Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Qupperneq 39
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
55—
DV LífsstOl
Þorsteinn að sleppa landfestum og um það bil að hendast fram af Úlfarsfelli.
hlaupa með drekana á jafnsléttu og
fram af hólum á meðan þeir eru að
átta sig á eiginleikum drekanna og
hvemig á að stýra þeim.“
- Enerþettaekkihættulegíþrótt?
„Nei, hún á ekki að vera hættuleg
og er ekki hættulegri en hver svif-
drekamaður vill gera hana. Svif-
drekaflug er eins og aðrar íþróttir
að ef aðstæður eru látnar ráða ferð-
inni og menn eru ekki að taka neinar
óþarfa áhættur þá er þetta hættulaus
íþrótt.
Drekarnir öruggir
Jafnlofthræddir og við erum þá
vitum við hvað drekarnir eru örugg-
ir, við vitrnn hvað þeir geta borið og
erupi því óhræddir. Einu óhöppin
sem í rauninni geta komið fyrir eru
þegar vindurinn er óheppilegur og
okkur ber langt frá þeim stað þar sem
bíllinn er. Þá þurfum við að bera
drekana langar leiðir og það getur
orðið heldur lýjandi enda drekarnir
30-40 kíló.“
Þess má geta að aðeins eitt alvar-
legt slys hefur orðið í svifdrekaflugi
á íslandi þegár maður lést í Vest-
mannaeyjum fyrir nokkrum árum.
Þá var verið að draga drekann með
bíl og runa óhappa varð til þess að
drekinn brotnaði og flugmaðurinn
hrapaði til jarðar. En í venjulegu
svifdrekaflugi hefur aldrei orðið al-
varlegt slys hér á landi.
„Aki í bólu“
Þegar blaðamaður var kominn upp
á topp Úlfarsfells með Kristjáni og
Þorsteini voru þar fyrir jeppar og í
loftinu var einn dreki á góðri uppleið.
„Þama er Áki búinn að finna góða
bólu,“ sagði Kristján. Með bólu er
átt við loftuppstreymi þar sem heitt
loft leitar upp. En er þá ekki hætta
á að drekarnir lendi í „loftgötum"?
„Það er ekkert til sem heitir loft-
gat. Það er bara spurning um upp-
og niðurstreymi loftsins. Þegar kalt
loft leitar niður er það oft kallað loft-
gat en er í rauninni bara spurning
um hringrás loftsins. Þegar kalt loft
leitar niður leitar heitt loft upp ein-
hvers staðar annars staðar. Og það
er heita loftið á uppleið, eða bólurn-
ar, sem við leitum mest að því þá
getum við komist hærra.“
- Enhverertilgangurinnmeðsvif-
drekaflugi?
„Það er náttúrlega sú tilfmning að
svífa frjáls í loftinu eins og fuglinn
fljúgandi. Útivera og ferskt loft spila
að sjálfsögðu inn í og ekki síst félags-
skapurinn. Svifdrekamenn eru ekki
fjölmennir en með þeim er góð sam-
staða og félagsskapur.
Að komast sem hæst
og lengst
En takmarkið með fluginu er að
komast sem hæst og sem lengst, að
því keppum við. Sá sem hefur haldið
sér lengst á flugi í einu var í loftinu
í sex og hálfan tíma. Hann fann góð-
ar bólur og náði alltaf að hækka sig.
Og þá höfum við náð að fljúga á ann-
að hundrað kílómetra í einu svifi hér
á landi, en erlendis hafa menn kom-
ist mun lengra enda aðstæður sums
staðar betri, eins og til dæmis í Ölp-
unum.“
Nú lenti Aki Snorrason hjá okkur
þar sem Kristján og Þorsteinn voru
að ljúka við að setja dreka sína sam-
an.
„Ég er flugmaður," sagði Áki. „í
vinnunni flýg ég DC-8 þotum en í
frítímanum er ég á svifdrekum. Mér
finnst mun skemmtilegra að fljúga
drekunum en þotunum," sagði Áki
og sagði flesta sína frítíma fara í svif-
ið.
Kristján og Þorsteinn voru nú bún-
ir að koma drekunum saman og
reiöubúnir að fara í loftið. Á drekun-
um voru þeir með hæðarmæli og
hraðamæh en önnur verkfæri voru
ekki með í ferðinni. Til öryggis voru
þeir með neyðarfallhlíf, sams konar
og fallhlífarstökkvarar eru með sem
varafallhlíf.
Dýrt og tímafrekt?
- Er þetta ekki dýrt sport og tíma-
frekt?
„Það er hægt að fá notaða dreka
fyrir byrjendur á um 35 þúsund
krónur. En um leið og menn fá dellu
vilja þeir fá fullkomnari og dýrari
dreka. Þá erum við farnir að tala um
þetta 90-150 þúsund krónur og drek-
inn minn kostar um 180 þúsund
krónur," sagði Kristján.
„Hvað tímann varðar þá fer náttúr-
lega enginn timi í sportið nema þegar
gefur til flugs. Og þegar gefur verð-
um við eiginlega að grípa tækifærið
og fá okkur lausa úr vinnu jafnvel
þótt það sé um miðjan dag. Það er
aö vísu auðvelt fyrir okkur þar sem
við erum með eigin fyrirtæki en við
verðum þá bara í staðinn að vinna
frameftir á kvöldin. Það fer nefnilega..
ekki alltaf saman gott flugveður og
frí.“
- Hvað er gott flugveður?
„Það má gjarnan vera smávindur
en það sem við leitum helst eftir er
órói í loftinu. Ef það er órói í loftinu
er hægara að finna bólur og upp-
streymi."
Ekki um annað að ræða
- Hvemig tekur fjölskyldan þessu
sporti ykkar?
„Hún tekur þessu í rauninni mjög
vel þó svo við séum að heiman tím-
unum saman í fríum og verðum jafn-
vel að vinna fram á nótt til þess að
vinna upp það sem ekki var gert í
hefðbundnum vinnutíma. En hvað ^
eiga konurnar okkar svo sem að gera
annað en taka þessu vel. Þetta er slík
della að viö getum ekkert við hana
ráðið,“ sögðu þeir Kristján og Þor-
steinn hlæjandi, en þeir hafa verið
með svifdrekadelluna í níu ár.
-ATA
r
V . ■ • V* '■;:■:■■■ - . ■ .* ‘ ..................... . ','.■ , .... ,... : ........U., Vj 1 ■!
Svífandi eins og fuglinn fljúgandi! Þorsteinn kominn á loft og þaðan varð honum ekki haggað næstu stundarfjórðungana.