Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Síða 48
62 • 25 • 25
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið I hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað i DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrifft - Dreifing: Sími 27022
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
Stakk eiginkonu
sína með hníf
Til ósættis kom meðal fullorðinna
hjóna á heimili þeirra í nótt. Eigin-
maðurinn beitti hníf og stakk honum
í síðu eiginkonunnar. Hún var flutt
á slysadeild Borgarspítalans. Konan
er ekki í lífshættu.
Eiginmaðurinn var handtekinn.
Hjónin höfðu bæði neytt töluverðs
magns áfengis þegar til ósættisins
kom. Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur mál þetta til meðferðar. -sme
Logreglan í Reykjavík:
Yfiibugaði
mann með hníf
Óskað var aðstoðar lögreglu í gær-
morgun vegna manns sem hótaði að
skaða sjálfan sig með hníf. Það var
í heimahúsi í Reykjavík að drukkinn
maður tók upp hníf og hótaði að
skaöa sjálfan sig.
Þegar lögreglan kom hafði mannin-
um tekist að særa sig lítillega. Það
tókst að yfirbuga manninn og eftir
skamma viðdvöl á lögreglustöð var
manninum runnin reiðin og honum
því sleppt. -sme
Heiftug áflog
hestamanna
Lögreglan í Kópavogi varð að sker-
ast í leikinn þegar þrír hestamenn
flugust heiftarlega á við hesthús
Hestamannafélagsins Gusts í Kópa-
vogi. Áflogin voru aðfaranótt hvíta-
sunnudags.
Einn mannanna ökklabrotnaði auk
smærri meiðsla. Mennirnir voru all-
ir mikið drukknir. -sme
Eldur í elliheimili
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Eldur kom upp í Elliheimilinu
Skjaldarvik skammt utan Akureyrar
um miðjan dag í gær.
Eldurinn kviknaöi í ruslatunnu á
snyrtingu og fór brunakerfi hússins
í gang. Fljótlega gekk að ráða niður-
lögum eldsins og skemmdir urðu
ekki miklar.
LOKI
Blöskraði manninum
ekki sölulaunin?
DeiK um forkaupsrétt:
Sami aðili seldi
íbúðina tvisvar
Bæjarþing Reykjavíkur hefur
úrskurðaö í máli þar sere deilt er
um forkaupsrétt að ibúð í þiíbýlis-
húsi. Miðhæð hússins hefur verið
seld tveimur aöilum og samimaður
undirritaði háða kaupsamningana
sem seljandi. í úrskurði dómara
var fyrri kaupandanum dæmd
íbúðin en seljandi hefur áfrýjað
dóminum til Hæstaréttar.
Sá sem seldi íbúðina var sonur
eiganda hinnar umdeildu íbúðar.
En móðir hans er nú látin. Jafh-
framt því átti hann íbúð í saraa
húsi og þvi forkaupsrétt að íbúð
móður sinnar. Fyrri kaupandi og
sonurinn rituðu undir kaupsamn-
ing 21. júlí 1987. Sonurinn var með
skriflegt umboð móöur sinnar til
að ganga frá sölu af hennar hálfu.
Sonurinn, sem er eigandi að íbúð á
þriðju hæð í sama húsi, og eigandi
íbúðar á fyrstu hæö höfðu báðir
forkaupsrétt að miðhæöinni. Eig-
andi fyrstu hæðar hefur nú fallið
frá forkausprétti sínum skriflega.
Kaupsamningarnir eru nánast
samhljóma. Eina breytingin er sú
að í seinni samningi fylgir bílskúr
ekki og er heildarverð og fyrsta
greiðsla 250 þúsund krónum lægra.
Fyrri kaupsamningurinn var gerð-
ur 21. júlí 1987 og sá síðari er dag-
settur 27. ágúst 1987. Fyrsta
greiðsla, samkvæmt þeim samn-
ingi, var innt af hendi 10. ágúst.
Kaupandi, samkvæmt fyrri samn-
ingi, taldi ekki nokkurn vafa á að
fallið hefði verið frá forkaupsrétti
þar sem tekið var við 500 þúsund
króna greiðslu við samningsgerð.
Sú fjárhæð var greidd til baka með
vöxtura 28. júlí.
í fyrri kaupsamningi, frá 21. júlí,
segir: „Kaupandi hefur kynnt sér
ítarlega þinglýst ákvæði varðandi
gagnkvæman forkaupsrétt og er
ijóst að eigandi 3. hæðar hefur
munnlega hafnað forkaupsrétti en
skrifleg yfirlýsmg frá honum ligg-
ur ekki frammi og ennfremur þarf
að afla skriflegrar höfhunar frá eig-
' anda 1. hæðar hússins þegar skrif-
leg yfirlýsing eiganda 3. hæöar
hússins liggur ffamrni. Er undirrit-
un seljanda með fyrirvara um aö
ofangreindir eigendur 3. hæðar og
1. hæðar hússins hafni forkaups-
rétti sínum."
Þennan hluta kaupsaránings
taldi dómarinn jafngilda skriflegri
yfirlýsingu eiganda þriðju hæðar,
þaö er sonar seljanda. 1 dóminum
segir einnig að skrifleg yfirlýsing
hafi þurft að koma til svo að hægt
yrði að þinglýsa henni því að
munnlegri yfirlýsingu verður ekki
þinglýst. -sme
Suzukibifreið hjónanna er mikiö skemmd eftir grjóthruniö. A innfelldu myndinni eru hjónin, Sigurvin Guómunds
son og Guódís Guðmundsdóttir, á heimili sinu i gærkvöld. DV-mynd BE
Grjóthrun í Óshlíð:
Hjón hætt
komin er
grjót hrnndi
yfir bíl þeirra
Hjón voru hætt komin á Óshlíðar-
vegi á sunnudagskvöld þegar grjót
skall á bíl þeirra. Manninum tókst
að hafa stjórn á bílnum og aka hon-
um stórskemmdum í burtu. Hjónin
sluppu óslösuð en fundu bæði til
höfuðverkjar. Það voru aðallega
tveir nokkuð stórir steinar sem
skullu á bílnum sem er mikið
skemmdur eftir.
Óhappið varð skammt noröan við
krossinn. Töluverð hætta er á grjót-
hruni á Óshlíöarvegi og ekki síst á
vorin þegar leysingar eru hvað mest-
ar. Mikil mildi þótti að ekki fór verr
en raun varð á í þetta skiptið.
-sme
Kennarasamband ís-
lands skrifaði undir
Veðrið á morgun:
Norðaustan-
átt og hlýtt
sunnanlands
Á morgun verður norðaustan-
gola eöa kaldi um allt land. Létt-
skýjað á Suður- og Vesturlandi en
þokuloft við norðaustur- og austur-
ströndina. Fremur svalt veröur
fyrir norðan en hlýtt sunnanlands.
Kennarasamband íslands skrifaði
undir kjarasamning á fostudags-
kvöld. Þetta var gert þrátt fyrir að
samningurinn nái ekki fram þeim
markmiðum sem KÍ hafði sett fram,
m.a. um bættan kaupmátt og lækkun
kennsluskyldu. Ákvörðun um undir-
ritun byggðist á því að þannig er fé-
lagsmönnum gefinn kostur á að sam-
þykkja samning á þeim grundvelli
sem fyrir liggur eöa búa ella við
ákvæði bráðabirgðalaga.
Að sögn Svanhildar Kaaber, for-
manns KÍ, er búist við að kjörgögn
verði send út í vikunni og þá ættu
úrslit jafnvel aö liggja fyrir í næstu
viku. Ef félagsmenn KÍ fella samn-
inginn munu þeir búa við ákvæði
bráðabirgðalaga ríkisstjómarinnar
sem samþykkt voru á fóstudaginn.
-SMJ