Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Qupperneq 43
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
59
Fólk í fréttum
Arni Einarsson
Ámi Einarsson, fulltrúi hjá
Áfengisvarnaráöi, hefur verið í
fréttum DV, en hann og Ingólfur
Guðmundsson, námsstjóri í
fræðslu um ávana- og fikniefni,
sögðu upp störfum sínum vegna
þess að heilbrigðisráðherra og
menntamálaráðherra greiddu at-
kvæöi með bjórfrumvarpinu á Al-
þingi. Með afstöðu sinni bentu þeir
á að viðkomandi ráðherrar hefðu
sniðgengið upplýsingar um að bjór-
inn leiddi til aukinnar áfengis-
neyslu. Árni er fæddur 3. ágúst
1955 á Gilsárvöllum I í Borgarfirði
eystrfi og lauk stúdentsprófi frá
MT 1975. Hann var kennari við
Staðarborgarskóla í Breiðdal
1975-1976 og skólastjóri þar 1976-
1977. Ámi var framkvæmdastjóri
íslenskra ungtemplara 1978-1982
og í stjórn þeirra samtaka 1979-
1983, formaður 1980-1983. Hann
hefur verið ritari samvinnunefnd-
ar bindindismanna frá 1980 og í
stjóm norræna ungtemplarasam-
bandsins frá 1982. Ámi hefur verið
fulltrúi í Áfengisvarnaráði frá 1982
og var í áfengismálanefnd ríkis-
stjómarinnar 1983-1986. Hann
vann í hálfu starfi hjá menntamála-
ráðuneytinu við undirbúning að
fíkniefnafræðslu í gmnnskólum
1983-1984 og hefur veriö formaður
Samtaka skólamanna um bindind-
isfræðslu frá 1985. Ámi var í vara-
stjórn Landssambandsins gegn
áfengisbölinu 1984-1986 og gjald-
keri Átaks gegn áfengi og öðrum
fíkniefnum 1986-1988. Hann hefur
verið í stjórn Æskulýðssambands
íslands og varastjóm Æskulýðsr-
áðs ríksins frá 1987. Ámi lauk
kennsluréttindaprófi frá HÍ1982 og
BA-prófi í uppeldisfræði frá HÍ
1988.
Sambýliskona Áma er Svala
Guðjónsdóttir, f. 3. apríl 1954, skrif-
stofumaður. Foreldrar hennar eru
Guðjón Sveinsson, rithöfundur á
Breiðdalsvík, og kona hans, Jó-
hanna Sigurðardóttir verslunar-
stjóri. Fósturdóttir Áma er ísold
Grétarsdóttir, f. 29. ágúst 1972.
Dóttir Áma og Svölu er Eygló, f.
6. september 1983. Systkini Áma
em Guðleif, f. 23. september 1956,
bankastarfsmaður á Seltjarnar-
nesi, gift Ómari Valþóri Gunnars-
syni bílsfjóra; Þórdís Sigríður, f. 25.
júní 1959, fóstra á Breiðdalsvík, gift
Jóni Elvari Þórðarsyni, verka-
manni og bílstjóra; Þorleifur Ingi,
f. 30. desember 1961, verkamaður á
Fáskrúðsfiröi, kvæntur Huldu
Lindu Stefánsdóttur verslunar-
manni. Bróðir Árna, samfeðra, er
Stefán Scheving, f. 19. maí 1960,
verkamaður á Egilsstöðum.
Foreldrar Áma em Einar Áma-
son, b. í Felli í Breiðdal, og kona
hans, Guðrún Þorleifsdóttir. Einar
er sonur Áma, b. á Hólalandi í
Borgarfirði eystra, Einarssonar, b.
í Húsavík í Borgarfirði, Árnasonar,
b. í Húsavík, Sigurðssonar, beykis
á Eskifirði, Olafssonar, bróður Ei-
ríks, fóður Sigurðar Breiöfjörð.
Móðir Einars var Guðrún Einars-
dóttir, b. í Barðsgerði, Einarssonar
og konu hans, Lukku Sveinsdóttur,
systur Jóns, langafa Þóreyjar,
ömmu Eyþórs Einarssonar, for-
manns Náttúmverndarráðs. Móðir
Áma var Þórdís Hannesdóttir, b. á
Tjarnarlandi í Hjaltastaðaþinghá,
bróður Steinunnar, móður Þórðar
Sveinssonar, yfirlæknis á Klepps-
spítala, foður Agnars rithöfundar
og afa Hrafns Gunnlaugssonar.
Önnur systir Hannesar var Val-
gerður, móöir Guðmundar Frí-
manns skálds. Hannes var sonur
Þórðar, b. á Ljótshólum í Svínadal,
bróður Sólrúnar, langömmu
Bjöms Magnússonar prófessors,
föður Björns, prófessors í' guð-
fræði. Þórður var sonur Þórðar, b.
á Kúfustöðum í Svartárdal, Jóns-
sonar, b. á Lækjamóti, Hallssonar
á Húki, Björnssonar, bróður Ólafs,
langafa Guðmundar, langafa Páls
Péturssonar alþingismanns.
Móðir Þórdísar var Sigríður Sig-
urðardóttir, b. í Sandvík, Þórarins-
sonar og konu hans, Ingibjargar
Geirmundsdóttur, b. í Gilsárteigi,
Eiríkssonar. Móðir Ingibjargar var
Sigríður-Jónsdóttir, b. á Hólalandi,
Ögmundssonar, b. í Breiðuvík,
Oddssonar, b. á Nesi í Loðmundar-
firði, Guðmundssonar, ættföður
Galdra-Imbuættarinnar.
Guðrún er dóttir Þorleifs, b. á
Gilsárvöllum I, Jónssonar, b. á
Úlfsstöðum í Loðmundarfirði,
bróður Þorsteins, föður Knúts, full-
trúa í Rvík. Jón var sonur Jóns á
Nesi í Loðmundarfirði Þorleifsson-
ar og konu hans, Guðrúnar Jóns-
dóttur, systur Maríu, langömmu
Vilhjálms Hjálmarssonar, fyrrv.
menntamálaráðherra. Móðir Þor-
leifs var Guðrún Stefánsdóttir, b. í
Ærlækjarseh, Gunnlaugssonar.
Móðir Stefáns var Sigurveig Sig-
urðardóttir, b. í Skógum í Óxar-
firði, Þorgrímssonar og konu hans,
Árni Einarsson.
Rannveigar Gunnarsdóttur, b. á
Ærlæk, Þorsteinssonar, ættföður
Skíða-Gunnarsættarinnar.
Móðir Guðrúnar var Guðbjörg,
systir Halldórs, afa Halldórs Ás-
grímssonar ráðherra. Guðbjörg
var dóttir Ásgríms, b. á Grund í
Borgarfirði, Guðmundssonar.
Móðir Ásgríms var Ingibjörg
Sveinsdóttir, b. á Snotrunesi,
Snjólfssonar og konu hans, Gunn-
hildar Jónsdóttur sterka í Höfn,
Árnasonar, bróður Hjörleifs,
langafa Jörundar, föður Gauks,
umboðsmanns Alþingis.
Afmæli
Þorvarður Jóhann Lárusson
Þorvarður Jóhann Lárusson
skipstjóri, Sæbóli 46, Eyrarsveit, er
fimmtugur í dag.
Þorvarður fæddist aö Krossnesi
við Grundarfjörð og ólst þar upp.
Hann byijaði til sjós innan við
fermingu, tók stýrimannapróf og
hefur veri skipstjóri á bátum frá
Grundarfirði frá 1966. Hann var
lengi með eigin báta og þá m.a.
Lunda SH 1 frá 1969.
Þorvarður átti átta sysktini, en
tveir bræður hans og ein systir eru
látin. Þau voru: Guðmundur, sem
lengi starfaði hjá ísal og var búsett-
ur í Reykjavík; Lýður sjómaöur,
sem lést af slysförum, ungur og
ókvæntur í Grundafirði; og Jóna,
sem var húsmóöir í Keflavík, en
hún lést fyrir nokkrum árum.
Systkini Þorvarðar á lífi eru:
Lára, húsmóðir í Reykjavík; Guðni,
verkstjóri í Sandgerði; Helgi, bú-
settur í Njarðvíkum; og Guðrún,
húsmóðir í Keflavík.
Foreldrar Þorvarðar voru Lárus
Guðmundsson, útvegsbóndi í
Krossnesi, og kona hans, Sigurlaug
Skarphéöinsdóttir af Gunnlaugs-
ætt á Ströndum.
Foreldrar Lárusar voru Guð-
mundur Skúlason, útvegsbóndi í
Krossnesi, og kona hans, Guðrún
Kristín Jóhannesdóttir. Guðmund-
ur var sonur Skúla Jónssonar, b. á
Suðurbár í Eyrarsveit, Jónssonar.
Þorvarður tekur á móti gestum
að heimih sínu laugardaginn 28.5.
eftir klukkan 19.
Þorvarður Jóhann Lárusson.
Ósk Þórhallsdóttir
Ósk Þórhahsdóttir húsmóðir,
Garðbraut 65, Garði, varð sjötug
20,5. sl.
Ósk fæddist að Bakka í Viðvíkur-
sveit í Skagafirði, dóttir hjónanna
Helgu Friðbjarnardóttur og Þór-
halls Ástvaldssonar sem lengst af
bjuggu í Litlu-Brekku í Skagafirði.
Ósk er gift Frímanni Þorkelssyni,
f. á Sveinastöðum í Grímsey, 13.9.
1917, syni Hólmfríðar Guðmunds-
dóttur og Þorkels Árnasonar frá
Básum í Grímsey.
Börn Óskar og Frímanns eru
Helga Hólmfríöur, f. 9.7.1940; Þór-
hahur Þorkell, f. 23.10.1942; Dýrleif
Eydís, f. 18.12. 1946; Anna, f. 16.3.
1948; Ægir, f. 9.1. 1951; Kristjana,
f. 7.7. 1953. Einnig ólu Ósk og Frí-
mann upp bróðurson Frímanns,
Þorkel Árnason, f. 20.7.1944.
Barnabörn Óskar eru tuttugu og
tvö en langömmubömin sex.
Ósk Þórhallsdóttir.
Til hamingju með daginn
85 ára
Guðmundur Guðmundsson,
Skriðuklaustri, Fljótsdalshreppi,
er áttatíu og fimm ára í dag.
80 ára
Lára Halldórsdóttir, Furugerði 1,
Reykjavík, er áttræð í dag.
Sveinbjörn Kristjánsson, Hring-
braut 50, Reykjavík, er áttræður í
dag.
Guðmundur Hólm, Skeggjagötu 23,
Reykjavík, er áttræður í dag.
70 ára
Stefán Guttormsson, Mánagötu 12,
Reyðarfirði, er sjötugur í dag.
Stefanía Sigurbjörnsdóttir, Hátúni
10, Reykjavík, er sjötug í dag.
Svanhildur Sigurjónsdóttir, Suöur-
götu 77, Hafnarfirði, er sjötug í dag.
60 ára
Þorgerður Bergsdóttir, Höfðabraut
16, Akranesi, er sextug í dag.
Þuríður Oddsdóttir, Hhðarvegi 146,
Kópavogi, er sextug í dag.
Guðmundur Vilhjálmsson, Espi-
lundi 11, Garðabæ, er sextugur í
dag.
50 ára
Svanborg Daníelsdóttir, Neðstaleiti
28, Reykjavík, er fimmtug í dag.
Halldór Friðriksson, Aratúni 5,
Garðabæ, er fimmtugur í dag.
40 ára
Kristján Bogason, Heiðarvegi 13,
Vestmannaeyjum, er fertugur í
dag.
Freyja Guðmundsdóttir, Garð-
braut 72, Gerðahreppi, er fertug í
dag.
Guðrún Kristjánsdóttir, Nökkva-
vogi 18, Reykjavík, er fertug í dag.
Ólafía Kr. Sigurðardóttir, Engi-
hjalla 1, Kópavogi, er fertug í dag.
Karl Helgi Gíslason, Bræðraborg-
arstíg 38, Reykjavík, er fertugur í
dag.
Ágúst Jónsson, Skipholti 47,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Elías Þorvaldsson, Fossvegi 17,
Siglufirði, er fertugur í dag.
Gylfi örn Ármannsson, Þórustíg
12, Njarðvík, er fertugur í dag.
Unnþór P. Halldórsson, Setbergi 8,
Þorlákshöfn, er fertugur í dag.
Magnús Ólason, Flókagötu 63,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Júlía K. Óskarsdóttir, Hagatúni 13,
Höfn í Homafirði, er fertug í dag.
Leiðrétting
Missagt var í afmæhsgrein um
Margréti Ásgeirsdóttur frá 26.4. að
systir Margrétar, Geirþrúður, hefði
veri forstöðukona Heilsuverndar-
stöðvarinnar í Reykjavík. Hið rétta
er að Geirþrúöur veitti forstöðu
barnadeild stöövarinnar. Er þessu
hér með komið á framfæri og við-
komandi aðilar beðnir afsökunar á
þessum mistökum.
Tilmæli til afmælisbama
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstand-
endur þeirra til að senda því myndir og
upplýsingar um frændgarð og starfssögu
þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast
í síðasta lagi tveimur dögum fyrír afmælið.
Munið að senda okkur myndir
ÆTTFRÆÐINÁMSKEIÐ - VÍÐA UM LAND
Ættfræöiþjónustan ráðgerir að halda nokkur byrj-
endanámskeið í ættfræði í vor og sumar, þar af eitt
í Reykjavík, en önnur úti á landi. Hvert námskeið
stendur yfir í 3-6 daga. M.a. er stefnt að því að halda
slík námskeið í Borgarnesi, Stykkishólmi, á Isafirði,
Blönduósi, Dalvík, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi
o.fl. stöðum ef næg þátaka fæst. Skráning er að
hefjast. Greiðslukortaþjónusta.
Ættfræðiþjónustan tekur að sér að rekja ættir fyrir
einstaklinga (4ra-6 ættliða ættartré) og semja niðja-
töl fyrir fjölskyldur og ættarmót. Hjá Ættfræðiþjón-
ustunni fást ennfremur hjálpargögn um ættfræði-
heimildir og hentug eyðublöð til skráningar á fram-
ættum og niðjatali.
Geymið auglýsinguna!
ÆTTFRÆÐIÞJÓNUSTAN, SÍMI (91) 27101