn
DV-myndir Ómar
Grandi og Útgerðarfélag Akureyringa:
Skuldir Granda leggjast
of þungt á reksturinn
Mikill kostnaður við stjómun skilar sér ekki
Sé miðað viö starfsmannafjölda
var stjórnunarkostnaður hjá
Granda um 77 prósentum hærri en
hjá Útgerðarfélagi Akureyringa í
fyrra en 100 prósentum hærri árið
á undan.
Þetta er tilefni tillögu Alfreös
Þorsteinssonar, varaborgarráös-
manns Framsóknar, um að afla
upplýsinga um rekstur þessara
tveggja fyrirtækja og leiða í Ijós
mismunandi afkomu þeirra. í fyrra
skilaði Grandi 1,7 milljón í hagnað
á meðan Útgerðarfélagið skilaði
131,5 milljónum. Fyrirtækin gerðu
út jafnmarga togara og eru um
margt sambærileg.
Á árinu 1986 var munurinn enn
átakanlegri. Útgerðarfélagið skil-
aði 75,6 milljón króna hagnaði en
Grandi var rekin með 14,7 milljón
króna tapi.
Þegar heildarskuldum fyrirtækj-
anna á árinu 1986, aö frádregnum
veltuíjármunum, er dreift á alla
togarana kemur í ljós að hver tog-
ari Útgerðafélagsins bar um 48
milljón króna skuld en togarar
Granda þurftu að standa undir 145
milljón króna skuld. í fyrra var
munurinn minni. Togarar Útgerð-
arfélagsins þurftu að standa undir
114 milljón krónum en togarar
Granda undir 148 milljónum. Sá er
þó munurinn að Útgerðarfélagið
hafði þá nýkeypt einn togara og
breytt öörum í fullkomið frystiskip.
Ef þessi fjárfesting er dregin frá
kemur í ljós að hinir togarar Út-
gerðarfélagsins höföu á sér um 34
milljón króna skuld.
Þrátt fyrir aö Útgerðarfélagið
hafi í fyrra fjárfest fyrir um 500
milljónir, en Grandi ekki nema fyr-
ir um 40, leggjast skuldir Útgerðar-
félagsins ekki jafnþungt á rekstur-
inn og hjá Granda. í ár þarf Grandi
að standa skil á afborgunum lána
fyrir um 150 milljónir auk fjár-
magnskostnaðar. Sambærileg tala
hjá Útgerðafélaginu er 81 milljón.
Mismunur fyrirtækjanna liggur
meðal annars í þessu. Skuldir
Granda eru einfaldlega það miklar
að fyrirtækið getur ekki skilað
jafnmiklum hagnaði ogútgerðarfé-
lagið. -gse
Kórsöngur í Logalandi
Snorii Kiistleifsson, DV, Borgaifirði:
Það var kröftugur söngur í félags-
heimilinu Logalandi í Reykholtsdal
laugardaginn 14. maí þegar karlakór-
amir Þrestir, Hafnarfiröi, og Jökull,
Höfn í Hornafirði, héldu þar sameig-
inlega söngskemmtun. Kóramir
sungu saman og einir sér hátt á
þriðju klukkustund og varð af hin
besta skemmtun. Söngstjóri Þrasta
er Kjartan Sigurjónsson en Jökuls
Sigjón Bjamason. Eiginkonur söng-
manna kóranna vom með í forinni
og einnig félagar í Átthagafélagi
Hornafjarðar. Um 130 manns voru í
hópnum að söngmönnum meðtöld-
urri.
Kórarnir á sviöinu í Logalandi og syngja mikinn. Áhorfendur margir eins
og sjá má. DV-mynd Snorri