Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Síða 42
58
Fréttir_____________________________________
Félagsmálaráðherra:
Kaupleigukerfið er
það sem koma skal
- vaxtahækkun hjá Húsnæðisstofnun möguleg en ekki í tengslum við hliðarráðstafanir
Jóhanna Sigurðardóttir segir kaupleiguibúðir vera það sem koma skal.
Félagsmálaráðherra, Jóhanna Sig-
urðardóttir, hefur skipað nefnd til
að endurskoða almenna húsnæðis-
málakerflð. Þá er í gangi vinnuhópur
sem er að skoða félagsmálakerfið.
Mun sá hópur skila niðurstöðum sín-
um fyrir 1. júlí en þá er ætlunin að
skipa nefnd sem íjalli um félagslega
kerfið. En af hverju er verið að um-
bylta þessum kerfum svo skömmu
eftir að miklar lagasetningar hafa átt
sér stað?
„Almenna húsnæðiskerfið er end-
urskoðað núna til að fá festu í það.
Til stóð að skoða félagslega kerfið
fyrir tveim árum og var skipuð milli-
þinganefnd til þess. Engin niðurstaða
fékkst úr því en nefnd verður einnig
skipuð um það í sumar,“ sagði félags-
málaráðherra. Kerfin tvö í hús-
næðiskerfinu, það félagslega og hið
aímenna, fá þvi mikla umfjöllun í
sumar og það sitt í hvoru lagi sem
mörgum þykir marka tímamót því
með því er verið að aðgreina kerfin
enn frekar í sundur. Sagði ráðherra
að því yröi fylgt eftir með lagasetn-
ingu um almenna kerfið í haust. En
hver verður framtíðarþróunin í fé-
lagslega kerfinu?
„Mín skoðun er sú að kaupleigu-
, kerfið geti svarað öllum þeim þörfum
sem komið geta upp í félagslega kerf-
inu. Það hlýtur að koma til álita að
sameina allt félagslega kerfið innan
kaupleigukerfisins en nauösynlegt
er að sameina félagslega kerfið. En
ég ræð þessu auðvitað ekki ein."
Ráðherra vildi ekki tímasetja hve-
nær búast mætti við þessari einfóld-
un á félagslega kerfinu en sagði að
það gæti þó orðið frekar fyrr en síð-
ar.
„Ekki tímabært að hækka
vexti nú“
Breytingar á vöxtum lána frá Hús-
næðisstofnun komu inn í umræðuna
um væntanlegar efnahagsráðstafan-
ir ríkisstjórnarinnar. Var meðal ann-
ars nefnt að fella út vísitölubindingu
en hækka vexti upp í 5%. Þetta var
tillaga framsóknarmanna og þýddi
væntanlega það að lánin yrðu enn
hagstæöari en þau eru í dag. Mörgum
þykir þetta ekki raunhæft og er það
hald margra, sem um húsnæðismál-
in hafa fjallað, að ekki verði komist
hjá því að hækka vexti af lánum.
Þeir eru í dag 3,5% á meðan almenn-
ir vextir eru 8-10%. En kemur til
greina að hækka vexti nú í kjölfar
annarra ráðstafana ríkisstjórnarinn-
ar?
„Mín skoðun er sú að vextina verði
að hækka en ég tel hins vegar ekki
tímabært að gera það núna," sagði
ráðherra. Jóhanna sagði að það yrði
eitt af hlutverkum nefndar þeirrar,
sem nú hefur verið skipuð undir for-
ystu Kjartans Jóhannessonar, að
endurskoða þessi ákvæði. Nefnd sem
ráðherra skipaði í janúar átti að end-
urskoða vaxtaákvæði, til dæmis
hvort unnt væri að haga vaxta-
greiðslum í gegnum skattakerfið.
Ráðherra tók fram að vextir verða
aldrei reiknaðir afturvirkt en hins
vegar er ákvæði um það í öllum lán-
um Húsnæðisstofnunar að unnt sé
að hækka vexti á þegar teknum lán-
um. Þannig að þó að fólk sé búið að
fá lán í hendurnar með 3,5% vöxtum
þá er engin trygging fyrir því að þeir
vextir geti ekki hækkað.
-SMJ
Tómstundir unglinga á Akureyri:
Tónlist og íþróttir njóta mestrar hylli
Gylfi Kxistjánsson, DV, Akureyn:
Samkvæmt könnun á tómstundum
unghnga á Akureyri njóta tónlist og
íþróttir langmestrar hylli. Könnun
þessi var gerð meðal nemenda í 7.,
8. og 9. bekk í skólum bæjarins, 710
nemendur svöruöu eða um 90% nem-
enda í þessum bekkjardeildum.
Stuðst var viö spurningalista sem
notaðir höfðu veriö í svipuöum
könnunum í Reykjavík, en spurning-
arnar aðlagaðar aðstæöum á Akur-
eyri.
61,5% unglinganna merktu við tón-
list sem áhugamál sitt, og 56,6% við
íþróttir. í þriðja sæti komu ferðalög,
útivist og útilegur með 35,5%, kvik-
myndir 34,4%, vélhjól, fjórhjól og
vélsleöar 31,7%, fót/tíska 30,0%, tölv-
ur 22,8%, gæludýr 22,7%, hestar
21,7% og dans 21,0%. Önnur áhuga-
mál komu þama talsvert á eftir.
Skiptingin var nokkuö mismun-
andi eftir kynjum. Þannig merktu
39,4% stúlknanna við dans en aðeins
2,3% strákanna og viö liðinn föt/tíska
merktu 52,3% stúlknanna en aðeins
7,4% strákanna. Við hðinn vélhjól,
fjórhjól, vélsleðar merktu 50,1%
strákanna en aðeins 13,7% stúlkn-
anna og 37,0% strákanna sögðust
hafa áhuga á tölvum en aðeins 8,9%
stúlknanna.
Lítið reykt og drukkið
Spurt var um ýmislegt fleira en
tómstundir. Þannig kom fram í
könnuninni að aðeins 3% ungling-
anna nota tóbak. 97% sögðust ekki
reykja, 2% sögðust reykja 1-5 síga-
rettur á dag og 1% reykja meira en
10 sígarettur á dag.
Unghngamir voru spurðir hvort
þeir heíðu neytt áfengis helgina áður
en könnunin var gerð. 8% þeirra
sögðust hafa fundið á sér þá helgi,
21% sögðust stundum neyta áfengis
en 71% sögðust aldrei neyta áfengis.
Vantar samastað
Unghngarnir voru spurðir: „Hvað
finnst þér aö helst þyrfti aö gera til
þess að bæta æskulýðsstarf á Akur-
eyri?“
Um helmingur unghnganna kom
með thlögur um úrbætur. Nokkrar
voru mjög almenns eðhs, svo sem að
auka þyrfti fjölbreytni og hafa starfiö
skemmtilegra. Flestir þeirra sem á
annaö borð svömðu spurningunni
settu fram ákveönar úrbótathlögur,
en aðeins ein þeirra virtist hafa al-
mennan hljómgrunn. Hún var á þá
leið að það vantaði samkomustað
fyrir unghnga á aldrinum 16-18 ára
þar sem þeir gætu hist, helst alla
daga og allan daginn, en einkum á
kvöldin og um helgar og þar væri
aðstaða til að dansa.
ALTERNATORAR
tH |§|raí fyrir báta
★ 12 volt í stærðum 63 og 108 Amp
★ 24 volt í stærðum 40-65-80 og 100 Amp
f *}. ★ Frá USA
É | Pw ★ Allir einangraðir (fljótandi pólar)
★ Allir með innb. spennustilli
★ Frábær verð og gæði ★ Nýir (ekki uppgerðir)
é f Hl Einnig startarar fyrir
margar bátavélar.
VnX" Varahluta og viðgerðaþjónusta.
LÆKKAflC^ ^7VERÐ^_ Bílaraf hf.
Borgartúni 19 - sími 24700
,Í>RIÐJUDAGIÍR'24: IVTAÍ Í988.
Hafnarfjorður
fær Helllsgerði
í afmælisgjóf
-kaupstaður í 80 ár
Hátíðardagskrá í thefhi þess aö
80 ár em hðin frá því aö Haöiar-
fjöröur fékk kaupstaðarréttindi
var kynnt af bæjarstjóra og full-
trúa framkvæmdanefndar hátiö-
arinnar á veitingahúsinu A.
Hansen.
Hefst dagskráin á afmælisdag-
inn, 1. júní, með athöfii í Hellis-
gerði sem er skrúögarður Hafn-
firðinga. Þar mun málfúndafélag-
ið Magni afhenda Hafnarfjarð-
arbæ Hellisgeröi formlega til
umsjónar og varðveislu. Þaö var
málfundafélagið sem hóf gróður-
setningu í Hehisgerði á miðjum
’þriðja áratugnum, en garðurinn
var opnaður almenningi 1927.
Hin síðari ár hefur Hafnarfjarð-
arbær séð um Hehisgerði að öllu
leyti, þannig aö um táknræna at-
höfn er að ræða.
Um kvöldið sama dag verður
hátíðardagskrá í Hafnarborg,
hinni nýju félags- og menningar-
miðstöð Hafnfirðinga þar sem
forseti íslands og fleiri gestir
verða viðstaddir.
Annan júní verða ýmsar sýn-
ingar opnaðar. Þar má nefha sýn-
ingu í byggðasafninu eða Ridd-
arasafhinu er tengist ákveðnum
persónum úr sögu Hafnarfjarðar,
sýningu í Öldutúnsskóla um
skipulag í Hafnarfirði síðastliöin
80 ár og loks kvikmynda- og
myndbandasýningu í Bæjarbíói.
Þar verður kvikmynd gerö í til-
efni 50 ára afmæhs bæjarins
sýnd, en hún hefur verið færð
yfir á myndband. Hefur Erlendur
Sveinsson verið fenginn til að
safiia alls kyns myndbútum um
Hafnarfjörð á myndband, þeir
elstu eru frá 1936.
Föstudagurinn 3. júni veröur
helgaður börnunum, með hóp-
göngu bama, iþróttamótum,
skákmóti og fieiru.
Þann dag veröur einnig hsta-
verk á gafli fiskmarkaöarins í
bænum afhjúpað. Er það eftir
Gest Þorgrímsson og Rúnu og
verður sjómönnum og fisk-
vinnslufólki boöið sérstaklega til
að vera viðstatt þá athöfn.
Síöasta daginn, laugardaginn 3.
júni, verða aðalhátiöarhöld þau
sem aö bæjarbúum snúa með fiöl-
skylduhátíð i íþróttahúsinu, ahs
kyns skemmtiatriðum og uppá-
komum í miðbænum.
-HLH
Nýbygging Alþingis:
Unniö að
teikningum
Verið er að vinna að teikning-
um að nýbyggingu fyrir Alþingi.
Þær teiknihgar, sem nú er verið
að gera, eru th þess að Alþingi
geti tekiö þetta mál th efnislegrar
meðferðar á næsta þingi. í fjár-
lögum þessa árs var varið sex
mhljónum króna th hönnunar-
vinnu.
Eftir að þessar teikningar verða
lagðar fyrir Alþingi verður fyrst
hægt að ákveða h vort ráðist verö-
ur í lokahönnun hússins. Verði
þaö gert er eftir að ákveða hvort
húsiö verður byggt og þá hvenær.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
forseti sameinaös þihgs, sagði aö
á árinu 1981 heföi veriö ákveðið
að efna til samkeppni um nýby gg-
ingu fýrir Alþingi. Af þeim teikn-
ingum sem bárust heföi ein veriö
valin og eftir henni væri unnið
nú.
Eins og fyrr sagði voru veittar
6 mihjónir króna af fjárlögum
þessa árs th nýbyggingarinnar. í
fyrra voru veittar 12 milljónir.
Þorvaldur Garðar taldi víst aö
ekki yrði unniö fyrir hærri fjár-
hæð en fiárlög gerðu ráð fyrir.
-sme