Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1993, Side 21
LAUGARDAGUE 17. APRÍL 1993
21
Sigurgeir Gíslason, hafnfirskur áhugamaður um breskan fótbolta:
Hver laugardagur jafn-
ast á við kosninganótt
„Ég er meö bækur yfir þetta og er
viðbúinn þegar laugardagamir
renna upp. Þá er ég með leikina á
blöðum og fylgist svo með úrslitun-
um,“ segir Hafnfirðingurinn Sigur-
geir Gíslason. Aðaláhugamál hans
er fótbolti og ekki er ofsagt að hann
sé sérfræðingur í bresku knattspym-
unni.
Á laugardögum er mikið um að
vera hjá Sigurgeiri. Þá fylgist hann
með úrslitunum á BBC en einnig með
því sem er að gerast á sjónvarpsskj-
ánum. Á tæpum tveim tímum síðdeg-
is á hverjum laugardegi ráðast úrslit
í rúmlega 50 leikjum. Með öllu þessu
fylgist Sigurgeir af lífi og sál.
„Ég þarf stundum að stökkva frá
leiknum í sjónvarpinu til þess að ná
ýmsum úrslitum á BBC. Ég hleyp
stundum á milh sjónvarpsins og út-
varpsins og hlusta, ef þeir koma með
markaskorunina. Það gerist venju-
lega á vissum tímum og þá þarf mað-
ur að vera með á nótunum. Ég hef
áhka gaman af hveijum laugardegi
eins og að hlusta á tölur á kosninga-
nótt. Laugardagarnir eru mín hátíö,
þvt þá get ég fylgst með fótboltanum.
Ég þarf engan sérstakan útbúnað
th að ná þessum sendingum vel. Kon-
an mín óskar þess að ég hafi heyrnar-
tól, en annars nota ég bara tækið.“
Alltfrá 1950
Sigurgeir hefur fylgst með bresku
knattspymunni ahar götur frá 1950.
Hann hefur ahtaf hlustaö mikið á
BBC, eða aht frá því að hann eignað-
ist stuttbylgjutæki á stríðsáranum.
„Eftir það hlustaði ég mikið á er-
lendar stöðvar. Væri Spánn t.d. með
heimsmeistarakeppni, þá hlustaði ég
bara á beinar útsendingar þaðan.
Maður þarf ekki að kunna mikið í
málinu th að skhja hvað um er aö
vera í fótboltanum.
Ég fylgdist einnig með skákmótum
í Búdapest þegar enginn náði neinu.
Ég man eftir því að ég var að vinna
í Krýsuvík við húsbyggingu og þá var
mikið mót í Ungverjalandi. Þá var
allt lokað, enda kalda stríðið á fuhu.
Þama voru bestu skákmenn heims-
ins mættir og engin skeyti, eða neitt.
Þá hlustaði ég bara á „Radio Buda-
pest“ tíu mínútur yfir níu á hveiju
kvöldi. Ég veitti svo dagblööum hér
upplýsingar um gang mála á mótinu,
þannig að lesendur þeirra fengu allt-
af glænýjar fréttir í gegnum útvarpið
mitt.“
Sigurgeir segist hlusta meira á
„gufuna“ en BBC, þegar hér er kom-
ið sögu. Hann segist þó hlusta á
bresku stöðina á laugardögum. Hann
segist fylgjast gjörla með gangi mála
í 3. og 4. dehdinni í knattspyrnunni.
„Ég læt ekki strákana héma segja
mér hvort hðið á velhnum sé betra.
íslendingar eru svohtið gjarnir á að
vera hlutdrægir þegar um er að ræða
fréttir af íþróttaviðburðum. Þeir
draga gjarnan taum annars hðsins á
vellinum og ljúga gjaman frægðinni
upp á þaö, alveg viðstöðulaust. Ég
hef ekkert gaman af því að láta
skammta mér þetta svona, ég vh
hlusta á þetta sjálfur.
Sigurgeir segist ahs ekki fara að
eins og dæmigerður Breti og fá sér
bjórkohu með fótboltanum.
„Ég hef ekkert gaman af því að
vera undir áhrifum áfengis við að
hlusta á þetta. Enda færi þá allt í
handaskolum.“
Sigurgeir Gíslason hefur í nógu að snúast á laugardögum, þvi þá fylgist
hann með öllum úrslitum I bresku knattspyrnunni. DV-mynd ÞÖK
Ólæknandi della
Einhverjir myndu líklega segja að
Sigurgeir væri með ólæknandi dehu.
Því hefur heyrst fleygt, að séu skh-
yrðin slæm þegar fótboltinn er í loft-
inu, þá þjóti hann út í bh og aki á
einhvern þann stað þar sem erlendu
stöövarnar náist betur.
„Stundum heyri ég betur í bhnum,
þá beint á miðbylgju. Þá eru kannski
4-5 leikir og lýsing á einum, meðan
ahir hinir era í gangi. Þá föram við
smárúnt, ég og strákurinn minn.
Hann hefur brennandi áhuga eins
og ég.
Mér finnst voða gaman að þessu,
þegar þeir eru að skora og spenna
er komin í leikinn. Ég hef ahtaf hald-
ið með Queens Park Rangers í 1.
dehdinni, en það er htið hð frá Lon-
don sem er aö verða nokkuð stórt
núna. Það byijaði þannig að þeir
komu hingað 1947, um vorið. Þá voru
þeir 3. dehdar hð og raunar fyrsta
enska atvinnuhðið sem kom hingað.
1967 þutu þeir svo upp úr 3. deildinni
og hafa ekki lent í henni síðan. Ég
hef komið þama út á þeirra heima-
slóð og þetta er mjög vel rekið félag."
Auk QPR heldur Sigurgeir mikið
upp á Everton og Manchester City,
svo einhver séu nefnd. Hann hefur
yfirleitt haldið með félögum sem hafa
átt á brattann að sækja.
„Ég spha nú htið í getraunum og
er hálf skömmustulegur þegar ég er
að því. En maður eyðir kannski 4-500
krónum í þetta. Ég hef mest fengið
11 rétta, en er yíirleitt ekki með fleiri
en 10.“
2 stækkaiiir
á sama verði 1
Nýi myndastækkarinn frá Kodak:
• stækkun tekur aðeins 5 mínútur
• stærð mynda frá 13 x 18 - 28 x 35 cm
• hágæðamyndir
• verð frá 215 kr.
HflNS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI SÍMI: 20313 OG KRINGLUNNI
REYKVIKINGARI
NÚ ERKOMINN
NAGLADEKKIN
FYRIR SUMARDEKKIN
SUMARDEKKIN Á
GATNAMÁLASTJÓRI