Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Page 32
48
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
Smáauglýsingar - Sími 27022
i
Borðbúnaður
fyrir veitingahús
-yeihúf-
Bíldshöfða 18-sínii 688838
Tímarit fyrlr alla
■ Bílar til sölu
1987 Plymouth Voyager mini van, glæsi-
legur bíll, með öllu, dökkrauður, verð
1.500.000. Sími 57233.
Toyota Hiiux ’80 til sölu, vél ekin 50
þús. og afturdrif ekið 10 þús., góður
bíll. Uppl. í síma 40294 e.kl. 19.
Pontiac Phonix ’78 til sölu, allur nýyfir-
farinn, skipti á ódýrari.Hafið samband
við auglþj. DV í síma 27022. H-8953
M Ýmislegt
Smókingaleiga. Höfum til leigu allar
stærðir smókinga við öll tækifæri,
skyrta, lindi og slaufa fylgja. Efna-
laugin, Nóatúni 17, sími 16199.
TRÉSMIÐJAN
K-M
lnl«iliMkiiL«iUulmlMlnilmlinl>*iliiil>iilMilMl
Smíðum timburhús, hurðir, glugga o.fl.
Eigum teikningar að einingahúsum
með sólstofu. Sími 666430.
Við smíðum stigana. Stigamaðurinn,
Sandgerði, símar 92-37631 og 92-37779.
Marilyn Monroe sokkabuxur. Gæða-
vara með glansandi áferð. Heildsölu-
birgðir: S. A. Sigurjónsson hf.,
Þórsgötu 14, sími 24477.
BMW-316 ’83. Tjl sölu er þessi glæsi-
legi BMW, pottþétt ásigkomulag,
ekinn 75 þús., verð samkomulag. Uppl.
í síma 32010.
Þessi eðalvagn er til sölu með Volvo
B20 vél. Uppl. í síma 688341 e.kl. 19.
Suzuki Swift GTi ’87, svartur, ekinn
16.000, Pioneer hljómflutningstæki +
4 hátalarar, sumar- og vetrardekk,
verð 500.000. Uppl. í síma 42579 e. kl.
19.
SÍMASKRÁIN
Dmissandi hjálpartæki nútimamannsins
á öllum
blað-
sölustöðum
- Glös DUROBAR
- POStUlín PILLIVUYT
- Borödúkar
- Serviettur
- Hnífapör o.m.fl.
Simaskráin geymir allar nauðsynlegar
uppl., svo sem nöfn, símanúmer, heim-
ilisföng, tollnúmer, nafnnr., kennitöl-
ur, númer bankareikninga, skilaboð,
eins löng og minnið leyfir, o.m.fl.
Ótrúlega fiölhæf. Islenskur leiðarvís-
ir. ÚTSÖLUSTAÐIR: Radiobúðin,
Skipholti, Penninn, allar verslanir,
Leikfangahúsið, Skólavörðustíg,
Bókabúð Braga, Laugavegi, Tónborg,
Hamraborg 7, Kópv., Bókabúð Böðv-
ars, Hafnarfirði, Póllinn, Isafirði,
Versl. Einars Guðfinnssonar, Bolung-
arvík, Bókabúð Jónasar, Akureyri,
Radíóver, Húsavík, K/F Héraðsbúa,
Egilsstöðum, Rafvirkinn, Eskifirði,
Hjá Óla, Keflavík. Heildverslunin
Yrkir, sími 621951 og 10643.
Meiming
Ur leikritinu Gulur, rauður, grænn og blár.
Hlaðvarpinn
Gulur, rauður, grænn og blár
Leikstjórn: Þór Tulinius, Ása Hlin Sva-
varsdóttir
Lýsing: Egiil Árnason
Leikendur: Inga Hildur Haraldsdóttir, Ólaf-
ia Hrönn Jónsdóttir, Ingrid Jónsdóttir,
Bryndís Petra Bragadóttir
Fjórar konur strita í leiðinlegri
verksmiðjuvinnu. Þær eru dæmdar
til að eyða megninu af tíma sínum
saman, þær hafa ekkert um að tala
við annað fólk.
Á annan í hvítasunnu frumsýndi
leikhópurinn Þýbylja leikverkið Gul-
ur, rauður, grænn og blár í kjallara
Hlaðvarpans.
Verkið er spuni fjögurra leikara og
tveggja leikkvenna ogfjallar um hóp-
sálina. Um hvað talar fólk í leiðin-
legri og einhæfri verksmiðjuvinnu?
Þýbylja kemst að þeirri niðurstöðu
aö umræðuefnið sé fjarri því að vera
jafneinhæft og vinnan. Verkakon-
urnar vaða úr einu í annað, allt frá
kjarnmiklum slúðursögum upp í
heimspekilegar vangaveltur.
Konurnar fjórar eru einstaklingar
en aUar draumlyndar og ósjálfstæð-
ar. Eigi þær að standa sig þurfa þær
að snúa saman bökum. Niðurstaðan
er sú að þær mynda hóp, þær vinna
saman, þær spila saman í lottói. Hóp-
urinn bregst harðneskjulega við öllu
því sem ógnað gæti tilveru hans.
Draumar og þrár
Eftir því sem líður á verkið kynn-
umst við betur einstakhngunum inn-
an hópsins. Hver kvennanna á sér
sinn draum, ímyndunaraflið skapar
þeim gerviveröld sem er léttbærari
en vinnustaðurinn. Og þetta eru
sannkallaðir ævintýraheimar. Ein er
frumskógarguð sem tilbeðinn er af
villtum ættbálki. Önnur er prinsessa
sem hryggbrýtur hvern vonbiðilinn
á fætur öðrum. Sú þriöja er nokkurs
konar Evridís sém bíður eftir að feg-
ursti maöur heims heimti hana úr
helju. Meðan á biðinni stendur þylur
Leildist
Pétur L. Pétursson
hún thbrigði viö Ljóðaljóðin um
ágæti tilvonandi eiginmanns. Sú
flórða er einhvers konar guðleg
geimvera sem hefur vald yfir örlög-
um dauðlegra.
Þessir draumar eru sýndir sem
innskot í daglega rútínu kvennanna
og þarna skapast hið raunverulega
leikhús. Með ljósabreytingum er
hverri konu sköpuð eigin veröld sem
skarast ekki við veröld annarra í
hópnum. Þarna hefur Egill Árnason
ljósameistari unnið gott starf því
umbreytingin er algjör.
Könnun og æfing
En slíkur spuni verður sjaldnast
annað en könnun leikara og leik-
stjóra á einhverju afmörkuðu efni.
Þarna er hópurinn tekinn fyrir og
einnig einstaklingar innan hans.
Kosturinn er aftur sá að hver leikari
miðlar af eigin reynslu, af eigin efni-
viði. Allur leikur verður sterkari fyr-
ir vikið, leikararnir hafa tækifæri til
að skapa sér sitt draumahlutverk og
leika það. Þetta undirstrikar að sjálf-
sögðu eigindir hvers leikara fyrir sig.
Þannig er greinilegt að Ólafia
Hrönn Jónsdóttir og Ingrid Jóns-
dóttir eru gamanleikararnir í hopn-
um, þær völdu sér kómiskar rullur
og vinna vel úr þeim.
Inga Hildur Haraldsdóttir hlúir
meir að tragedíunni. Hún hefur
ræktað með sér meiri skapgeröarleik
og á eflaust eftir að vera notuð mikið
í hlutverk prímadonnunnar, hún
yrði prýðis Ofelía.
Bryndís Petra Bragadóttir spannar
víðara svið en hinar. Hún hefur valið
sér hlutverk sem flakkar á milli
kómedíu og tragedíu. Sérstætt and-
litsfall hennar gerir það að verkum
að hún er jafnvíg sem hysterísk
verkakona og guð frá öðrum hnetti.
Hún er skapgerðarleikkonan i hópn-
um og veit þaö.
Mikil sköpunargleði
Þór Tuliníus og Asa Hlín Svavars-
dóttir halda um taumana og gæta
þess að ekkert fari úr böndum. Þau
gera það af næmleik og tekst að feta
klifið, ekki eina einustu stund er um
ofleik að ræða né neins konar „show
ofT’. Þau eiga einnig heiðurinn af því
að skrásetja hugmyndirnar sem
fæðst hafa á æfingum og klæða hvert
hlutverk í búning orða.
Þegar á heildina er litið er um
nokkuð skemmtilegan spuna að
ræða. Þau varast að falla í þá gryfju
að skemmta sér meira en áhorfendur
og sneiða hjá „lókalhúmor”. Þó er
eins og verkið sé í lengra lagi, en það
er óvistlegum salarkynnum og
óþægilegum stólum að kenna.
Þetta er dæmi um þann mikla sköp-
unarkraft sem kristallast hefur hjá
litlum leikhópum í vetur. Fyrr eða
síðar kemur að því að öll þessi orka
beislast í einhverju miklu, þetta er
gerjun og stutt í að vínið veröi til-
búiö til neyslu.
-PLP
Eldur kviknaði í heyi á vörubílspalii á Suðurlandsvegi við
Rauðavatn á hvítasunnudag, líklegast út frá pústkerfi bif-
reiðarinnar. DV-mynd GVA
Alafoss
samdi við
Sovétmenn
Um helgina tókust samningar við
Sovétmenn um sölu á ullarábreiðum
á vegum Álafoss. Hér er um aö ræða
sölu fyrir um 25 milljónir króna eöa
tæpa 600 þús. dollara. Að sögn Jóns
Sigurðarsonar hjá Álafoss er samn-
ingurinn aðeins einn hluti af ramma-
samningi við Sovétmenn.
„Við erum ánægðir með samning-
inn og veröið sem við fáum, þrátt
fyrir að alltaf vilji maður fá meira.
Þó töluvert vanti upp á að Rússamir
standi við rammasamninginn, sem
við höfum gert við þá, er þetta einn
áfangi á leiðinni. Það sem nú seldist
eru svokallaðar værðarvoðir eða
ábreiður sem litið hafa selst undan-
farin sex ár. Út af fyrir sig er það
ánægjulegt. Rammasamningur okk-
ar hljóðar upp á 5-6 milljónir dollara
en með þessum samningi hafa Sovét-
menn keypt af okkur fyrir tæpar 2
milljónir dollara. Við erum bjartsýn-
ir með framhaldið.” -ÓTT.