Dagur - 29.08.1962, Qupperneq 23
verzlunaraðili í Akureyrarbæ og rekur myndarleg
útibú í öllurn bæjarhverfum. KEA reið á vaðið hér
um kjörbúðarfyrirkomulag með opnun kjörbúðar-
innar í Brekkugötu 1, í hjarta miðbæjarins, en síðan
hefur hver kjörbúðin rekið aðra í öðrum byggða-
hverfum, nú síðast í Glerárhverfi, þar sem risin er
ein fegursta búð bæjarins, sem ætlað er að fullnægja
þörfum vaxandi bæjarhluta næstu árin. Alls munu
um 115 fastráðnir starfsmenn vinna við búðar- og
afgreiðslustörf á vegum Kaupfélags Eyfirðinga í að-
aldeildum, útibúum og sérverzlunum. Félagið hefur
verzlun, iðnað og önnur athafnasvæði á meira en
60 stöðum í bænum. í Akureyrardeild félagsins voru
um áramótin 2452 félagsmenn, og munu flest
heimili í bænum hafa mikil viðskipti við KEA og
mörg svo til einvörðungu, ekki sízt að því er tekur
til alls nauðsynjavarnings. Framkvæmdastjóri er
Jakob Frímannsson.
Auk Kaupfélags Eyfirðinga er starfandi í bænum
annað kaupfélag, Kaupfélag verkamanna. Frarn-
kvæmdastjóri þess er Haraldur Helgason. Það rekur
nokkrar búðir. Einnig er í bænum mikil kaup-
mannaverzlun, því alls munu um 50 verzlunarfyrir-
tæki rekin af 40 einstaklingum og hlutafélögum, þar
af um 20 matvöruverzlanir og 15 vefnaðarvöru- og
fataverzlanir, auk margs konar annarra verzlana. Er
talið, að um 100 manns vinni við verzlun ein-
staklinga og lilutafélaga. Til viðbótar áðurgreindum
smásöluverzlunum eru starfandi í Akureyrarbæ 3
heildverzlanir og umboðssölur. Hafa kaupmenn með
sér sanrtök, gamalt félag, sem nefnist Verzlunar-
mannafélagið á Akureyri, og er Tómas Steingríms-
son formaður þess. Þá er einnig starfandi stéttarfélag
verzlunar- og skrifstofumanna, en formaður þess er
Kristófer Vilhjálmsson.
Akureyri er hlutfallslega mesti samvinnubær í
heimi, þ. e., samvinnumenn eiga meiri þátt í verzl-
Tómas Sleingrimsson,
fortnaður kauprhanna-
samtakanna.
un, iðnaði og öðrum atvinnurekstri í höfuðstað
Norðurlands, en annars staðar þekkist. En saga
kaupmanna er þó eldri og út frá verzluninni byggð-
ist kaupstaðurinn, þótt aðrar greinar athafnalífsins
séu nú traustar orðnar, svo sem iðnaður og útgerð.
Kaupmannaverzlanir hafa löngum staðið traustum
fótum á Akureyri.
Allt frá þeim tíma að Eyfirðingar fengu Tryggva
Gunnarsson til að annast hagkvæm vörukaup og
koma innlendum vörum í sæmilegt verð, hefur fólk-
ið sjálft í byggð og bæ, síðar á samvinnugrundvelli,
annazt meginhluta allrar verzlunar. Þessi staðreynd
er enginn áfellisdómur unr kaupmannastéttina, eins
og hún er nú, heldur mikilvægur vitnisburður um
félagsliyggju fólksins við Eyjafjörð.
Það er gott að verzla á Akureyri, og hver sem er
getur valið milli verzlana samvinnumanna og kaup-
manna. Það er hið fullkomna verzlunarfrelsi. En
samkeppnin, og rökræður um þessi tvö aðal verzl-
unarform, fela í sér bætta verzlunarþjónustu og
aukna verzlunarmenningu.