Dagur - 29.08.1962, Side 9
Akureyrarflugvöllur er vaxandi samgöngumiðstöð. Þar er fyrsta flugstöð, sem íslendingar byggðu.
þeim, sem kynnast vilja nýjungum í ræktun lands og
búpenings. Togaraútgerð, hraðfrystihús, þilskipa-
útgerð og smábátaútveg, ennfremur niðursuðu, mun
ýmsum hugleikið að sjá og kynnast.
Skólarnir á Akureyri, svo sem menntaskóli og
gagnfræðaskóli, eru traustar og virtar stofnanir, sem
eiga ítök í hugum þúsunda foreldra um land allt,
er trúað hafa þessum og öðrum skólum bæjarins
fyrir börnum sínum.
Hér hefur verið stiklað á stóru og aðeins fátt eitt
nefnt af mörgu, sem venjulegt ferðafólk vill sjá.
Heimilin, bæjarbragurinn og skemmtanalífið verða
ekki gerð hér að umtalsefni. En minna má á, að það
sem á kann að vanta í fyrirgreiðslu bæjarfélagsins og
liins opinbera við hina mörgu, sem leið sína leggja
um Akureyri, bætir hin gamla og góða íslenzka gest-
risni upp að nokkru, því að henni hafa Akureyring-
ar ekki varpað fyrir borð.
Skiðahótelið i Hliðarfjalli rúmar mörg hundruð manns.
DAGUR 7