Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Page 36
52
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988,
Lífsstfll DV
Kvörtunamefnd Neytendasamtakanna
- segir Elfa Björk Benediktsdóttir, starfsmaður samtakanna
Elfa Björk Benedfktsdóttir, starfsmaður Neytendasamtakanna. •
„Hér vantar tilfinnanlega smá-
máladómstól sem tæki á kvörtunar-
málum í verslun. Það fer engin að
leggja út í lögfræðikostnað út af tvö-
þúsund króna hálsbindi," segir Elfa
Björk Benediktsdóttir, starfsmaður
Neytendasamtakanna.
Neytendasamtökin reka kvörtun-
amefnd í samvinnu viö Kaupmanna-
samtökin og SÍS. Nefndin hefur gefið
góða raun og fer þeim fjölgandi
sem leita til hennar með ágreinings-
mál.
„Formleg kvörtunarmál eru komin
Neytendur
vel á fimmta tuginn nú í ár. Þau leys-
ast allflest í gegnum síma, þegar
mönnum er runnin reiðin."
Allir hafa rétt fyrir sér
Elfa tekur að jafnaöi við 300 sím-
hringingum á mánuði. Til aö anna
þessu hefur símatíminn tferið rýmk-
aður og ér nú frá kl. 9 til 13.
„í 90% tilfella er um fót að ræða.
Helsta ástæðan er lélegur fatnaður,
oftast úr viskósa, og lélegar með-
feröarmerkingar. Ef í hart fer getur
reynst erfitt að sanna nokkuð. Fötin
eru oft ónýt eftir smátíma, enda seg-
ir Iðntæknistofnun að viskósi rakni
upp og hlaupi í hnökra. Yfirleitt leys-
ast málin því kaupmenn vilja ekki
selja lélega vöru.“
Að sögn Elfu spretta tískuvöru-
verslanir upp eins og gorkúlur og
lognast út af jafnfljótt. Oft skilja þær
eftir sig slóð af kvörtunarmálum og
getur þá reynst erfitt að eltast við
eigendur. Annað sem veldur erfið-
leikum er að þessar verslanir eru
sjaldnast í Kaupmannasamtökun-
um.
„Þá verður nefndin óstarfhæf, því
aðilar í samtökunum skuldbinda sig
til að hlýta úrskurði hennar. Ef svo
er fer málið fyrir lögfræðing þegar
allt annað hefur veriö reynt.“
En í flestum tilfellum leysast málin
áður en til lögfræðings kemur. Að
sögn Elfu er oft reiði í spilinu.
„Það hleypir illu blóði í fólk ef
kaupmaður staðhæfir að það hafi
ekki þvegið flíkina rétt. Þá fýkur í
það og allir verða reiðir. Málin leys-
ast flest með tilkomu þriðja aðila. Þó
eru nokkrir kaupmenn sem láta ekki
segjast. Það er kjánaskapur að gera
sér ekki grein fyrir hve slæm auglýs-
ing felst í Ulu umtali.“
Hvað er gert?
Til að hafa samband við Kvörtun-
arnefndina verður fólk að hafa reynt
til þrautar að ná samkomulagi. Þá
hringir það og kvartar.
„Þá byrja ég á því að hringja í selj-
anda og fá hans hlið á málinu. Þá
reyni ég að meta málið og fá álit, t.d.
Iðntæknistofnunar. Því næst hringi
ég aftur í seljanda og skýri málið
fyrir honum. Ef hann lætur ekki
segjast sendi ég bréf, og hringi
kannski einu sinni í viku í mánuð.
Ef það dugar ekki til fer málið í lög-
fræðing.“
í máli Elfu kom fram áö viö það
að fara í lögfræðing lyki málum oft-
ast nær því fólk legði ekki útí lög-
fræðikostnað nema það vaeri alveg
visst um að vinna málið. Það eru því
fá mál sem fara þá leiðina. -PLP
Bílaleiga SH
l£iörétting á verðkönnun
í verðkönnun sem birt var hér í blaðinu á dögunum var missagt að
Nissan Micra, og Mazda 323 bifreiðar kostuðu kr. 1.700 á dag hjá bílaleigu
SH. Þetta var alrangt. Bílarnir kosta kr. 1.280, og er kílómetragjald kr.
12,80. SH bílaleigan er því í hópi ódýrari bílaleiga.
Er hér með beðist afsökunar á þessum leiðu mistökum.
-PLP
Ný tegund eggja
- sem ekki auka kólesteról í blóði
Anna Bjamason, DV Denver
Innan árs er talið líklegt að komin
verði á neytendamarkaö í Bandaríkj-
unum ný tegund eggja sem ekki auka
kólesteról í blóði og muni jafnvel
stuðla að lækkun þess. Þetta þykja
góðar fréttir fyrir þá sem eru sólgnir
í egg og einnig fyrir framleiðendur
fiskilýsis, en slíkir finnast margir á
íslandi.
Galdurinn við framleiðsluna er aö
fóðra hænumar á ákveðnum omega
fitusýrum sem eru í fiskilýsi en fyrir-
fram var vitað að þessi efni draga
úr hættu á hjartasjúkdómum og
hjartaáfalli. Vondu fréttirnar eru
hins vegar þær að það er bæði fisk-
lykt og fiskbragð af þessari nýju
eggjategund, en næringarfræðingur
við háskólann í Salt Lake City hefur
þegar fundið lyktarlausar Omega
fitusýrur og með notkun þeirra verð-
ur ekkert aukabragð af eggjunum.
Frekari tilrauna er þó þörf og er
reiknað með að ár líði áður en
„hættulausu" eggin koma á mark-
að.
Þessar tilraunir voru kostaöar af
framleiðendum fiskilýsis. Nýju eggin
voru prófuð á tólf manneskjum sem
aUar höíðu eðlilegt kólesterólmagn í
blóði. Meginniðurstaðan var sú að
fjögur „fiskegg" á dag lækkuðu lítil-
lega kólesterólmagnið í blóði þeirra.
Vitlaust verðmerkt
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar.
Nafn áskrifanda
Ef vitlaust er verðmerkt er það
mál seljanda en ekki kaupanda.
Samkvæmt samningslögum er
óheinúlt að breyta vöruverði eftir
á nema hægt sé að sýna fram á aö
kaupandi hefði átt að vita að mistök
hafi átt sér staö. Og erfitt getur
verið að sýna fram á slíkt.
Algengt er að vitlaust sé verð-
merkt í verslunum. Þó nokkur
dæmi eru um að fólk hafi fest kaup
á vöru sakir ótrúlega lágs verðs á
merkingu. Fyrir hefur komið að
kaupmenn hafi viljað rifta kaupum
sakir rangrar verðmerkingar. En
það getur reynst erfitt.
Við kaup á vöru kemst sjálfkrafa
á samningur milli kaupanda og
seljanda. Til að rifta þessum samn-
ingi þarf samþykki beggja. Ef var-
an hefur verið merkt á of lágu verði
og einhver hefur fest kaup á henni
getur seljandi ekki rift kaupunum
nema hann geti fært sönnur á aö
kaupandi hafi vitað að um mistök
væri að ræða. Og það er hægara
sagt en gert. -PLP
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks_____
Kostnaður í apríl 1988:
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.