Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Page 25
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988.
25
Vændiskonur útbreiða ekki eyðni
Eyönipróf á vændiskonum í
Bandaríkjunum og viðskiptavinum
þeirra sýna að eyðnismit milli þess-
ara hópa er fátíðara en talið hefur
verið tíl þessa. Þessir hópar hafa
verið undir nánu eftírhti sem sér-
stakur áhættuhópur undanfarin ár.
í New York hafa 1829 vændiskonur
gengist undir eyðnipróf og hliðstæð-
ar athuganir hafa farið fram í átta
öðrum stórborgum. í ljós kom að 12%
vændiskvennanna höfðu mótefni í
blóði sínu gegn eyðniveirunni. Þá
kom einnig í ljós að flestar þeirra sem
sýndu einkenni um smit voru einnig
eiturlyfj aney tendur.
Þá fundust fá dæmi þess að vændis-
konur heföu smitað viðskiptavini
sína. í New York var leitað til 627
manna sem höfðu haft mök við
vændiskonur. Aöeins þrír þessara
manna höfðu líklega smitast af eyðni
af vændiskonum.
„Ég veit reyndar ekki um eitt ein-
asta tilvik þar sem karlmenn hafa
sannanlega smitast af vændiskon-
um,“ segir Wilham W. Darrow, sér-
fræðingur í eyðnirannsóknum. Hann
stjórnaði rannsókninni á útbreiðslu
eyðni meðal bandarískra vændis-
kvenna.
Darrow segist álíta að samnýtíng
eiturlyfjaneytenda á nálum sé aðal-
orsök þess að eyðni breyðist út í
Bandaríkjunum en ekki viðskipti
manna við vændiskonur eða lausung
í kynlífi. í rannsókninni kom fram
mikil fylgni með neyslu eiturlyfja og
eyðni. Áttatíu af hundraði þeirra
vændiskvenna sem höfðu eyðni voru
eiturlyfj aney tendur.
Þessi niðurstaða hefur komið á
óvart því víða annarrs staðar í heim-
inum er eyðni útbreidd meðal vænd-
iskvenna. í Nairobi í Kenya reyndust
85.% vændiskvenna hafa mótefni
gegn eyðniveirunni. Eina skýringin
gæti verið sú að í Bandaríkjunum
krefjast vændiskonur þess yfirleitt
að viðskiptavinir þeirra notí smokka.
Þá hefur komið í ljós munur á út-
brei ðslu eyðni meðal vændiskvenna
sem starfa á götum stórborga og selja
þjónustu sína vægu verði og þeirra
sem gera út á ábatasamari markaði.
Þær sem eru á götunni virðast vera
í mun meiri hættu en hinar.
í rannsókninni kom einnig í ljós
að eyðni er nær óþekkt meðal vænd-
iskvenna í Nevada þar sem vændi
er löglegt og er undir eftirhtí. Þá
bendir flest til þess að vændiskonur
séu líklegri th að smitast af eyðni en
að smita aðra.
Gefum okkur
tima í umferðirmi.
Leggjum tímanlega af stað!
ALDEILIS^
MAKALAUS
, MJÖÐUR”<
ÍÍ1HDHIW
NIS5AN
SUNNY
NISSAN SUNNY ER FAANLEGUR:
SUNNY 3JA DYRA - SUNNY 4RA DYRA,
GÐI FRAMHJÓLA- OG FJÓRHJÓLADRIFIN
B
SUIfMY 5 DYRA - SUNNY COUPÉ, SPORTBÍLL,
SUNNY SKIjTBILL, BÆÐI FRAMHJOLA- OG FJORHJO
GETUM AFGREITT STRAX - JAFNVEL Á MEÐAN ÞÚ E
3JA ÁRA ÁBYRGÐ
KOMDU OG ÍPJALLAÐU VIÐ OKKUR ÞVÍ KJÖRIN ERU HREINT (
BÍLASYNING
LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 2-5
DG
ADRIFINN
ÐUR
ENDANLEG
Ingvar
Helgason hff.
sýningarsalurinn,
Rauðagerði
(J) 91-3 35 60