Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Page 23
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
Fréttir
„Treysti því að þetta
sé ábyrg ríkisstjóm
„Viö teljura þá offramleiðslu,
sem nú er á gönguseiðum, vera
gullið tækifæri til aö byggja fi-
skeldið upp á skemmri tíma en
gert hefur veriö ráð fyrir,“ sagði
Friörik Sigurösson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands fl-
skeldis- og haíbeitarstöðva, í
samtali viö DV.
Fiskeldismenn hafa óskaö eftir
fyrirgreiöslu rfldsstjómarinnar
svo þeír geti tekiö til matfiskeldis
4,7 milljónir seiða sem Ijóst er að
ekki munu seljast. Skipuð hefur
verið nefnd á vegum stjómvalda
til aö kanna hvað sé hægt að gera.
Um er aö ræða stofnkostnað upp
á 900 milljónir króna en gert er
ráð fyrir að rekstrarkostnaður
verði 2,1 mflljarður. Með því er
gert ráö fyrir að nýtt veröi 10
milljón seiöi og úr þeim veröi
framleidd 12 þúsund tonn af laxi
á næstu tveimur ámm. Útflutn-
ingsveröraæti hans em um 3
milljarðar og segir Friðrik að
þannig fáist upp í kostnaö á
fyrstu tveimur áranum.
„Viö emm að fara fram á
ákveðna fyrirgreiðslu og skilning
sem buggist á því að við flýtum
uppbyggingu um eitt og hálft ár.
Þróun, sem heföi orðið á þremur
árum, verður á einu og hálfu ári.“
Aðgeröimar, sem fiskeldis-
mennimir leggja til, eru að
Byggðastofnun, Iðnþróunarsjóði,
Framkvæmdásjóði o.fl. verði gert
kleift aö lána fé til fiskeldis. Þá
vilja þeir að Ríkisábyrgðarsjóður
veiti ábyrgðir vegna afurðalána
og hlutfall lánanna verði hækk-
að. Þá er fariö fram á niðurfell-
ingu raforku til sjó- og vatns-
dælingar í fiskeldi og samræm-
ingu á raforkuverði til fiskeldis.
-JBj
Hagnaður hjá
Samvinnu-
tryggingum
og Andvöku
Hagnaður af rekstri Samvinnu-
trygginga og Andvöku á árinu
1987 var 10,8 milljónir kr. Útkom-
an er því betri en árið 1986 en þá
nam hagnaöurinn tveim milljón-
um.
Heildariðgjöld Samvinnutrygg-
inga vom 976,8 milljónir og
hækkuðu um 26% frá fyrra ári.
Tjón ársins námu 827,6 milfjón-
ura sem er um 30 % hækkun
milli ára. Hagnaður var af eignar-
tryggingum, frjálsum ábyrgðar-
tryggingum, sjó- og farmtrygg-
ingum og endurtryggingum en
tap var á slysa- og sjúkratrygg-
ingum og ökutækjatryggingum.
Þar var afkoraan verst eins og
hjá öðrum tryggingafélögum
og nam tapið 18,4 milljón-
um.
Eigiö fé félagsins telst 177,8
milljónir og niðurstöðutala efna-
hagsreiknings 1,3 milljarð-
ur.
Sala Andvöku á liftryggingum
gekk vel á síðasta ári og hækkuðu
iðgjöld ársins um 20 % milli ára
eða í 34,2 milljónir. Tryggingar-
stofn félagsins nam í árslok um
14,7 milljörðum kr. þar sem 13.991
maður var tryggöur.
„Við erum tílbúin tfl að semja ef
okkur berst almennilegt samningst-
flboð.Við viljum halda kaupmætti
miðað við síðasta ár og gera enn bet-
ur. Krafan er kjarabót, en öll tilboð
ríkisins til þessa hafa þýtt kjara-
skerðingu. Við höfum bent á að ef
ekki takast samningar við kennara
mun það hafa alvarlegar afleiðingar
í for með sér í haust. Eftirspurn eftir
kennarastörfum hefur verið htil og
því veröur erfitt að fá kennara tfl
starfa þegar skólarnir hefja störf í
haust. Hingað til hefur sá vandi ver-
ið einna mestur í dreifbýlinu, en mun
veröa áberandi hér í þéttbýlinu ef
ekki nást samningar fyrir haustið.
Það hlýtur að verakominn þrýsting-
ur á ríkisstjómina að ná samningum
við okkur sem fyrst svo hægt sé að
halda úti skólastarfi í landinu," sagði
Sigrún Águstsdóttir hjá Kennara-
sambandi íslands í samtali við DV í
gær, en hún á sæti í samninganefnd
kennara.
Kennarasambandiö hefur átt í viö-
ræðum við samninganefnd ríkisins
frá áramótum. Talsmenn þess segja
að þrátt fyrir langlundargeö og
samningsvilja fulltrúa Kennarasam-
bandsins hafi hvorki gengið né rekið
í viðræðunum. Föstudaginn 13. maí
hafi samninganefnd ríkisins gert
Kennarasambandinu tilboð um
kjarasamning og krafist þess að frá
honum yrði gengið fyrir helgina. Á
laugardag hafi stjórn og kjararáð
Kennarasambandsins hafnað tilboð-
inu.
Talsmennirnir segja að stjórn
kennarasambands íslands telji
ósæmilegt af ríkisvaldinu að ætla sér
að knýja fram samninga með þeim
hætti sem reynt hefur verið, á sama
tíma og gengisfelling vofir yfir og í
kjölfar hennar efnahagsaðgerðir sem
enn hafa ekki verið gerðar opin-
berar.
Sigrún sagði að kennarar biðu eftir
þvi að samninganefnd sæi sig knúna
tfl að kalla tfl fundar þar sem yrði
samið um kjarabætur fyrir kennara.
Sagðist hún ekki vera sérlega bjart-
sýn á aö þaö gerðist í bráð, en sagð-
ist trúa því og treysta að þetta væri
ábyrg ríkisstjóm.
„Ef ekkert hefur þokast í sam-
komulagsátt í haust munu kennarar
íhuga harðari aðgerðir," voru loka-
orð Sigrúnar. -HLH
Tilbúnar
múrblöndur
Rétt hráefni i hvert verk
Semkís múrblöndur fyrir fagmenn. Tilbúnar til notkunar. Vant-
ar aöeins vatniö. Til múrhúðunar úti og inni. Fást í hámarks-
kornastæröum 1 mm og 2 mm. Góðar í múrsprautur og dælur.
Múrblöndur í sérhæfð verkefni: POKAMÚR til pokapússunar,
bæði úti og inni. Hámarks-kornastærð 0.5 mm. Og RAPPMÚR
undir múrhúð, bæði úti og inni. Hámarks-kornastærð 2 mm.
Góður til að líma plasteinangrun. Tilvalinn í múrsprautur og
dælur.
Athugið: Loftblendi er í öllum Semkís múrblöndum. Það tryggir
frostþol.
MÚRNÉIA i stað kalks
Múrméla gerir múrblöndur’ þjálli, mýkri og léttari. Minnkar vatns-
drægni og hættu á sprungum. Múrméla er þurrkaður, hreinn og
fínmalaður skeljasandur sem nota má í allar múrblöndur. Úti og
inni. Þú þarft ekki að nota kalk. Og losnar við ryk og óþrifnað.
Fæst í öllum byggingarvöruverslunum.
HEILDSÖLUDREIFING:
SEMENTSVERKSMIÐJA RÍKISINS
SÆVARHÖFÐA 11, 112 REYKJAVÍK. SÍMI: 91-83400
MÁNABRAUT 300 AKRANES. SÍMI: 93-11555
sércteypan =i
KALMANSVÖLLUM 3, 300 AKRANES. SÍMI: 93-13355