Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Síða 33
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
49
Fréttir
Vigdís ræddi
við Dukakis
- hlaut heiðursdoktorsnafhbót á hvrtasunnudag
Forseti Islands, Vigdís Finnbogadóttir, tók við heiðursdoktorsnafnbót i lögum
frá kvennaháskólanum Smith College í Northamton í Massachusettsfylki á
hvítasunnudag. Fimm konur auk forsetans hlutu heiðursdoktorsnafnbót
sama dag.
Vigdls Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, hitti á ferð sinni um Bandarík-
in Michael Dukakis, ríkisstjóra í
Massachusetts og væntanlegan for-
setaframbjóðanda demókrata .
Vigdís Finnbogadóttir hitti ríkis-
stjórann á skrifstofu hans í Massac-
husetts í gær. Það fór vel á með ís-
lenska forsetanum og forsetafram-
bjóðandanum bandaríska. Fundur
þeirra stóð í hálfa klukkustund eða
öllu lengur en áformaö hafði verið.
Sama dag var haldin íslandskynn-
ing í Boston sem Útflutningsráð ís-
lands stóð fyrir með stuðningi íjöi-
margra íslenskra fyrirtækja. Þar var
m.a. sýndur fatnaöur og á borðum
var íslenskur matur.
Vigdís tók við heiðursdoktorsnafn-
bót í lögum frá kvennaháskólanum
Smith College í Northampton í
Massachusetts á hvítasunnudag.
Forsetinn tók við nafnbótinni við
hátíölega athöfn í skólanum um leið
og skólasht fóru fram. Sjö hundruð
stúlkur útskrifuðust frá skólanum
sama dag en sex konur hlutu heið-
ursdoktorsnafnbót. -JBj
A Islandskynningu í Boston ræddi forsetinn við gesti. Hér ræðir Vigdís Finnbogadóttir við Raymond Flynn, borgar-
stjóra Boston, og Ingva Ingvason, sendiherra íslands í Bandaríkjunum. Að baki þeim standa Ingjaldur Hannibals-
son og Kornelíus Sigmundsson forsetaritari. DV-símamyndir Olatur Arnarson
Vigdís Finnbogadóttir tekur i hönd Valborgar Sigurðardóttur sem fylgt hefur
forsetanum á ferð hennar um Bandarikin. Valborg útskrifaðist frá Smith
College 1945 og er eini íslendingurinn sem hefur Masters gráðu þaðan.
•I
Höfðabakka 9
Sími 685411
teirKerasmio og.
myndskreyttur
af Sigrúnu Eldjárn
myndlistarmanni
Sendum í póstkröfi
Hæstiréttur:
Stytti dóm um eitt og hálft ár
yfir kynferðis
Hæstiréttur hefur kveðiö upp dóm,
yfir fimm barna fóður á fimmtugs-
aldri sem hafði kynferðismök, önnur
en samræði, við unga dóttur sína.
Maðurinn stundaði þetta athæfi í tíu
ár. Maðurinn var einnig ákærður
fyrir að hafa átt kynferðismök við tvö
önnur böm sín, dreng og stúlku.
Maðurinn var sýknaður af þeim
ákæruliöum.
afbrotamanni
Hæstarétti þykir hæfileg refsing
fangelsi í tvö og hálft ár. í Sakadómi
Reykjavíkur var maðurinn dæmdur
til fjögurra ára fangelsisvistar. í
Hæstarétti dæmdu hæstaréttardóm-
ararnir Magnús Thoroddsen, Guð-
mundur Jónsson, Guðrún Erlends-
dóttir, Hrafn Bragason og Arnljótur
Bjömsson prófessor.
-sme
Sjómannasambandið
mun leggja fram krófii um
15% hækkun á verði
Að sögn ÓskarS Vigfússonar, for-
manns Sjómannasambands íslands,
mun sambandið leggja fram kröfu
um 15% hækkun á fiski á fundi Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins sem hald-
inn verður í dag klukkan þrjú. Um-
ræður um verð hafa enn ekki hafist
og vildi Óskar engu spá um framgang
viöræðnanna.
Á síðasta fundi, sem haldinn var á
föstudag, var ekki tekin ákvörðun
um lágmarkverð á fiski en verðlagn-
ing á humri á humarvertíð í sumar
var gefin frjáls. Lágmarkverð á öðr-
um sjávarafla gildir til næstu mán-
aðamóta.
-StB
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Heildregnar
pípur
Sverleikar: 1/2”-10“
Din 2448/1629/3 St 35
oOO o O Oooo OOO
sindraAstálhf
BORGARTÚNI31, SÍMAR 27222 & 21684