Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Side 20
20 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988. Erfiðri ólympíutöm að ljúka: „Leiðinn kemur stund- um yfir mann" - segir Bjami Fel. sem neitar því ekki að hann hugsi sér til hreyfings Rödd hans heyrist úr sjón- varpstækinu þegar maöur fer aö sofa á kvöldin og hún heyrist enn næsta morgun. Bjarni FelLxson var búinn aö vaka í fjörutíu og átta klukkustundir þegar DV haföi samband við hann. Bjarni ætlaði að sofa nokkra tíma á fimmtudaginn en sagðist til í við- tal að kvöldi. Þá var enn ein vökunóttin framundan. Þvílíkt úthaid, gætu einhverjir sagt, og víst er að Bjarni Felixson hefur átt erfiða og annasama daga. Ólympíuleikunum er að ljúka á morgun og nokkuð öruggt má telja að einhver verður feginn. „Við höfum unnið allan sólar- hringinn, má segja. Þegar útsend- ingu er lokið þurfum við að taka upp efni á myndböndum sem síð- an er klippt í þessar ólympíusyrp- ur. Þetta þarf að gera á daginn svo að lítill tími er afgangs til að sofa. Við erum þrír sem vinnum við þetta og fórum nánast ekki úr klefa," segir Bjarni. íslendingar sýna talsvert meira frá ólympíuleikunum heldur en aðrarþjóðir. „Égveit að Norð- menn sýna ekki frá undanúrslit- um og byrja ekki útsendingar fyrr en klukkan tvö til þrjú á nóttinni. Ég hef alltaf veriö hlynntur beinum útsendingum og finnst því sjálfsagt að sýna sem mest frá leikunum. Hins vegar hefur maður tekið eftir því, þegar beinar útsendingar hefjast á kvöldin, að áhorfendur eru mjög fáir í íþróttahöllum í Seoul vegna þess hversu snemma dagsins það er.“ Óánægður með breytingar Um síðustu áramót voru íþróttadeildir útvarps og sjón- varps sameinaðar. Bjarni var á móti þeirri ráðstöfun og segist vera það ennþá. Hann gegndi áð- ur starfinu einn um fjölda ára en nú eru starfsmenn orðnir fimm. Tveir þeirra, Samúel Örn Erl- ingsson og ArnarBjörnsson, eru í Seoul. „Mér fannst þessi breyt- ing ekki eiga rétt á sér fyrr en þessar stofnanir væru komnar undir sama þak. Starf þessara miðla er mjög ólíkt. Ég kann þó ágætlega við að lýsa útvarpsleikj- um, það er tilbreyting. Þó að þessi breyting á íþróttadeildinni hafi létt mitt staif hef ég ekki fundiö fyrir því núna síðustu daga.“ Eins og áhorfendur hafa tekið eftir er Bjarni sífellt á skjánum. Hann segir aö þaö sé vegna reynslu sinnar. „Ég hef unnið viö slíkar sendingar áöur. Árið 1984, þegar ólympíuleikarnir voru í Los Angeles, vann ég einn. Ég var þá staddur í Kaupmannahöfn og þar var efnið unnið áður en það var sent heim. Engar beinar sendingar voru frá Los Angeles því ekki var hægt að koma því við. Þess vegna urðum við aö taka við efninu í Kaupmannahöfnog senda það síðan hingað heim.“ Komin yfir toppinn Ekki segist Bjarni vita hvort margir fylgist með næturútsend- ingunum. „Ég er þó alveg viss um að menn vaka yfir handboltan- um." Þegar við ræðum um stöðu okkar manna segist Bjarni enga skýringu geta gefið á frammi- stöðu þeirra. „Álagið var allt of mikið og undirbúningurinn fór of snemma af stað. Við erum komin yfir toppinn," segir Bjarni. Hvað með hann sjálfan í löng- um lýsingum og nafnarunum? Er ekki hætt við að menn missi einbeitinguna í endalausum næt- urvökum? „Hún var farin að dofna. Ég held ég hafi verið farinn að bulla eitthvað," segir Bjarni. Hann hefur ekki tíma til að kynna sér leikmenn áður en útsending byrjar og segir það verst vera þegar upp koma frábærir íþrótta- menn sem aldrei hafa vakið at- hyglifyrr." Bjarni segir aö fjölskyldan segi htið þó hann sjáist aldrei heima. „Konan er orðin ýmsu vön,“ út- skýrir hann. Bjarni hefur starfað við Sjónvarpið í tuttugu ár. Starf hans hófst þegar Sigurður Sig- urðsson bað hann að lýsa ensku knattspyraunni. Þegar Ómar Ragnarsson tók við óskaði hann eftir að Bjarni héldi áfram með ensku knattspymuna. Starfið þróaðist og Bjarni tók það yfir er Ómar fór í fréttir. Áður haföi Bjarni starfað hjá vélsmiöjunni Hamri, Verslunarmannafélaginu og KSÍ, enda frægur KR-ingur. Stjórnmálin útundan Það sem einkennt hefur þjóð- félagsumræðuna undanfarnar tvær vikur eru stjórnmálin og ólympíuleikarnir. Bjami tengist því síöamefnda en hafði hann tíma til aö fylgjast með stjórn- málunum? „Fréttastofan fékk nokkur innskot hjá okkur og ég sat inni í ólympíubúrinu og hlust- aði. Annars hefði ég misst af öllu, hvað varðar mann enda um stjómmál þegar ólympíuleikam- ir eru í gangi?“ Bjarni segist þó ekki lifa neitt sérstaklega fyrir íþróttir. „Ég lifi þó dálítið fyrir þettastarfmitt," segirhann. Á milli ensku knattspyrnunnar og Bjarna Felixsonar má setja samasemmerki. Hann hefur átt talsverðan þátt í að enski boltinn er í beinni útsendingu á laugar- dögum. Bjarni hefur líka fengið gagnrýni á sig fyrir að dekra of mikið við boltaíþróttina. „Enska knattspyman er mitt uppeldis- barn,“ segir hann. „í fyrstu ætl- aði ég eingöngu að vera með hana. Ég hef gaman af því aðrifja það upp að ég stóð fyrir fyrstu beinu sendingunni héðan og fyrstu beinu sendingunni hingað. Það var skemmtilegt að koma því í kring. Enska knattspyrnan kemur hingað í samfloti við Norðurlöndin svo að það er norr- æn samvinna sem þar skiptir öllu máh.“ Enski boltinn á Stöð 2 Bjarni telur að starf sitt hafi breyst talsvert frá því að Stöð 2 byijaði. Gerðar em meiri kröfur til Sjónvarpsins. „Það er látið í það skína að við þurfum að sinna fleiri íþróttagreinum en við höf- um gert. Við höfum núna aðra áherslu í þáttunum vegna Stöðv- ar 2 en ég er á móti því. Ég held einmitt að Stöð 2 vilji fara í okkar farveg,“ segir Bjarni. „Þeir byggja sína íþróttadag- skrá að miklu leyti á bandarísku efni þar sem þeir hafa ekki kom- ist inn á evrópskar íþróttir. Auð- vitað eigum við að sinna þeim íþróttum sem okkur eru næstar og það höfum við reynt að gera.“ Talað hefur verið um að Stöð 2 fái einhverja leiki í enska boltan- um til sýningar nú í haust. Bjarni segir að það sé rétt. Þegar hann er spurður hvort hann fari kannski líka, svarar hann: „Ég veit það ekki. Það getur vel verið að ég fylgi enska boltanum. Ekk- ert yrði mér kærara,“ segir Bjarni en vill ekkert meira segja umþaðmál. Nýr móttökudiskur Áður en dagskrá ólympíuleik- anna hófst var komið fyrir nýjum Bjarni Fel. með tákn ólympíuleikanna. í tvær vikur hefur Bjarni nánast verið lokaður inni í búri. Hann er orðinn leiður og segir að vel geti verið að hann fari með enska boltanum en Stöð 2 mun sýna hann í haust. DV-mynd GVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.