Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988.
9
Uppáhaldsmatur á sunnudegi
Bjöggi eldar
ítalskt pasta
tenóranna
„Ég er ásamt nokkrum góðum kunningjum mínum meðlimur í mjög
„exclusive“ sælkeraklúbbi sem hefur lifað góðu lífi um þó nokkurt skeið,“
sagði Björgvin Halldórsson, söngvari og framkvæmdastjóri Stjörnunnar,
er DV óskaði eftir uppáhaldsuppskrift hans.
„Við komum saman endrum og sinnum og keppum okkar á milli um
hver býr til besta matinn. Eftirfarandi uppskrift hefur falhð í góðan jarð-
veg í þessum hópi,“ sagði Björgvin ennfremur.
Uppskriftin, sem Björgvin gefur okkur, er kennd við tenóra af ítölskum
ættum. Pastaxéttir hafa orðiö mjög vinsælir hér á landi svo slík uppskrift
á án efa eftir að vekja athygli. Uppskriftin hans Bjögga lofar góðu.
Hráefni
/2 bolli Bertolla olía
1 miðlungslaukur, fínt saxaður
2 kramin hvítlauksrif
3 greinar steinselja, söxuð
500 gr nautahakk
Salt og pipar eftir smekk
2 bréf af úrvals beikoni, steikt þannig að það verði stökkt
1 tsk. oregano
'/2 tsk. basil
2 miðlungsstórar dósir niðursoðnir tómatar
2 litlar dósir tómatpuré
1 bolli vatn
Vel útilátinn skammtur af ferskum parmesanosti
Olían, laukurinn, hvítlaukurinn og steinseljan sett á stóra pönnu og létt-
steikt. Nautakjötinu bætt út í ásamt salti, pipar, oregano og basil. Létts-
teikt þar til kjötið brúnast. Stökku beikoni bætt út í. Látið blandast vel.
Síðan er niðursoönu tómötunum, tómatpurré og einum bolla af vatni
bætt í. Þetta er látið sjóða eða bakað upp á mjög litlum hita í opnum potti
í tvo tíma og hrært í einstaka sinnum.
„Létt lög frá Napolí sett á fóninn og rétturinn síðan borinn fram með
stinnu (al dente) spaghetti, hvítlauksbrauði og parmesanosti. Glas af
mildu ítölsku rauðvíni skemmir ekki,“ sagði Björgvin Halldórsson og
bætti við: „Þetta ætti að duga fjórum svöngum fullorðnum. Þessi upp-
skrift er aldrei eins hjá mér og breytist sífellt. Það fer allt eftir því hvern-
ig stuði ég er í hverju sinni.“
-ELA
Björgvin Halldorsson er góður kokkur og hefur pastaréttur hans fengið góð meðmæii í sælkeraklubbi hans.
DV-mynd KAE
Frá Menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við framhaldsskóla.
Að Fjölbrautaskóla Suðurnesja vantar tón-
menntakennara í stundakennslu til að sinna
kórstjórn.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist skólameistara Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja fyrir 15. október nk.
Menntamálaráðuneytið
Baðvörður
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða bað-
vörð til starfa í Sundhöll Hafnarfjarðar.
Um er að ræða 50% starf við baðaðstöðu
kvenna.
Nánari upplýsingar veita forstöðumaður
Sundhallar í síma 50088 og íþróttafulltrúi
í síma 52610.
Umsóknarfrestur rennur út 7. okt. nk.
Bæjarritarinn í Hafnarfirði
NÝ SENDING
af ítölskum leðursófasettum.
Opið til kl. 16 í dag.
REYKJ AVIKURVEGI66,220 HAFNARFIRÐI, SIMI54100.