Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Qupperneq 35
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
51 .
DV
Fréttir
Óþrif og sóðaskapur í grónu íbúðaihverR:
Óíbúðarhæft
hús látið grotna
niður í fjögur ár
- nágrannarnir hafa misst þolinmæðina
„Við erum alveg sprangin. Sóða-
skapúrinn er með eindæmum og
veggir hússins eru að því komnir að
hrynja. Það liggur hola undir húsið
og þaðan kemur megn óþefur. Þetta
er stórhættulegt fyrir þá krakka sem
eru að leika sér þama. Þeir hjá borg-
inni hafa reyndar komið og neglt fyr-
ir glugga og reynt að fylla upp í hol-
una en þetta er fljótt að komast í
sama horfið aftur. Brotist er inn og
ýmislegt eyðilagt,“ segir nágranni
hússins númer 17 í Skipasundinu.
Þar hefur ekki verið búið síðastlið-
in fjögur ár og húsiö fengið að grotna
niður í rólegheitum. Reyndar var
húsið óíbúðarhæft við söluna en
vegna málaferla í tengslum við hana
hefur komið upp sú staða að enginn
vill taka ábyrgð á húsinu.
Hjá hreinsunardeild horgarinnar
fengust þær upplýsingar að reynt
væri að halda þessu í horfinu en er-
fitt að fara út í frekari framkvæmdir
þar sem ekki væri hægt að draga
neinn til ábyrgðar enn.
Heilbrigðiseftirlitiö fékk nýlega
kvörtun út af húsinu og hefur skilað
áhti til Byggingamefndar Reykjavík-
ur. Mælist heilbrigðiseftirlitið til að
húsinu verði lokað almennilega og
aðrar viðunandi ráðstafanir gerðar.
Málið verður tekið fyrir á fundi
Byggingamefndar á næstunni og
velta nágrannar því fyrir sér hvort
ákveðið verði að rífa húsið.
-HLH
Svona litur húsið að Efstasundi 17 út og veldur ibúum götunnar angri.
DV-mynd KAE
Ársvetta Baulu
stefnir í
80 milljónir
„Þetta er búið að ganga mjög vel
hjá okkur síðan við byrjuðum starf-
semi í byrjun október. Það stefnir í
að ársveltan verði á milli 70 og 80
milljónir króna. Nú var að koma ný
tegund á markaðinn hjá okkur,
Baulubros, og þar með erum við með
10 tegundir á markaðnum," sagði
Þórður Ásgeirsson, forstjóri Baulu
hf„ en fyrirtækið var að senda nýja
jógúrt frá sér. Baulubrosið er í nýjum
umbúðum úr plasti og pappa sem eru
mun sterkari en venjulegar plast-
dósir.
Þórður sagði að þeir hjá Baulu
væra búnir að selja hátt í tvær millj-
ónir dósa af jógúrt sem enn er eina
framleiðsla fyrirtækisins. Sagðist
hann búast við að fyrirtækið næði
að framleiða hátt í fjórar milljónir
dósa á fyrsta starfsárinu.
-SMJ
Meðattekjur sjó-
manna í fyrra
1.655 mil|jónir
Samkvæmt upplýsingum Þjóð-
hagsstofnunar vora meðaltekjur sjó-
manna á landinu árið 19871.655 millj-
ónir. Við þessa útreikninga var not-
ast við úrtak úr skattaframtölum
1988. í úrtakinu voru 517 einstakling-
ar.
Á þessum tölum er þó sá fyrirvari
að þijú skattaumdæmi, Reykjavík,
Reykjanes og Norðurland vestra,
vantar inn í þær. Því liggja réttar
tölur um hæstu og lægstu tekjur eft-
ir umdæmum ekki fyrir. Endanlegt
uppgjör er væntanlegt á næstu mán-
uðum.
-StB
ísafjörður:
Styrktarfélagið gaf
Bræðratungu bílinn
Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísafirði:
Fyrir stuttu var greint frá því hér
í DV aö Bræðratunga, þjálfunar- og
þjónustumiðstöð fatlaðra á Vest-
fjörðum, hefði fengið að gjöf mikinn
og góðan bíl, sem er alveg rétt. Aftur
á móti var það ekki rétt að svæðis-
stjórn heföi gefið bílinn.
Hið rétta í þessu máh er aö það var
Styrktarfélag vangefinna á Vest-
fjörðum sem af myndarskap sínum
gaf Bræöratungu umræddan bíl.
Hér með er beðist velvirðingar á
þessum mistökum.
BILABORG HF.
FOSSHÁLSI 1,S.68 12 99
SEM VALIÐ HAFA MAZDA 323 HUOTA AÐ HAFA RETT FYRIR SER!!
MAZDA 323 hefur jafnan verið ímynd hins fullkomna
fjölskyldubíls því hann býður upp á fullkomnun þeirra
þátta, sem skipta mestu máli í slíkum bíl. Hann er
fallegur, lipur í akstri, aflmikill, sparneytinn og óvenju
rúmgóður. 1988 árgerðin af þessum geysivinsæla bíl er
með ýmsum útlitsbreytingum, fjölmörgum tæknileg-
um nýjungum og nýrri luxusinnréttingu. MAZDA 323
fæst í yfir 20 gerðum- 3, 4, 5 dyra eða Station. Einn
þeirra hentar þér örugglega!
\