Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1993, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1993
Eins og sjá má eru ýmis hljóðfæri gripin með í Hljómskálann.
miöar í bíó ■ Geislaplötur með tónlistinni
Nú er tækifæri fyrir alla krakka að ná sér í miða á bíómyndina í Regnbogan-
um sem, aö sjálfsögðu, er með íslensku tali. Litaðu myndina og sendu til
Krakkabklúbbsins fyrir 28. apríl nk. Nöfn 50 heppinna krakka verða dregin
út og fá þeir tvo miða á Tomma og Jenna. Aðrir 15 krakkar verða dregnir út
og fá þeir geislaplötu með tónlistinni úr myndinni. Allir vinningarnir verða
sendir til vinningshafa í pósti.
Nafn:.....................................................................
Heimilisfang:.............................................................
Póstnúmer:................................................................
I'
Utanáskrtftln er
v/Tommi og Jonni
Þverholti 11, 105 Royklavík
S-K-í-F-A-N
Söngglatt fólk kemur saman einu sinni í viku:
Rútubíla-
lögin
sungin viö
raust í
Hljóm-
skálanum
Á hveiju mánudagskvöldi frá
klukkan 9.30-11 heyrist margradda
söngur frá Hljómskálanum. Hann
kemur þó ekki frá hefðbundnum kór
heldur hressum hópi fólks sem kem-
ur saman og tekur gömlu „rútubíla-
lögin“ sér til upplyftingar og ánægju.
Þarna eru sungin viö raust lög eins
og Þórsmerkurljóð og vafalaust lagiö
um hann Bjössa á mjólkurbílnum,
svo eitthvaö sé nefnt. Þeir sem eiga
hljóðfæri grípa þau gjaman með sér.
Sumir spila á gítar, aðrir á blásturs-
hljóðfæri og enn aðrir á trommur.
AÚir leggja eitthvað af mörkum meö
söng og hijóðfæraleik.
DV sló á þráðinn til Jóhönnu
Magnúsdóttur sem er ein úr hópnum
og situr að auki í þriggja manna
stjórn hans. Hún sagði að það væri
ákveðinn kjami, um 40 manns, sem
kæmi oftast í sönginn á mánudags-
kvöldum. Sannast sagna væri Hljóm-
skálinn að springa utan af söngfólk-
inu þar sem alltaf væru einhverjir
að bætast í hópinn. Oft mættu svo
margir að einhverjir yröu að sitja á
gólfmu. Fólkiö mætti með texta-
möppumar sínar, sem sífellt væri að
bætast í, og síðan skiptist það á um
að velja lög. Allir yröu að syngja það
sem stungið væri upp á.
Þaö er ekki einungis fullorðna fólk-
ið sem hefur gaman af að taka lagiö.
Börnin og unglingarnir láta sig ekki
heldur vanta. Öllum er frjálst að
koma og töluvert um að börn komi
meö foreldrum sínum. Þaö á ekki
síst við fyrir jóhn en þá eru sungnir
jólasöngvar, kökur og gos eru á boð-
stólum og mikil stemning í lofti.
Starfað í tíu ár
Þessi lífsglaði hópur hefur nú sung-
ið saman í rúmlega tíu ár. í haust
var haldið upp á tíu ára afmæliö með
skemmtun í Risinu. Þá var borðaður
góður matur, dansað af krafti við
harmóníkuundirleik og lagið auðvit-
að tekið.
Sönghópurinn gerir ýmislegt fleira
en að hittast reglulega í Hljómskál-
anum. Hann heldur vorfagnað,
þorrablót, fer út að borða og kíkir inn
á krá eða fer eitthvað annað þar sem
hægt er að syngja. Einnig er farið í
Heiðmörk og grillað, auðvitað með
hljóðfæri og söngmöppur í fartesk-
inu. Meginmarkmiöið er aö hafa
gaman af líðandi stundu og njóta
þess aö vera saman, eða eins og einn,
sem nýkominn er í sönghópinn, orð-
aði það: „Það sem mér finnst svo
stórkostlegt er að hér eiga alhr sinn
tilverurétt.“
Stundum bregða svo félagamir
undir sig betri fætinum og heim-
sækja ýmsar sjúkrastofnanir og
syngja með þeir sem þar dvelja svo-
htla stund. Þannig hafa þeir heim-
sótt Reykjalund nokkrum sinnum,
Sunnuhhð og Sjálfsbjargarhúsiö svo
eitthvað sé nefnt. Talsvert er um að
slíkar stofnanir hafi samband við
hópinn og biðji hann að koma og
syngja með fólkinu, sem þar dvelur,
um stund. Það er auösótt mál og
borgun má ekki nefna. Allt er þetta
gert ánægjunnar vegna.
Byrjaði í
heimahúsum
Nú kynni sjálfsagt einhver að
spyija hvert hafi verið upphafið á
samstarfi þessa lifsglaða fólks. Því
er til aö svara, að nokkrir upphafs-
mannanna tóku sig til og byijuðu að
syngja í heimahúsum. Var þá komið
saman heima hjá félögunum til skipt-
is. Síðan fór þetta að vinda upp á sig,
þannig að húsnæði var tekið á leigu
til þess að hægt væri að gefa fleirum
kost á aö vera með.
Ekki hefur af veitt því þetta hefur
heldur betur hlaðið utan á sig þau
tíu ár sem hópurinn hefur sungið
saman. Og enn eru nýir að bætast
við.
-JSS
Og svo syngur fólk af innlifun, eins og vera ber. DV-myndir Hanna