Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988. 3 • Fréttir Herför gegn óskráðum sjónvarpstækjum: Tölvur notaðar til að finna sökudólgana - hundruð manna hafa fengið heimsóknir frá fulltrúum Sjónvarpsins Aö undanfornu hafa þeir sem laumast til aö horía á óskráð sjón- varpstæki fengið óvænta heimsókn. Þaö gerist helst að kvöldlagi og eru þaö fulltrúar ríkissjónvarpsins sem eru þar mættir. Þeir spyrjast fyrir um hvort sjónvarp sé á heimihnu og ef svo er þá er mælst til þess að fólk byiji aö greiða afnotagjöld svo sem lög mæla fyrir. Heimsóknimar eru mjög markvissar enda notar inn- heimtudeild ríkissjónvarpsins nýj- ustu tækni til aö finna þá seku. „Við höfum fundið mörg hundruð tæki með þessum hætti. Yfirleitt höf- um við fengið góðar viðtökur þó auð- vitað sé einn og einn sem ekki vill sinna þessu,“ sagði Theódór Georgs- son, innheimtustjóri hjá Sjónvarp- inu. Hann sagöi að ekki heföi verið farið út í aðgerðir gegn þeim sem ekki vilja taka boði um að fara að greiða afnotagjöld. Tölvur eru notaðar til að finna þá sem hugsanlega eru með óskráð tæki. Að sögn Theódórs er keyrður út nokkurs konar íbúalisti sem er skrá yfir sambýlisfólk sem ekki hef- ur sjónvarpstæki. Þessi hsti er tek- inn með því að keyra saman þjóð- skrána og notendahsta sjónvarpsins. Þetta vekur að sjálfsögðu upp spurningar því eins og kunnugt er þá er bundið ákvæðum hvernig má nota tölvuútkeyrslu á þjóðskránni. í flestum tilfellum þaif heimhd frá Tölvunefnd th slíks en að sögn Þor- geirs Örlygssonar, kennara í laga- dehd HÍ, sem er formaður nefndar- innar, hefur engin beiðni komið um shkt. Hann sagðist ekki þekkja fram- kvæmd ríkissjónvarpsins í þessu th- viki en sagði að leitun á ákveðnum almennum upplýsingum úr þjóðskrá væri heimil. Það er þá leitun á nöfn- um, fæðingarnúmerum, heimilis- fangi og aðsetri. Þorgeir sagði þó að færsla upplýsinga á milh tveggja skráa væri óheimh. Samkvæmt upplýsingum DV mun framkvæmd þessa máls vera alveg á mörkunum en einnig er óvírætt að fólki ber að greiða afnotagjöld af þeim tækjum sem möguleika hafa á að ná sendingum Ríkissjónvarpsins. Sjónvarpið hefur áður reynt að ná til þeirra sem hafa óskráð tæki. í Iistmunauppboð: „Stóð“ boðið upp Margt góðra verka verður á uppboði sem Gallerí Borg efnir til í samvinnu viö Listmuna- uppboö Siguröar Benediktsson- ar á morgun, sunnudag. Þar á meðal má nefna oliumyndina „Stóð“ eftir Jón Stefánsson og gifsmyndina „Dögun“ eftir Ein- ar Jónsson. Einnig má nefna fimm Kjarvalsmyndir, túss og krít, og tvær myndir eftir Gunnlaug Scheving. Þá veröur boöin upp stór olíumynd eftir Gunnlaug Blöndal og sérstæð blómamynd eftir Kristínu Jóns- dóttur. Alls verða boðin upp rúmlega sjötiu verk. Uppboðið veröur haldið aö Hótel Borg og hefst kl. 15.30. -JSS fyrra var t.d. gert átak í þessu máli sem fór þá fram í gegnum síma. Þá munu um 1000 tæki hafa komist á skrá. Þá voru einu sinni fengnir nokkrir námsmenn til aö fara á „grunsamleg heimili". Síðan var því fólki sent bréf. Að sögn Theódórs hefur óskráðum tækjum fjölgað mjög eftir að heimilt var að hafa fleiri en eitt tæki á hveiju heimih. -SMJ ULLVERND ALMENNRA NÝ OG BETRI LEIÐ TIL VERNDAR Með Gullvernd Almennra Trygginga er hleypt af stokkunum nýjung sem tekur til fleiri þátta en aðrar eldri vátryggingar. Gullverndin býður upp á meiri vernd og mjög hagstæð iðgjöld. í Gullverndinni er ný Fjölskyldutrygging, auk nýrrar Fasteignartryggingar. Með Gullverndinni býðst þér ný leið til verndar fjölskyldunni og heimilinu. Fjölskyldutryggingin byggir á gömlu Heimilistryggingunni en er mun víðtækari. Hún inniheldur nú endurbætta innbústryggingu og víðtækari ábyrgðartryggingu en við bætast m.a. eftirtaldar nýjungar: farangurstrygging, brots/hrunstrygging og greiðslukortatrygging. Nýja Fjölskyldutryggingin er byggð upp með hliðsjón af þörfum nútímafjölskyldu - hún er því vátrygging sem er sniðin fyrir þig og þitt fólk. Vertu gulltryggður með Gullvernd Almennra. ÆfiTíSíTíTsT? TRYGGINGAR Síðumúla 39 • Sími 82800
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.