Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Blaðsíða 40
56
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
Sviðsljós
Sunnukórinn á ísafirði. DV-mynd BB
Sunnukórinní
hljómleikaferð
til Ungveijalands
Siguijón J. Sigurösson, DV, ísafirdi:
Miklar annir hafa verið undanfar-
iö hjá kórfélögum í Sunnukómum á
ísalirði þar sem kórinn hefur verið
t að æfa undir væntanlega Ungverja-
landsferö sem farin verður í júní.
Kórinn var með tónleika í sal
grunnskólans á ísafirði fyrir
skömmu en þeir tónleikar voru und-
irbúningur fyrir ferðina. Á efnis-
skránni vora íslensk lög eftir ýmsa
höfunda, til dæmis ísfirsku höfund-
ana Hjálmar H. Ragnarsson og Jónas
Tómasson yngri. Einnig voru flutt
ungversk lög eftir Béla Bartok.
Einsöngvari með kórnum var
Margrét Bóasdóttir, söngkona og
fyrrverandi stjórnandi kórsins, og
einleikari á hljómleikunum var
Anna Áslaug Ragnarsdóttir. Stjórn-
andi kórsins er Beáta Joó.
Aðeins var um þessa einu hljóm-
ieika að ræöa fyrir utanlandsferðina
vegna anna. Kórinn mun þó koma
fram á hljómleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í byrjun júní á ísafirði
og nágrenni.
50 ára afmælishátíð
Um daginn hittust nemendur, 21 að tölu, á 50 ára afmælishátíð skólasystkina frá Siglufirði í Hreðavatnsskála en
þau voru öll nemendur þriðja bekkjar í Gagnfræðaskóla Siglufjarðar árið 1955. Flestir nemendurnir verða fimmtug-
ir á þessu ári eða eru orðnir það þegar. Þriðji bekkur á þessum árum var fyrir 17 ára nemendur á þessum árum,
þó aldurskerfið sé ekki það sama í dag. Á þessari mynd má sjá bekkjarmynd sem tekin var á árinu 1955 af hópn-
um. Aftasta röð frá vinstri: Guðmundur Steinsson, Ágúst Björnsson, Ragnar Páll Einarsson, Jakob Ármannsson,
Gunnar Ragnars, Magnús Sigurðsson, Ragnar Guðmundsson, Sveinn Gústafsson. Miðröð frá vinstri: Sigríður
Jóhannsdóttir, Guðmunda Óskarsdóttir, Svana Jónsdóttir, Herdis Haraldsdóttir, Camilla Jónsdóttir, Dóróthea Stef-
ánsdóttir, Sigriður Sigurðardóttir. Fremsta röð frá vinstri: Sigurjóna Lúthersdóttir, Þórdís Jónsdóttir, Sólveig Stef-
ánsdóttir, Alda Guðbrandsdóttir, María Ásgrimsdóttir, Edda Þráinsdóttir.
a
Dallasbúar voru hrifnastir af íslenskum pylsum með öllu, af því sem
fslendingar höfðu upp á að bjóða.
Fyrir skömmu var haldinn alþjóða-
basar í Dallas í Texas með þátttöku
fulltrúa frá 50 löndum, þar á meðal
frá íslandi. Tilgangurinn með þess-
um basar er aö kynna Texasbúum
menningu þessara þjóða, og var
auk þess boðið upp á skemmtiat-
riði, mat og vörur frá þátttökulönd-
unum. Hver þjóð hafði afmarkað
svæði til afnota til að kynna sitt
land.
íslendingar, sem búa í Norður-
Texas, höfðu ýmsar vörur á boð-
stólum.og gáfu auk þess sýningar-
gestum yfir 3000 bæklinga, bækur
og uppskriftir að íslenskum mat til
kynningar á íslandi.
Hátíðin hófst með skrúðgöngu,
þar sem fulltrúar klæddust þjóð-
búningum frá sínu landi, og sómdi
íslenski búningurinn sér vel þar á
meðal. Alþjóðadags barna var
einnig minnst á hátíðinni með
skrúðgöngu. íslendingar höföu til
sýnis og sölu ýmsa muni til að
kynna landið fyrir Texasbúum, þar
á meðal handprjónaðar lopavörar,
niðursoðna sjávarrétti, íslensk frí-
merki og landakort og fleira, en
mesta lukku vöktu þó ljúffengar
íslenskar pylsur með sinnepi frá
íslandi. Annað af stærstu dagblöð-
unum í Texas, „The Dallas Morn-
ing News“, skrifaöi um sýninguna
og þar voru íslensku pylsunum
gerð góð skil.
I félagi Islendinga í Norður-Texas
eru 24 félagsmenn, en alls munu
búa um það bil 60 íslendingar á
þessu svæði.
íslendingar á svæðinu gengu um með fána og spjöld til þess að vekja
athygli á landinu.
í Dallas