Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988.
11
Breiðsíðan
DV-myndbrot
vikunnar
DV-mynd Kristján Ari Einarsson
Snerti ekki olíu-
liti fyrr en sjötug
- og hélt sýningu sjötíu og fimm ára
Allt er fertugum fært var einu sinni
haft aö orðtaki en Bjarnheiður Ingi-
mundardóttir hefur sannað að allt
er sjötugum fært. Á þann aldur var
hún komin þegar hún fyrst snerti
olíuliti í fondri fyrir aldraða í Kópa-
Bjarnheiður Ingimundardóttir: „Eg
ætlaði mér aldrei að sýna en er feg-
in eftir á.“
DV-myndir Brynjar Gauti
vogi. Síðan lá leiðin í Myndlistarskól-
ann í Reykjavík og nú hefur hún
haldið fyrstu málverkasýninguna
sína. Þótt hún hafi orðið 75 ára tveim-
ur dögum áður en «ýningin var opn-
uð í matsal aldraðra að Fannborg 1
í Kópavogi er hún að ævintýrinu
loknu ekki viss um aö þetta hafi ver-
ið seinasta og einasta skiptið sem
hún sýnir. „Best aö taka ekkert af,“
segir hún. Hún seldi sjö myndir af
fimmtán.
Árið 1932 var Bjarnheiður einn
vetur á teikniskóla Ríkarðs Jónsson-
ar. Hana langaði óskaplega að læra
meira en á því voru engin tök fyrir
Söngfélagar úr kór aldraðra i Kópavogi, Guðmunda og Soffia, dást að
málverkum stöllu sinnar ásamt kórstjóranum, Kristínu Pétursdóttur (t.h.).
fátækt fólk á krepputímum milli-
stríðsáranna.
„Ég tók það ipjög nærri mér, lagði
frá mér teikniblýantinn og ætlaði
aldrei að snerta hann framar." Viö
það stóð hún í fjörutíu ár!
Bjarnheiður málar allt mögulegt.
Þegar hún fer í Myndlistarskólann í
Tryggvagötu hggur leiðin fram hjá
Gauki á Stöng og þannig er til orðið
málverkið um slompuðu karlana
sem styðja hvor annan á krána. Önn-
ur viðfangsefni eru skýin á nætur-
himninum, landslagið á Sprengi-
sandsleið eða þá piltur og stúlka sem
haldast í hendur þegar vorið kemur
sunnan yfir sæinn, eins og Bjarn-
heiður og maðurinn hennar þegar
þau voru að draga sig saman árið
1941 eða svo. -ihh
„Þegar ég gekk fram hjá Gauki á
Stöng datt mér þessi mynd i hug.“
Sveinbjörn Beinteinsson
- segir Sveinbjöm Beinteinsson aö Draghálsi
„Ég var að taka þaö saman og
kora þá í fjós að síöustu tvö árin
hefur fólk af 30 þjóðernum heim-
sótt raig hingað í sveitina,“ sagði
Sveinbjörn Beinteinsson á Drag-
hálsi í vikunni, er viö koinurn í
kafft. „Það er alltaf einn og einn
að koma í heimsókn. Þetta eru
Samar, Skotar og Norðurlandabú-
ar svo einhverjir séu nefndir. Já,
hópar hafa komið líka eins og
handmenntakennarar sem komu,
voru um eitt hundrað. Ég sagði við
þá nokkur orö um ásatrúna.“
- Er eitthvað verið aö skrifa núna
og gefa út eftir þig?
„Þessa dagana er verið að prenta
gátubók sem ég hef gert, hún kem-
ur út innan tiðar. Þessar vikumar
vinn ég aö bók um ásatrúna eins
og hún er í dag.
Ég er með fáeinar rollur og eru
þær flestar komnar héma á heima-
túnið. Það var smalað fyrir nokkr-
um dögum.
Ég hef ekki ennþá séð neitt af
gæsum en rjúpur sá ég um daginn.
Fer líklega á rjúpu um leið og það
má, það hef ég gert í fimmtíu ár.
Maður fer nokkrum sinnum til
tjúpna á hveijum vetri, en aldrei
mikið,“ sagði Sveinbjöm í lokin.
Er við skildum- við Sveinbjöm
var hann að tina rifsber í garði sín-
um og þegar við keyrðum framhjá
Geitabergsvatninu, gekk hann inn.
Þaö var haust í veðrinu.
-G. Bender