Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Síða 44
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
Mertning
Gægst í gegnum Glerbrot
Leikstjórn, klipping, og upptökustjórn:
Krlstin Jóhannesdóttir.
Aóalhlutverk: Björk Guómundsdóttir,
Kristbjörg Kjeld, Margrét Guómunds-
dóttir, Helgi Skúlason, Pétur Einarsson,
Margrét Ákadóttir og Björn Baldvins-
son.
Það var gaman að bera saman
íslenska dagskrárgerð í Sjónvarp-
inu að kvöldi hvítasunnudags.
Fyrst kom lag úr undankeppni
Eurovision en strax þar á eftir kom
sjónvarpsleikrit Kristínar Jóhann-
esdóttur. Og hvílikur munur.
Eurovisionlagið sameinaði aUt það
versta í íslenskri dagskrárgerð.
AUt lagðist á eitt, léleg kvikmynda-
taka, léleg sviðsmynd og umfram
allt léleg lýsing. Glerbrot Kristínar
Jóhannesdóttur sneiddi fagurlega
hjá þessum meginpyttum íslensks
sjónvarps svo umm var á að horfa.
Sálartötrarnir þvegnir
í upphafi leiksins sjáum við Lán-
eyju (Margrét Ákadóttir), húsmóð-
urina sem haldin er hreinlætisæöi.
TU að þvo nægir ekki ein þvotta-
vél, þær eru að minnsta kosti átta
og dugir ekki tU. Það eru ekki fotin
sem eru skítug heldur sálarlifið.
Líney er stjúpa Maríu og eins og
aUar stjúpur í góðum sögum hefur
hún biturt bragð í munni og hatar
stjúpdóttur sína. Hún fær því fram-
gengt að María er rúin öUu per-
sónufrelsi sínu og send á hæU.
Á hælinu á María heldur dauf-
lega vist. Þetta er vistheimUi og þar
er ræktað með stúlkunum hatur á
öUu karlkyns, djöfulhnn býr í karl-
manninum og þar með glötunin.
Karlmaðurinn er einnig að ein-
hveiju leyti guðakyns, María
kemst aUavega að raun um að engl-
Ur sjónvarpsleikritinu Glerbroti
ar eru karlkyns.
í karlmanninum er einnig fólgin
bæði glötun Maríu og frelsun. Hún
sker gat á englamynd og flýr inn í
helgidóminn, beint í faðm vinar
síns (Bjöm Baldvinsson). Hann er
prinsinn í ævintýrinu og flýja þau
Leiklist
Pétur Pétursson
saman yfir sjó og land en hniga að
lokum örmagna niður og deyja
drottni sínum alsæl.
Ave Discordia, ave Eris
Ekki er að efa að Glerbrot á eftir
að verða þjóðinni þvílíkt þrætuepli
og fyrra sjónvarpsleikrit Kristínar,
Líf tfl einhvers. Astæðan er að leik-
ritið er sýnt um svipaða „skin-
helgi“ og Líf tíl einhvers og fjallar
ekki um óUka hluti.
Efni beggja leikritana markast af
átökum ungUngsstúlkna við eigið
kynferði, en kynferði kvenna virð-
ist óhemjumikið tabú meðal þjóð-
arinnar. En hvað sem fólk nú las
út úr Lífi tU einhvers er Glerbrot
ekki kynórar og tiöaverkir. Þar er
tekið fyrir sjálft frelsi manneskj-
unnar til að hugsa og hrærast í eig-
in tilfinningum. Glæpurinn gagn-
vart Maríu er sá að faðir hennar
og stjúpa selja frelsi hennar fyrir
von um betra líf. Með því ganga
þau á grundvaUarrétt hennar og
eru því réttdræp.
Ríkið sem fær umráðarétt yfir
Maríu er gjörspillt og er valdbeit-
ingin algjör. Þetta vald er ekki
ósvipað því ríkisvaldi sem heldur
réttarhöld í sögu Kafka, marghöfða
skrímsl. Ekki dugir að berjast,
flóttinn er eina ráðið.
Öguð leikstjórn
Kristín veit hvað hún vfll og fær
það. Leikstjórn er hnitmiðuð og
öguð sem og aUur umbúnaður.
Ögunin er jafnvel of mikU og fær
myndin á sig blæ tUgerðar. Með
slíkri leikstjóm kaUar hún fram
vandaðan leik.
Björk Guðmundsdóttir bliknar
ekki við hUð atvinnuleikaranna.
Hlutverk hennar er náttúmlegra
en annarra, draumurinn er henn-
ar. Það fer því vel á því að leikur
hennar sé svo eðhlegur sem raun
ber vitni. Hlutur annarra hefur á
sér yfirbragð fágunar, þau em þátt-
takendur í draumi Maríu. Gaman
er að sjá hve gömlu góðu atvinnu-
leikaramir hafa náð góðum tökum
á sjónvarpsleik.
Veruleiki eða martröð
Óhemju markviss lýsing Snorra
Þórissonar og VUhjálms.Þórs Guð-
mundssonar, seiðmögnuð „míní-
maUstatónhst" Hilmars og hrífandi
sviðsmynd Guðrúnar Sigríðar Har-
aldsdóttur, aUt leggst á eitt. Gler-
brot hefur á sér mynd martraðar.
TU að undirstrika hve martröðin
er íjarræn er aUt tal dempað þann-
ig að það ómar Ukt og um bergmál
væri að ræða. Þetta hefur þann
ókost að draga allan mátt úr leikur-
um í sterkustu senunum. Hljóð-
setning hefði mátt vera betri í þeim.
Kristín er að verða einhvers kon-
ar Magna mater íslenskra sjón-
varpsáhorfenda á tyUistundum.
Það er vonandi að Sjónvarpið hafi
áræði tU að sleppa henni lausri enn
eina ferðina, hún tryggir góða
„horfun“ þótt ekki séu alUr að
skemmta sér.
-PLP
Jarðarfarir
Björg S. Sigurðardóttir lést 5. maí sl.
Hún fæddist að Syðri-Brekkum í
Skagafirði, en fluttist ung að Hof-
staðaseU með foreldrum sínum, Kon-
kordíu Ingiríði Stefánsdóttur og Sig-
urði Björnssyni. Um tvítugt fluttist
hún tU Reykjavíkur og bjó þar ætíö
síðan. Hún giftist Sigurði Gíslasyni,
en hann lést árið 1947. Þau hjónin
eignuðust eina dóttur. Útfór Bjargar
verður gerö frá Fossvogskirkju í dag
kl. 15.
Níelsína H. Hákonardóttir lést 11.
maí. Hún fæddist 6. júní 1907 á Akra-
nesi. Foreldrar hennar voru Hákon
HaUdórsson og fyrri kona hans, Þóra
Níelsína Helga Nielsdóttir. Eftirlif-
andi eiginmaður Nielsínu er Magnús
Ólafsson. Þau hjónin eignuðust þrjú
börn. Útför hennar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Stefanía Þórðardóttir, sem lést í
Sjúkrahúsi Akraness fóstudaginn 13.
maí, verður jarðsungin frá Akranes-
kirkju í dag, 24. maí, kl. 14.15.
Guðrún Sigurðardóttir, áður Flóka-
götu 61, andaöist á Elli- og hjúkr-
unarheimUinu Grund 10. þ.m. Jarð-
arförin hefur farið fram í kyrrþey
aö ósk hinnar látnu.
Útfór Valentínusar Alberts Jónsson-
ar, fyrrverandi bónda að Réttarholti,
Gnúpverjahreppi, sem lést 14. maí
sl„ fer fram frá Stóru-Núpskirkju,
Gnúpverjahreppi, í dag, 24. maí, kl.
15.
Lára Jóhannsdóttir, Stóragerði 9,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni
miðvikudaginn 25. maí kl. 15.
Útfór Guðríðar Sigurjónsdóttur,
Hvassaleiti 51, fer fram frá Dóm-
kirkjunni miðvikudaginn 25. mai kl.
15.
Útfór Vilborgar Jórunnar Þórarins-
dóttur frá Hrauni í Dýrafirði, fer
fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í
dag, 24. maí, kl. 13.30. Jarðsett verður
í Fossvogskirkjugarði.
Sigurlaug Friðjónsdóttir, Langholts-
vegi 99, verður jarðsungin frá Foss-
vogskapellu miðvikudaginn 25. maí
kl. 15.
Kolbrún Kristjánsdóttir, Skjólbraut
1, Kópavogi, veröur jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 26.
maí kl. 15.
Binna Berndsen Mann, sem andaðist
16. þ.m. á heimili sínu í Needham,
Mass., Bandaríkjunum, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík miðvikudaginn 25. maí nk.
kl. 13.30.
Útför Guðmundar Jónssonar frá
Kaldbak, Ránargötu 6, Reykjavík,
verður gerð frá Hallgrímskirkju
þriöjudaginn 24. maí kl. 13.30.
Vilhjálmur Guðmundsson frá Stóra-
Nýjabæ, Krísuvík, verður jarðsung-
inn frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 24.
maí, kl. 15.
Andlát
Bergur Helgi Ólafssonfrá Ánastöð-
um, Neshaga 14, Reykjavík, lést í
Landspítalanum 21. maí.
Albert Imsland, lést laugardaginn 21.
maí.
Valdimar Unnar Valdimarsson,
Skeljagranda 2, Reykjavík, lést af
slysfórum laugardaginn 21. maí.
Elínborg Sigurðardóttir frá Melabúð,
Hellnum, lést 20. maí í sjúkrahúsi
Akraness.
Elín Þórðardóttir, langholtsvegi 166,
andaðist að kvöldi föstudagsins 20.
maí.
Lára Samúelsdóttir, Laugavegi 53b,
andaðist í Borgarspítalanum 20. maí.
þriðjudaginn 24. maí kl. 20.30. Þetta eru
þriðju tónleikamir á vegum Styrktarfé-
lags íslensku óperunnar. Á efnisskránni
eru verk eftir Gunnar Reyni Sveinsson,
S. Rachmaninoff, M. Ravel og F. Liszt.
Miðaverð er kr. 400 og afsláttur til Styrkt-
arfélaga íslensku óperunnar, ellilífeyris-
þega og námsmanna er 15% (eða kr. 340).
Skólaslit og tónleikar
í Söngskólanum
Fimmtánda starfsári skólans er nú aö
ljúka og hafa um 150 nemendur stundað
nám viö skólann í vetur, 115 fullt nám
en um 35 háfa sótt hlutanám í kvöld-
skóla. Skólinn útskrifar að þessu sinni
einn söngkennara, Ingu Jónínu Back-
man. Sex nemendur luku VIII. stigi sem
er lokapróf úr almennri deild. Vortón-
leikar á vegum skólans verða sem hér
segir: VIII. stigs tónleikar: miðvikudag-
inn 25. maí kl. 20.30 í tónleikasal Söng-
skólans að Hverfisgötu 45, Sólrún Hlöð-
versdóttir, Ragnheiöur Lárusdóttir og
Þórdís Þórhallsdóttir, fimmtudaginn 26.
mai kl. 20.30 í tónleikasal skólans, Ólöf
G. Ásbjömsdóttir og Stefán Amgríms-
son. VIII. stigs og söngkennaraprófstón-
leikar: Mánudaginn 30. mai kl. 20.30 í
Norræna húsinu: Björk Jónsdóttir, VIII.
stigs og Inga J. Backman, söngkennara-
próf, LRSM. Píanóleikarar úr starfsliði
skólans, sem fram koma með nemendun-
um á þessum tónleikum, em Catherine
Williams, David Knowles, Jómnn Viðar
og Kolbrún Sæmundsdóttir. Aðgangur
er öllum heimill og ókeypis nema á tón-
leikana í Norræna húsinu, þar er verð
aðgöngumiða kr. 300. Skólaslit og loka-
tónleikar Söngskólans verða í íslensku
ópemnni 29. maí, skólaslitin kl. 15 og
lokatónleikar kl. 16. Aðgöngumiðasala er
við innganginn. Að tónleikunum loknum
er boðiö upp á kaffiveitingar í skólanum.
Píanótónleikar í
Bústaðakirkju
Fyrstu sjálfstæðu og opinbem píanótón-
leikar Jónasar Seen verða í Bústaða-
kirkju miðvikudaginn 25. maí kl. 20.30.
Níu ára gamall hóf Jónas nám hjá Kol-
brúnu Óskarsdóttur og 11 ára innritaðist
hann í Tónlistarskólann í Reykjavík en
kennari hans þar var Árni Kristjánsson.
Sautján ára gamall lauk hann einleikara-
prófi frá skólanum. Hann hefur sl. tvö
ár kennt píanóleik við Nýja tónlistarskól-
ann. Viðfangsefnin á tónleikunum em
tvær sónötur eftir Beethoven op. 109 í
E-dúr og op. 110 í As-dúr. Eftir hlé leikur
Jónas h-moll sónötu Fr. Liszts.
Tilkyxmingar
Keppni um hártískulínur
Nýstárleg keppni stendur nú yfir hjá
tímaritinu Hár & fegurð. Keppt er
um hártískulínur fyrir veturinn ’88
-’89. Keppnin er flokkuð í tvo flokka
og er áhersla lögð á permanent í öðr-
um flokknum og litanir í hinum og
er það gert til að reyna að auka vídd-
ina í tískulínum. Svona keppnir gefa
einstaklingum gott tækifæri til að
spreyta sig og láta hæfileikana njóta
sín. Það verður gífulega stór sigur
fyrir þann sem vinnur þessa keppni
þar sem mynd af vinningsmódelinu
verður birt á Norðurlöndunum og
víðar í heiminum, einnig verður
vinningsmyndin sett á plakat sem
dreift verður víða.
Kristbjörg Bjarnadóttir, Austurbrún
6, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju miövikudaginn 25.
maí kl. 13.30.
Tónleikar
Tónleikar í Islensku óperunni
Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanóleikari
heldur tónleika í íslensku óperunni
ÞAKKARAVARP
Hugheilar þakkir færi ég öllum þeim sem glöddu
mig á 70 ára afmælisdegi mínum 14. maí sl., með
heimsóknum, skeytum, símtölum og gjöfum, í rituðu
og mæltu máli.
Sérstakar þakkir til stjórnar og starfsfólks Búnaðarfé-
lags islands.
Bændum landsins óska ég allra heilla.
Megi almættið vera með ykkur öllum.
BJÖRN BJARNARSON
Hagamel 34, Reykjavík
Upp og niður
Kór Öldutúnsskóla í Víðistaðakirkju
Söngmennt í barna- og unglinga-
skólum er ærið misjöfn hér á landi.
Sums staðar er tónhstin algjör
hornreka og lítið sem ekkert gert
til að sinna þeim skyldum sem
skólalögin munu, í orði kveðnu að
minnsta kosti, leggja kennaralið-
inu á heröar. Annars staðar er
reynt af veikum mætti að smala
saman í söng, hálftíma í viku eða
svo, og jafnvel veitt undirstöðu-
fræðsla í hljóðfæraleik. Já, þetta
er víst ansi mikið upp og niður og
lítið er víst gert af því að halda
músík meistaranna að bömum hér
á landi. Reyndar segja þeir af kunn-
ingjum mínum sem þekkja best til
þessara hluta að músíkfræðsla í 99
tilfellum af 100 sé fyrir neðan allar
hellur í skólum þessa lands. Einn
er þó sá skóli sem virðist leggja
talsverðan metnað í músíkina,
sérstaklega kórsöng, en þaö er Öld-
utúnsskóli í Hafnarfirði. Þar hefur
starfað um árabil einn ágætur
músíkant, Egill Friðleifsson, og
sinnt söngkennslu og annarri mús-
íkfræðslu af mikilli alúð og nær-
fæmi. Ár eftir ár hefur hann náð
saman krakkakórum og þjálfað þá
þannig að stundum hefur söngur
Tónlist
Leifur Þórarinsson
Öldutúnskórsins verið á „heims-
mælikvarða". Kórinn er nú býsna
stór, varla undir 100 krakkar (mest
stúlkur) en Egill skiptir honum
niður í deildir eða hópa A og B og
síðan er „litli kórinn“ með yngstu
nemendunum. Kórinn var með
tónleika undir stjóm Egils í Víöi-
staðakirkju á laugardaginn. Efnis-
skráin var Ijómandi blandá'af smá-
lögum frá ýmsum löndum: þjóðla-
gaútsetningar eftir Jón Ásgeirsson,
Ave Maria o.fl. eftir Kodaly, Meist-
ari Jakob og negrasálmur og margt
fleira í þeim dúr. Einnig dýrlegur
messukafli eftir Palestrina og Jesu
Rex eftir G.B. Martini. Þá var til
dæmis smellið lag eftir Þorkel Sig-
urbjömsson, saklaust og fyndið, og
framflutt furðuleg bamagæla eftir
Hjálmar Ragnarsson við texta Vil-
borgar Dagbjartsdóttur. Það var
hápunktur tónleikanna en það var
líka gaman að heyra lög eftir Sall-
inen og Wessman frá Finnlandi og
reyndar allt sem ekki verður upp
talið, líka Hafnarfjörð eftir Friðrik
í lokin. Að vísu var kórinn ekki
alveg eins lifandi og hreinn eins og
mig minnir að hann hafi stundum
verið áður en það var mikil bjart-
sýni í loftinu og hstrænn ylur, þrátt
fyrir skuggaleg málverk á veggj-
um. LÞ