Dagur - 29.08.1962, Page 31

Dagur - 29.08.1962, Page 31
um milljónum, sjö hundruð og tveimur þúsundum króna. Þær tölur, sem hér hafa verið birtar, staðfesta bet- ur en allt annað að iðnaðurinn í þessum bæ, er sú atvinnugreinin, sem hœst gnæfir. Þær staðfesta enn fremur að það er fullkomið réttnefni að kalla Akur- eyri iðnaðarbæ. Til viðbótar því sem hér hefur verið nefnt, má svo geta þess, að hér er starfandi fjöldi fyrirtækja, sem mætti skilgreina undir orðinu iðja, svo sem úr- smíða, gull- og silfursmíðaiðja, snyrtingariðja og fleira því líkt. Þótt það verði ávallt að teljast mjög ánægjulegt, þegar fésterkir einstaklingar eða félög, hrinda í framkvæmd merkum iðngreinum, hér í bæ, þá má aldrei gleyma því, að merkasti þátturinn í hverjum iðnrekstri er fólkið, sem við iðnaðinn vinnur. Iðn- aðarbæ sem Akureyri, er ekkert nauðsynlegra, en að hér staðfestist æskumenn og konur, sem vilja gera iðnaðarstörf að lífsstarfi sínu. Á Akureyri nú þegar marga góða iðnaðarmenn, konur og karla, sem hafa sýnt það með störfum sínum, að þeir eru þess megn- ugir að mæta samkeppni iðnaðarvarnings frá nær- liggjandi þjóðum, sem þó hafa að baki sér margra áratuga lengri iðnþróun. Iðnaðurinn þarf í vaxandi mæli að auka iðn- menntun þessa fólks, og bæjarfélagið þarf að mæta þörfum iðnaðarins á þessu sviði, með fjölþættari og bættri iðnfræðslu, og auknum og bættum húsakosti til slíkrar fræðslustarfsemi. Á komandi árum verður að gera ráð fyrir, að hér rísi upp vaxandi iðnaður, svo sem stálskipasmíði, aukin tréskipasmíði, stærri niðursuðuverksmiðjur sjávarafurða, efnaiðnaður, raftækjaiðnaður og senni- lega margt fleira. Til þess að mæta óleystum framtíðarverkefnum, þarf Akuryerarbær og einstaklingar hans og félög, að halda vöku sinni, taka ný verkefni með árvekni og djörfung í þjónustu sína og stuðla á þann hátt að örum vexti bæjarfélagsins, til heilla og hamingju fyrir einsaklinga þess og heildina alla. Á 100 ára afmæli Akureyrarbæjar, mun verða komið upp iðnsýningu, sem gefur nokkru gleggri mynd af þeirri iðnþróun, sem hér hefur orðið, en hægt er að gefa í stuttri blaðagrein, og munu bæjar- búar og aðkomugestir, með eigin augum geta séð þar margt, sem eigi hefur tekizt að skilgreina hér sem skyldi. Á þessu merka afmæli bæjarins, held ég að iðnað- urinn geti eigi gefið bæjarfélaginu aðra afmælisgjöf betri, en þá, að hver einstakur iðnrekandi og fólkið sem við iðnaðinn starfar, setji sér það ákveðna mark, að hefja iðnaðinn til enn meiri vegs og virðingar, á komandi tímum, en tekizt hefur til þessa, og skal þó játað, að margt hefur þar vel tekizt á umliðnum árum. Forráðamenn Akureyrarbæjar mega ávallt vera þess minnugir, að iðnaðurinn þarfnast umhyggju þeirra og skilnings á þeim verkefnum, sem hann tekur sér fyrir hendur, en þann veg getur iðnaður- inn í nútíð og framtíð bezt gegnt því hlutverki sínu að vera styrkasta stoðin undir atvinnulífi bæjarins. Arnþór Þorsteinsson. DAGUR 29

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.