Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1993, Side 47
LAUGARDAGUR 17, APRÍL 1993
59
Afmæli
Dagbjört Gísladóttir
Dagbjört Gísladóttir húsmóöir,
Laugafelli í Reykjadal, S.-Þing.,
verður níræð á morgun, sunnudag.
Starfsferill
Dagbjört fæddist á Hoíi í Svarfað-
ardal og ólst þar upp. Að loknum
bamaskóla nam hún við Unglinga-
skóla Svarfdæla á prestsetrinu Völl-
um undir leiösögn Þórarins Kristj-
ánssonar bónda á Tjörn.
Dagbjört starfaði eftir það um
tíma við Garðyrkjustöðina á Akur-
eyri og við Garðyrkjustöðina á
Reykjum í Mosfellssveit. Árið 1925
fór hún til náms við íþróttaskólann
í Ollerup í Danmörku og í hús-
mæðraskólann á Sorö í Danmörku
aðþví loknu.
Eftir heimkomuna hélt Dagbjört
námskeið í húsmæðrafræðum víða
um landið en 1929 réðst hún til
kennslustarfa við Húsmæðraskóla
Þingeyinga að Laugum. Ári síðar
gerðist hún ráðskona við Héraðs-
skólann á Laugum og starfaði þar
þangað til hún gifti sig tveimur
árum síðar og geröist húsmóðir á
Litlu-Laugum. Þau hjónin byggðu
síðar nýbýlið Laugafelh úr landi
Litlu-Lauga og hafa búið þar síðan.
Dagbjört var til fjölda ára próf-
dómari viö Húsmæöraskólann á
Laugum og í skólanefnd hans. Hún
starfaði mikiö með Kvenfélagi
Reykdæla og var um árabil vara-
formaður Kvenfélagasambands
Suður-Þingeyjarsýslu. Einnig
gegndi hún ritarastarfi í sóknar-
nefnd Einarsstaðakirkju til fjölda
ára.
Fjölskylda
Dagbjört giftist 22.8.1931 Áskeh
Sigmjónssyni frá Litlu-Laugum, þá
bryta og kennara á Laugum. Hann
er sonur Sigmjóns, skálds og b. á
Litlu-Laugum í Reykjadal, Friðjóns-
sonar, Jónssonar, frá Sandi. Móðir
Áskéls var Kristín Jónsdóttir hús-
móðir.
Böm Dagbjartar og Áskels eru:
Eyvindur, f. 22. júh 1932, b. á Lauga-
felh; Hahdóra, f. 2. desember 1933,
gift Bjama Jenssyni, flugmanni í
Rvík; Ingibjörg, f. 2. júní 1935, gift
Kára Amórssyni, skólastjóra í Rvík;
Þorsteinn, f. 18. apríl 1937, b. á
Laugafelh, kvæntur Bimu Jóns-
dóttur; Kristín, f. 30. ágúst 1939, gift
Sigurði Þórðarsyni, á Egilsstöðum;
oglngunn, f. 7. júh 1944, gift Jóni
Siguijónssyni á Húsavík.
Systkin Dagbjartar eru: Jón, fyrr-
um b. á Hofi, sem nú er látinn, var
kvæntur Arnfríði Sigurhjartardótt-
ur, systur Sigfúsar, og em þau for-
eldrar Gísla menntaskólakennara á
Akureyri; Gunnlaugur, fyrrum b.
og oddviti á Sökku í Svarfaðardal,
nú látinn, var kvæntur Rósu Þorg-
ilsdóttur og á meðal barna þeirra
er Þorgils b. í Sökku, Jóna, ekkja
séra Stefáns Snævarrs og Dagbjört,
kona séra Þóris Stephensens; Soffia,
lengst af ráðskona hjá Jóni bróður
sínum á Hofi en nú búsett á Akur-
eyri; og Hahdóra, kona Ara Þorgils-
sonar á Sökku en hún lést fyrir ald-
urfram.
Fóstm-systir Dagbjartar er Hah-
fríður Ingibjörg Kristjánsdóttir,
móðir Páls Steingrímssonar kvik-
myndagerðarmanns og eiginkona
Steingríms Benediktssonar, kenn-
ara í Vestmannaeyjum. Dagbjört og
Sveinbjörn Jónsson, Þórðarsonar,
vora systkinaböm.
Oagbjört Gísladóttir.
Foreldrar Dagbjartar vora Gísh
Jónsson frá Ytra-Hvarfi í Svarfað-
ardal, b. og smiður á Hofi í sömu
sveit, og kona hans Ingibjörg Þórð-
ardóttir frá Hnjúki í Skíðadal.
Dagbjört verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Halldóra G. Sævarsdóttir
Halldóra G. Sævarsdóttir skrif-
stofusljóri, Stekkjargerði 11, Akur-
eyri,erfertugídag.
Starfsferill
Hahdóra fæddist í Bolungarvík
og ólst þar upp. Hún lauk þaðan
landsprófi 1969 og síðar stúdents-
prófi frá MA1973.
Á áranum 1967-71 starfaði Hah-
dóra í frystihúsinu í Bolungarvík
og á Súlnabergi á Akureyri frá
1971-74. Næstu sex árin var hún á
bæjarskrifstofu Akureyrar og hjá
Starfsmannafélagi Akureyrarbæj-
arfrál980.
Hahdóra er nemandi í rekstrar-
dehd Háskólans á Akureyri og
kennir jafnframt ritvinnslu í
Tölvufræðslu Akureyrar.
Fjölskylda
Hahdóra er gift Guðmundi Brynj-
ólfssyni, f. 11.6.1949, verkstjóra.
Hann er sonur Brynjólfs Helgason-
ar, sem nú er látinn, og Önnu Guð-
mundsdóttur, húsmóður á Akur-
eyri.
Halldóra og Guðmundur eiga
þijú böm. Þau eru: Anna Bjamey,
f. 1973, trúlofuð Jóni Einari; Sævar
Már, f. 1979; Brynja Björk, f. 1981.
Systkini Hahdóra eru: Jensína
Ólöf, f. 1954, gift Sveinbirni, búsett
í Bolungarvík og eiga þau Jóhönnu,
Hahdóra og Ragnar; Elísabet, f.
1955, í sambúð með Svani, búsett í
Njarðvík og eiga þau soninn Sæv-
ar; Guðni Kristján, f. 1957, kvæntur
Guðlaugu Ingibjörgu, búsett í Bol-
ungarvík og eiga þau Bjameyju
Jóhönnu, Sveinbjörn Hrafn og
Kristján Erlend; Guðmunda, f.
1958, búsett í Bolungarvík og á hún
Hrund og Brynju Ruth; Ingibjörg,
f. 1962, gift Magnúsi, búsett á Akur-
eyri og eiga þau Sonju og Elmar;
og Sóley, f. 1970, í sambúð með
Ólafur Þór
Gunnarsson
Ólafur Þór Gunnarsson viðskipta-
fræðingur, Hraunbrún 4, Hafnar-
firði, er fertugur í dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Laugarneshverfmu. Hann
varð stúdent frá MR1975 og starfaði
hjá kúluleguverksmiðjunni SKF í
Gautaborg frá 1976-78.
Ólafur stundaði nám í viðskipta-
fræðum við Gautaborgarháskóla
1978-82 og hefur starfað á aðalskrif-
stofu íslenskra aðalverktaka á
Keflavíkurflugvelli síðan.
Ólafur er gjaldkeri Starfsmanna-
félags íslenskra aðalverktaka, hefur
verið í stjórn Sjálfstæðisfélagsins
Fram í Hafnarfirði frá árinu 1992
og í blaðstjóm Hamars, blaðs Sjálf-
stæðisfélagsmanna í Hafnarfirði,
frá áramótum. Hann var ennfremur
gjaldkeri Félags sjálfstæðismanna í
Langholtshverfi frá 1989-91.
Fjölskylda
Ólafurkvæntist 27.10.1973Lindu
Róberts, f. 12.2.1954, húsmóður.
Hún er dóttir Róberts Amfinnsson-
ar, f. 16.8.1923, leikara, og Stehu
Guðmundsdóttur, f. 29.7.1923, hús-
móður. Þau búa í Kópavogi.
Böm Ólafs og Lindu era: Guðrún
Jóhanna, f. 3.6.1973, nemi, í sambúð
með Hjalta Ólafssyni, búsett í Kópa-
vogi og eiga þau soninn Ólaf, f. 4.6.
1991; Gunnar Már, f. 16.1.1978, nemi,
búsettur í foreldrahúsum; Róbert
Þór, f. 13.1.1982, nemi, búsettur í
foreldrahúsum.
Systkini Ólafs eru: Gunnar Ingi,
f. 21.8.1946, læknir, kvæntur Emu
Olafur bór Gunnarsson.
Matthíasdóttur hjúkrunarfræðingi,
búsett í Reykjavík og eiga þau eitt
bam. Fyrir átti Gunnar fimm börn;
Hjördís Thors, f. 17.7.1948, gift Ólafi
Thors, búsett í Reykjavík og eiga
þau tvær dætur; og Ingibjörg, f. 2.8.
1959, starfsmaður á auglýsingadehd
Stöðvar 2, búsett í Kópavogi og á
húntvöböm.
Faðir Ólafs er Gunnar Þorbjöm,
f. 8.8.1926, forstjóri íslenskra aðal-
verktaka, Gunnarsson, Jónssonar,
Hanssonar, Natanssonar, Kethsson-
ar.
Móðir Ólafs var Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir, f. 16.11.1923, d. 26.8.
1988, húsmóðir, dóttir Ólafs Einars-
sonar leigubifreiðastjóra.
Núverandi sambýliskona Gunn-
ars er Lára Hansdóttir, f. 1.2.1930,
kennari. Þau búa í Reykjavík.
Ólafur tekur á móti gestum í Sjálf-
stæðishúsinu í Hafnarfirði frá kl.
20 á afmælisdaginn.
Heimi, búsett á Akureyri.
Foreldrar Halldóru era Sævar
Guðmundsson, f. 25.1.1930, fisk-
matsmaður í Bolungarvík, og
Bjarney Jóhanna Kristjánsdóttir,
f. 29.8.1934, húsmóðir og fiskverka-
kona. Þau búa í Bolungarvík.
Foreldrar Sævars voru Guð-
mundur Ásgeirsson, f. 21.9.1894,
d. 29.8.1972, og Jensína Ólöf Sól-
mundsdóttir, f. 24.6.1901, d. 23.8.
1986. Bjarney var dóttir Guðná
Kristjáns Jenssonar, f. 3.12.1911,
d. 16.7.1991, og Guðrúnar Bjarna-
dóttur, f. 18.11.1913, d. 3.8.1981.
Halldóra G. Sævarsdóttir.
Vantar þig rafmagn í
sumarbústabinn?
Tímabundinn afsláttur
tengigjalda 1993
Rafmagnsveitur ríkisins hafa ákveöið aö veita tímabundinn afslátt frá Gjaldskrá um
tengigjöld í sumarhúsahverfum áriö 1993. Afsláttur þessi er byggöur á því aö hægt sé í
samvinnu viö umsækjendur aö ná fram meiri hagkvæmni en ella viö heimtaugalagnir.
Eftirfarandi meginskilyröi eru fyrir afslættinum:
1. Afsláttur er aðeins veittur ef um er að ræða sumarhúsahverfi sem þegar hefur veriö
rafvætt aö einhverju leyti. Afsláttur er þó einnig veittur í nýjum hverfum að upp-
fylltum skilmálum gjaldskrár, m.a. um lágmarksfjölda við upphaf rafvæðingar við-
komandi hverfis.
2. Umsókn heimtaugar þarf að berast fyrir 1. maí 1993.
3. Gengið skal frá greiðslu fyrir 25. maí 1993.
4. Verktími (dagsetning) verði ákveðinn í samráði við umsækjenda og Rafmagnsveitn-
anna. Umsækjendur tilnefni einn tengilið í hverju tilviki.
5. Umsækjendur munu sjá til þess að nauðsynlegum frágangi innan lóðarmarka, sam-
kvæmt skilmálum í gildandi gjaldskrá, sé lokið á réttum tíma, sbr. lið 4.
6. Afsláttur þessi gildir til haustsins 1993, meðan aðstæður vegna veðurfars o.fl. leyfa
að mati Rafmagnsveitnanna. Rafmagnsveiturnar munu yfirfara umsóknir og gefa
svörum afslátt fyrir 20. maí 1993.
Þessi afsláttur nemur 19,8%, þannig að grunngjald lækkar úr 162.000 kr. (án vsk) í
130.000 kr. (án vsk).
Þeim aðilum sem eiga óafgreiddar umsóknir frá fyrra ári, er bent á að hafa samband
við Rafmagnsveiturnar hið fyrsta.
31. mars 1993
RAFMAGNSVEITUR
RÍKISINS
lifandi afl