Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER' 1988. - ágríp af ástarsögu Framsóknar og krata Endalok fráfarandi stjórnar komu fæstum á óvart, svo augljós voru feigðarmerki hennar. En það er at- hyglisvert að fyrir örfáum vikum hefðu flestir gert ráð fyrir því að ósætti Framsóknar og krata yrði banamein ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar. Nú hefur hins vegar kom- ið á daginn að það var samdráttur þessara flokka sem gerði út um stjórnarsamstarflð. Hið rómantiska tilhugalíf Stein- gríms og Jóns Baldvins hefur þótt tíðindum sæta énda gæti varnarleg- ur samdráttur þeirra sett veigamikið strik í reikning íslenskra stjórnmála á næstunni. Langt er nú um liðið frá því þessir flokkar litu hvorn annán hýru auga. Sú var þó tíðin að nánast ekkert þótti sjálfsagðara en að Framsókn og kratar stæðu saman að „félagslegum umbótum" og mynduðu mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn. En þegar litið er ydir sjötíu ára stjórnmálasögu íslenskra ríkis- stjórna. kemur í ljós að minna hefur orðið af samstarfi þessara flokka en til var stofnað í upphafi. Ríkisstjórn: arsamstarf þeirra hefur verið sáralít- ið frá falli Þjóðstjórnarinnar 1942 og frá því vinstri stjórn Hermanns Jón- assonar sprakk á limminu fyrir rétt- um þrjátíu árum hefur samvinna . þessara tveggja flokka þótt einna ólíklegust í flokkakerfmu. Aðeins ein ríkisstjórn hefur verið samsteypustjórn Framsóknar og krata án hlutdeildar annarra flokka. Tvisvar hafa kratar varið minni- hlutastjórn Framsóknar falli. Þri- svar hafa flokkarnir starfaö saman í þjóðstjórn ásamt sjálfstæðismönnum og nýja stjórnin hans Steingríms er þriðja vinstri stjórn flokkanna ásamt Alþýöubandalagi. Mest bar á samstarfi Framsóknar og krata á árunum 1927-42 en þá áttu þeir samstarf um ríkisstjórnir, einir Steingrimur og Jón Baldvin - fóstbræöur islenskra stjórnmála þessa stundina. Fyrir réttum þrjátíu árum var fað- ir Steingríms forsætisráðherra vinstri stjórnar. Þá var faðir Jóns Baldvins ráðherra í sömu stjórn. Faðir Stein- grims var þá formaður Framsóknarflokksins. Faðir Jóns Baldvins hafði þá skömmu áður verið formaður Al- þýðuflokksins. Hafa synirnir lært af syndum feðranna eða gera þeir sömu mistökin? kvæðum bundiö fyrstu þrjú árin, enda var viðskiptajöfnuður hagstæð- ur fram að kreppu og þeir Tryggvi og Jónas frá Hriflu létu hendur standa fram úr ermum við að byggja yfir ýmsar mennta- og menningar- stofnanir. Það er til marks um illskeytta stjórnarandstöðu sjálfstæðismánna Mótmælafundur fyrir utan ráðherrabústaðinn í tilefni þingrofsins 1931. eða ásamt Sjálfstæöisflokki í tæp ell- efu og hálft ár. Frá lýðveldistöku og fram að Við- reisn störfuðu þeir saman í einni þjóðstjórn og einni vinstri stjórn í samtaís rúm fimm ár, en eftir Við- reisn hafa þeir starfað saman í einni vinstri stjórn og einni þjóðstjórn í samtals rúm tvö ár. Hlutleysi og þingrof íhaldsflokkurinn, forveri Sjálfstæð- isflokksins, var einn viö stjórn 1924-27. Fylgisaukning og óréttlát kjördæmaskipan færði framsóknar- mönnum nítján þingmenn í kosning- unum 1927 en íhaldsmenn misstu meirihlutann. Alþýðuflokkurinn fékk fimm menn kjörna. Stefnuskrá Alþýðuflokksins geröi ekki ráð fyrir aðild flokksins að samsteypustjórn og því var mynduð hrein framsókn- arstjórn Tryggva Þórhallssonar sem Alþýðuflokkurinn veitti hlutleysi „fyrst um sinn“. Hlutleysið entist „fyrst um siiín“ og gott betur, eða í rúm þrjú og hálft ár. Það var engum teljandi vand- um þessar mundir, að þeir töldu það sjálfsagt gustukaverk að koma Jón- asi dómsmálaráðherra á Klepp hið allra fyrsta og beittu fyrir sig yfir- lækninum þar. Meö kreppunni og stofnun Komm- únistaflokksins varð hlutleysið sí- fellt óþægilegra fyrir Alþýðuflokk- inn sem nú barðist hatrammri bar- áttu við kommúnista um fylgi verka- manna, enda lágu kommarnir ekki á þeirri samsæriskenningu sinni að Framsókn og kratar ætluðu aö láta verkamenn um hita og þunga krepp- unnar. Það varð samt hvorki kreppan né kommar sem bundu enda á hlutleysi Alþýðuflokksins heldur kjördæma- málið. Með vaxandi þéttbýlismyndun varð kjördæmaskipanin sífellt órétt- látari og Framsóknarflokknum í vil. Þorri þingmanna var þá kosinn meirihlutakosningu í ein- eða tví- menningskjördæmum sem miðuðust við gömlu sýslumörkin. Auk þess voru sex landskjörnir þingmenn kosnir hlutfallskosningu, svo og þingmenn Reykjavikur sem voru fjórir. í byrjun árs 1931 lögðu Framsókn- armenn fram frumvarp um breyt- ingu á kosningalögum þess efnis að landskjör yrði lagt niöur. Með þess- um breytingum einum sér hefði óréttlæti kjördæmaskiptingarinnar enn aukist. Að vonum þótti krötum og sjálf- stæðismönnum nóg um þessa óbil- girni og kratar báru fram breyting- artillögu um almenna hlutfallskosn- ingu og íjölgun Reykjavíkurþing- manna. En Framsókn var ósvífnin uppmáluð og neitaði að fallast á breytingartillöguna. Kratar lýstu þá yfir að þeir myndu greiða atkvæði meö vantrauststillögu á stjórnina. Nú voru ménn ekki lengur öreigar og auðvaldsseggir, heldur bæjarbúar og sveitavargur. Sjálfstæðismenn báru fram van- trauststillögu sem kratar ætluðu að styöja og í fyrsta sinn átti nú að út- varpa umræðum frá alþingi. Allt virtist klappað og klárt og Fram- sóknarmenn gátu siglt sinn sjó í beinni útsendingu. En forsætisráðherra hafði ekki sagt sitt síöasta orð í þessu máli og þegar Jón Þorláksson ætlaöi að hefja máls á vantraustinu, fékk Tryggvi orðið hjá mági sínum, Ásgeiri As- geirssyni, sem þá var forseti samein- aðs þings, og las upp konungsbréf þess efnis að þing yröi nú þegar rofið og boðað væri til alþingiskosninga. Tvö skref til hægri og fjögur til vinstri -Framsókn klofnar Þingrofiö 1931 ereinhverumdeildasta ákvörðun íslensks • stjórnmála- manns. Sjálfstæðismenn og kratar urðu bandóðir eins og búast mátti við, en í Reykjavík ríkti umsáturs- ástand í heila viku. Kratarnir urðu þó hálfu æstari en íhaldiö og vildu helst segja sig úr lögum við kónginn og sveitavarginn, en þá komu vomur á sjálfstæðisménn sem fengu skömm í hattinn frá krötum fyrir hálfvelgj- una. Kosningarnar 1931 voru einhverjar þær hörðustu sem um getur, en þá unnu framsóknarmenn sinn stærsta sigur, þrátt fyrir þingrofiö. En kosningaúrslitin eru jafnframt til marks um hinn hrikalega ójöfnuð sem kjördæmaskipanin hafði í för með sér. Sjálfstæðismenn fengu 43,8% atkvæða og tólf þingmenn; Framsóknarflokkurinn fékk 35,9% og tuttugu og einn þingmann og Al- þýðuflokkurinn fékk 16,1% og þrjá þingmenn. Framsókn var nú með hreinan meirihluta og myndaði því ein stjórn. En stjórnin var í raun óstarfhæf því kratar og sjálfstæðismenn voru í meirihluta í efri deild. Framsóknarmenn urðu ekki á eitt sáttir um það hvernig leysaskyldi ágreininginn um kjördæmamálið og ágreiningur þeirra um stjórnarsam- starf við hina flokkanna varð sífellt alvarlegri. Á endanum sömdu framsóknar- menn og sjálfstæðismenn um kjör- dæmamálið og mynduðu samsteypu- stjórn Ásgeirs Ásgeirssonar sem sat frá 1932-34. Meirihluti framsóknarmanna var óánægður meö stjórn Ásgeirs og stefndi að samsteypustjóm með Al- þýðuflokki. Ágreiningur hægri og vinstri framsóknarmanna ágerðist þar til upp úr sauð í árslok 1933. Þá voru tveir íhaldssömustu framsókn- arþingmennirnir reknir úr flokkn- um, en Tryggvi og Ásgeir sögðu sig úr honum sjálfviljugir. íhaldssamir framsóknarmenn stofnuðu nú Bændaflokkinn sem bauð fram í kosningunum 1934 og 37. Bændaflokkurinn fékk umtalsvert fylgi í bæði skiptin, sem ætla má að seinna hafi runnið til Sjálfstæðis- flokksins. Síðan eru framsóknar- menn í tveimur flokkum: Framsókn- arflokki og Sjálfstæðisflokki. Stjórn hinna vinnandi stétta Kosið var til alþingis vegna breyt- inga á kosningalögum 1933. Þá unnu sjálfstæðismenn sinn stærsta kosn- ingasigur og fengu 46% atkvæða. Alþýðuflokkur og vinstri vængur Framsóknar höfðu því ekki þing- styrk til að mynda samsteypustjórn þó viljinn væri fyrir hendi. En í alþingiskosningunum ári síðar var það Alþýðuflokkurinn sem vann kosningasigur með þeim afleiðingum að kratar og Framsókn mynduðu stjórn, einu samsteypustjórn þess- ara flokka sem aðrir flokkar áttu ekki aðild að. Stjórn hinna vinnandi stétta var nú mynduð, en hún var hins vegar aldrei Ijósmynduö, hvernig sem á því stóð. Þetta var engu að síður íún myndarlegasta ríkisstjórn undir for- sæti glímukappans Hermanns Jón- assonar sem hafði verið lögreglu- stjóri í Reykjavík og vann sér það til ágætis að félla sjálfan Tryggva Þór- hallsson, frambjóðanda Bænda- flokksins, í Strandasýslu. Ráðherrar stjórnarinnar voru óvenju ungir. Forsætisráðherrann var þá þrjátíu og sjö ára, Haraldur Kosningar íSSS jtioKkurinrt íj.i-íVíí- i : - . Titilblað af stefnuskrá Hræðslubandalagsins 1956. Verkamenn og bændur taka höndum saman.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.