Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Síða 42
58
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988.
Alþjóðlega skákmótið í Sotsí:
Öragg taflmennska við öróugar aöstæður
Bærinn Sotsí við Svartahaf er
einn vinsælasti ferðamannastaður
Ráðstjórnarríkjanna, enda um-
hverfið fagurt og strandlengjan
heillandi. Dvöl okkar Helga Ólafs-
sonar, stórmeistara, við skákiðkun
þar í septembermánuði varð okkur
þó ekki eins ánægjuleg og efni
stóðu til. Aðbúnaður var með ein-
dæmum lélegur, bæði hvað snerti
húsaskjól og fæði og þar að auki
tók mótið allt of langan tíma. Þrett-
án umferðir í tuttugu og sex daga
ferð þykja ekki mikil afköst nú á
dögum.
Hvað okkur íslendingana snerti
var mótið fyrst og fremst hugsað
sem góð æfing fyrir ólympíuskák-
mótið sem hefst um miðjan nóv-
ember í Þessalóniku í Grikklandi.
Mótið var af 12. styrkleikaflokki og
aðeins einn þátttakenda hafði
minna en 2.500 Eló-stig - stórmeist-
arinn þaulæfði, Ratmir Holmov.
Stigahæstur var Lev Polugajevsky
með 2.590 stig. Jafnt mót sem gaf
óhjákvæmilega tilefni til margra
jafntefla.
Ég tefldi í Sotsí fyrir átta árum
og ég minnist þess hve mótiö þá
var vel skipulagt. Þá bjó ég á sama
hóteli og nú en það var átta árum
yngra og þar að auki var sennilega
annar kokkur í eldhúsinu. Að feng-
inni reynslu baö ég um rólegt her-
bergi og fékk það. Hins vegar var
herbergið næst við hliðina á mér
ekki eins rólegt. Þar bjuggu ósjá-
legir sovéskir hippar og höföu hátt
um nætur eða snemma að morgni,
allt eftir því hvernig á þeim lá. Svo
olli það okkur skákmönnunum
nokkrum heilabrotum hvers vegna
nauðsynlegt var að ryksuga gang-
inn kl. sjö að morgni. Dularfullar
símhringingar á ýmsum tímum
sólarhringsins þóttu á hinn bóginn
engin nýlunda.
Skákmenn mötuðust í veitingasal
hótelsins. Þar sátu útlendingar við
eitt borð og var skammtað á diska
þeirra en sovésku þátttakendurnir
fengu það erfiða hlutskipti að fá að
velja matinn sjálfir og þá jafnframt
að bíða eftir honum. Maturinn var
einhæfur og vondur en verst var
þó að varla gat hann talist hollur.
Einhverju sinni ætlaði ég að ráðast
til atlögu gegn kjötstykki á diskn-
um mínum en varð að játa mig sigr-
aðan, því að mér var gjörsamlega
fyrirmunað að skera það í bita. Eg
leitaði aðstoðar borðfélaganna og
lét diskinn ganga en er ég fékk
hann aftur var stykkið enn í heilu
lagi.
Við kenndum óþrifnaði í eld-
húsinu um það að flestir fengu í
magann. Helgi fékk snert af mata-
reitrun og fékk einni skák frestað
af þeim sökum. Þrír læknar heim-
sóttu hann ög bönnuöu honum að
borða í nokkra daga. Psakhis mætti
grænn í framan í lokaskákina.
Sagðist hafa kastað hádegismatn-
um upp. Eins og aðrir kvartaði
hann yfir fæðinu. Hann býr í
Krasnojarsk í Síberíu og kvaðst í
fyrsta skipti á ævinni hlakka til
þess að fara heim!
Sovéski stórmeistarinn Sergej
Dolmatov tefldi á Reykjavíkur-
skákmótinu í febrúar og alþjóða-
mótinu á Akureyri í mars en átti
litlu láni að fagna. í Sotsí varð hann
öruggur sigurvegari, með níu vinn-
inga af þrettán mögulegum. Lev
Psakhis, tvöfaldur Sovétmeistari,
kom næstur með 8 v„ síðan ungur
og efnilegur skákmaður, Jurí Do-
hojan, með 7,5 v. og í 4. - 7. sæti
urðu íslensku stórmeistararnir
tveir ásamt Sovétmönnunum
Holmov og Bareev með 7 v. Næstur
kom Smagin með 6,5 v„ Polugajev-
sky og Englendingurinn Watson
hlutu 6 v„ sovéski stórmeistarinn
Vajser og Júgóslavinn Damlj-
anovic fengu 5,5 v„ Drasko frá
Júgóslavíu fékk 5 v. og lestina rak
Amador Rodriguez, stórmeistari
frá Kúbu, með 4 v.
Við Helgi urðum efstir útlendinga
og megum vel við árangur okkar
una, einkum með tilliti til erfiðra
aðstæðna. Helgi tefldi af gifurlegu
öryggi og komst ósigraður gegnum
vegabréfsskoðunina í Moskvu og
er slíkt ekki á aUra færi. Hann vann
sína fyrstu skák í næstsíðustu
umferð eftir þriggja daga föstu, er
hann lagði Vasjer að velli í laglegri
skák. Tólf jafntefli og einn vinning-
ur er árangur sem jafnvel sjálfur
Spassky mætti vera stoltur af. Ann-
ars hefðu vinningar okkar varla
getað orðið færri miðað við gang
skákanna. Seiglu andstæðinga
okkar var við brugðið. Þannig tókst
Helga ekki að vinna vænlegar
stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 V.
1. Dolnatov 2550 !ú A 'A 1 ‘/2 /2 1 1 'A ‘/2 1 1 9
2. Psakhis 2560 'A 'A 'A '/2 ‘/2 '/2 ‘/2 1 'A 'A '/2 1 1 8
3. Dohojan 2520 Yi 'A 'A /2 '/2 'A 'A 'A 'A 1 1 'A >/2 l'A
4. Helgi Ólafsson 2525 'A 'A 'A '/2 '/2 'A 'A 'A 'A 1 ‘/2 'A 'A 7
5. Jón L. Árnason 2535 ‘A 'A 'A 'A /2 'A 0 'A 'A 1 '/2 1 'A 7
6. Holmov 2475 0 'A 'A 'A '/2 , 1 'A 'A 'A 'Á '/2 '/2 1 7
7. Bareev 2560 'A 'A 'A 'A 'A 0 1 'A 1 /2 1 0 ‘/2 7
8. Smagin 2550 'A 'A 'A 'A 1 'A 0 'A . '/2 ‘/2 0 '/2 1 6‘/2
9. Polugajersky 2590 0 0 'A 'A 'A 'A ‘/2 ‘/2 1 0 lú 1 ‘/2 6
10. Watson 2500 0 'A 'A 'A 'A 'A 0 '/2 0 ‘/2 + 1 ‘/2 1 6
11. Vajser 2530 ’Á 'A 0 0 0 'A 'A /2 1 ‘/2 'A Vz /2 5'/2
12. Damljanovic 2565 'Á 'A 0 'A '/2 'A 0 1 ‘/2 0 'A 'A '/2 5‘Á
13. Drasko 2535 0 0 'Á 'A 0 'A 1 ‘/2 0 '/2 'A 'A 'A 5
14. Rodriguez 2550 0 0 'Á 'A ‘/2 0 '/2 0 'A 0 'A 'A 'A 4
skákir við Smagin og Dohojan og
sigurvegarinn, Dolmatov, smaug
úr greipum mínum í næstsíðustu
umferð.
Ég vann Vasjer eins og Helgi og
Júgóslavann Drasko sömuleiðis.
Eina tap okkar íslendinganna
skrifast á minn reikning en fyrir
því hef ég glæsUega afsökun. Er ég
kom úr morgunmat þennan dag
varð ég að hrökklast út úr herbergi
mínu því að múgur og margmenni
var á svölunum og kvaöst vera að
lakka handriðið!
Hér koma að lokum tvær skákir
frá mótinu. Sú fyrri er snaggaraleg
og skemmtileg en þá síðari mætti
nefna dæmigerða rússneska skák.
Skiptamunsfórn í anda Tigrans
heitins Petrosjans sem gefur hvít-
um stöðulega yfirburði.
Hvítt: Lev Psakhis
Svart: Amador Rodriguez
Garo-Kann vörn.
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4
Rd7 5. Rg5 Rdffi 6. Bc4 Rd5 7. Rlffi
g6 8. 0-0 Bg7 9. Hel h6 10. Re4 Bg4
12. c3 Rgffi 13. Rc5 Dc7 13. h3 Bxffi
14. Dxffi 0-0 15. Bb3
Hvítur hefur náð heldur betri
stöðu eftir byijunina og undirbýr
nú c3-c4 og þrengja enn frekar að
svörtum.
15. - b6 16. Rd3 b5 17. a4 a6 18. Bf4!?
Rxf4 19. Rxf4
Hótunin er 20. Rxg6 og þetta hefði
svartur best hindrað með 19. - e6.
Eftir næsta leik hans eygir hvítur
skemmtilega leikfléttu.
19. - Kh7 20. axb5 cxb5
Ekki 20. - axb5 21. Hxa8 Hxa8 22.
Bxf7 o.s.frv.
I
i
W
s
A i
41i
r a
, A
ABCDE FGH
sem svarað er með 22. - Dxf4. Hvít-
ur fær nú þrjú peð fyrir mann og
hættulegt frumkvæði. Ekki gengur
22. - Kxg6 vegna 23. Dd3+ Kg5 24.
h4+ Kxh4 25. Df5! og óverjandi
mát.
22. - Hd8 23. Hxa6! Kg8
Enn má ekki taka riddarann
vegna máts í fáum leikjum.
24. Re5 Hfffi 25. Rc6! Rd5 26. De2 Hd6
27. Dxb5
Fjórða peðið falUö. Þó hefði Rodr-
iguez nú með 27. - e6 getað veitt
harðvítuga mótspyrnu.
27. - Hc8?! 28. Re5 Hb8 29. Da4 Hxb2
30. Hxd6 Dxd6
Engu betra er 30. - exd6 31. De8+
Kh7 32. Rd7! og vinnur.
31. Rc4!
Og svartur gafst upp.
Skák
Jón L. Árnason
Hvitt: Júrí Dohojan
Svart: Anatoly Vajser
Hollensk vörn.
1. d4 e6 2. c4 f5 3. g3 Rffi 4. Bg2 d5
5. Rh3 c6 6. 0-0 Be7 7. b3 b5 8. Ba3
0-0 9. Rf4 b4 10. Bb2 a5 11. a3 Ra6
12. axb4 Rxb4 13. Rc3 Bd6 14. Ra4
g5 15. Rd3 Rxd3 16. exd3 f4 17. Hel
Ha7
A# I é'
1 Á
1114
1 1 A
£> A A A
A A A
ABCDEFGH
21. Bxf7! Hxf7 22. Rxg6!
Hugmyndin var ekki 22. Dxa8
18. He5! Bxe5 19. dxe5 Re8 20. Bd4
Hb7 21, Rc5 Hb8 22. Bc3 fxg3 23.
hxg3 Ha8 24. Dd2 De7 25. d4 Rg7 26.
b4 Bd7 27. bxa5 Hfb8 28. Rxd7 Dxd7
29. cxd5 cxd5 30. Dxg5 Hb3 31. Bd2
Hd3 32. Be3 Dd8 33. Dg4 Hxe3 34.
fxe3 Hxa5 35. Hfl Ha7 36. Hffi De8
Guðmundur og Þorlákur
sigruðu á boðsmóti 6SÍ
Eins og kunnugt er af fréttum sigr-
uðu Guðmundur Páll Arnarson og
Þorlákur Jónsson í boðsmóti Bridge-
sambands íslands sem haldið var í
tilefni 40 ára afmæhs sambandsins.
Þeir félagar tóku fljótt forystu og
héldu henni að mestu. Mótið var
jafnframt síðasta keppni landsUða
okkar sem í byijun næsta mánaðar
munu keppa á ólympíuihótinu á ítal-
íu. Frammistaða landsUðsparanna
var hins vegar frámunalega léleg og
með ólíkindum að aðeins eitt þeirra
\ Hafrðu
smakkað vín.
- láttu þér þá ALDREI
detta í hug
að keyra!
yujjjFEæAfl
skyldi skríða yflr meðalskor í keppn-
inni. Vissulega íhugunarefni fyrir
fyrirliðann og þjálfarann, Hjalta El-
íasson, sem nýlega leiddi landslið
okkar til sigurs á Norðurlandamót-
inu í Reykjavík.
Bridge
Stefán Guðjohnsen
En skoöum eitt skemmtilegt spil frá
keppninni:
♦ -
¥ 43
♦ KG962
+ D108762
♦ KGlO
¥ K10862
♦ 10
+ Á943
N
V A
S
♦ Á54
¥ DG975
♦ 74
+ KG5
* D987632
¥ Á
* AD853
* -
Við eitt borðið sátu n-s undirritaður
og ísak Sigurðsson en a-v forseti
Bridgesambandsins, Jón St. Gunn-
laugsson, og fyrrverandi forseti,
Björn Theodórsson.
Það var nokkur stígandi í sögnun-
um:
Norður Austur Suður Vestur
pass 1H 2Hx) 4H
5L pass 5T 5H
6T pass pass, dobl
pass pass pass
x) Spaði og láglitur
Suður var með klæðskerasaumuð
spil fyrir sína sagnvenju og sóknar-
möguleikar spilsins fóru ekki fram
hjá norðri.
Vestri var nokkur vorkunn að
dobla slemmuna þótt það sé algild
regla í svona stöðum að segja einum
hærra en andstæðingarnir til þess
að forðast stórt áfall. Hún sannaðist
í þessu spili því að þótt a-v fómi í sjö
hjörtu geta n-s aldrei fengið meira
en átta hundruð með bestu vöm.
Sex tíglar doblaöir og sjö unnir
kostuðu hins vegar 1190 en aðeins 5
impa í Butlerútreikningunum því að
fleiri pör náðu slemmunni.
Tæplega 40 pör eru skráð öl leiks
á opna stórmótið á Hótel Örk, sem
verður helgina 1,-2. október.
Stórglæsileg verðlaun em 1 boði,
feröavtnningar fyrir þrjú efstu sæt-
in og peningaverölaun fyrir 4.-5.
sæti. Vinningar era að verðmæti
samtals 250 þúsund krónur. Auk
þess er spilaö um íjölda silfurstiga
í hverri umferð.
Spilaður verður Mitchell, þrjár
umferðir. Tvær umferðir verða á
laugardegi og ein á sunnudegi.
Spilameimska hefst kl. 13:00 báða
dagana. Keppnisstjóri verður Ólaf-
ur Lárusson. Keppnisgjald á par er
4.500 kr. og gisting í 2 manna her-
bergi kostar kr. 1.750. Góð aöstaða
til spilaiðkunar er á Örkinni. Á
laugardagskvöldinu verður boöið
upp á „skralT á hótelinu fyrir
keppendur og gesti þeirra.
Skráning í mótið er á skrifstofu
BSÍ í síma 91-689360 eða 689361
(Ólafúr) eða hjá Gunnari Óskars-
syni fyrir austan. Sigurvegarar á
mótinu í fyrra urðu Hannes R.
Jónsson og Hermann Lárusson.
Urslit Egilsstaðamótsins
Magnús Ásgrímsson og Þor-
steinn Bergsson frá B.Fþótsdals-
héraðs uröu öruggir sigurvegarar
í Valaskjálf-mótinu sem spilað var
helgina 9.-10, september síðastliö-
inn. 20 pör tóku þátt í mótinu, sem
er heldur lakari þátttaka en ráð var
f'yrir gert Spilað var eftir baromet-
er-fyrirkomulagi, allir v/alla. Röð
efstu para:
1. Magnús Ásgrímsson-Þorsteinn
Bergsson, FJjótsdalshreppi. 142
2. Gunnar Páll Halldórssn-Magn-
ús Jónsson, Höfn 77
3. Guðmundur Pálsson-Pálmi
Kristmannsson, Fljótsdalshreppi,
'57
4. Gissur Jónasson-Gunnar Berg,
Akureyri, 46
5. Hjördis Eyþórsdóttir-Anton R.
Gunnarsson, Rvk. 24
Keppnisstjórar voru þeir Björn
Jónsson frá Reyöarfirði og ísak
Öm Sigurðsson Rvk. og skiluöu
sínu hlutverki með sóma.