Dagur - 29.08.1962, Qupperneq 31
um milljónum, sjö hundruð og tveimur þúsundum
króna.
Þær tölur, sem hér hafa verið birtar, staðfesta bet-
ur en allt annað að iðnaðurinn í þessum bæ, er sú
atvinnugreinin, sem hœst gnæfir. Þær staðfesta enn
fremur að það er fullkomið réttnefni að kalla Akur-
eyri iðnaðarbæ.
Til viðbótar því sem hér hefur verið nefnt, má
svo geta þess, að hér er starfandi fjöldi fyrirtækja,
sem mætti skilgreina undir orðinu iðja, svo sem úr-
smíða, gull- og silfursmíðaiðja, snyrtingariðja og
fleira því líkt.
Þótt það verði ávallt að teljast mjög ánægjulegt,
þegar fésterkir einstaklingar eða félög, hrinda í
framkvæmd merkum iðngreinum, hér í bæ, þá má
aldrei gleyma því, að merkasti þátturinn í hverjum
iðnrekstri er fólkið, sem við iðnaðinn vinnur. Iðn-
aðarbæ sem Akureyri, er ekkert nauðsynlegra, en að
hér staðfestist æskumenn og konur, sem vilja gera
iðnaðarstörf að lífsstarfi sínu. Á Akureyri nú þegar
marga góða iðnaðarmenn, konur og karla, sem hafa
sýnt það með störfum sínum, að þeir eru þess megn-
ugir að mæta samkeppni iðnaðarvarnings frá nær-
liggjandi þjóðum, sem þó hafa að baki sér margra
áratuga lengri iðnþróun.
Iðnaðurinn þarf í vaxandi mæli að auka iðn-
menntun þessa fólks, og bæjarfélagið þarf að mæta
þörfum iðnaðarins á þessu sviði, með fjölþættari og
bættri iðnfræðslu, og auknum og bættum húsakosti
til slíkrar fræðslustarfsemi.
Á komandi árum verður að gera ráð fyrir, að hér
rísi upp vaxandi iðnaður, svo sem stálskipasmíði,
aukin tréskipasmíði, stærri niðursuðuverksmiðjur
sjávarafurða, efnaiðnaður, raftækjaiðnaður og senni-
lega margt fleira.
Til þess að mæta óleystum framtíðarverkefnum,
þarf Akuryerarbær og einstaklingar hans og félög,
að halda vöku sinni, taka ný verkefni með árvekni
og djörfung í þjónustu sína og stuðla á þann hátt að
örum vexti bæjarfélagsins, til heilla og hamingju
fyrir einsaklinga þess og heildina alla.
Á 100 ára afmæli Akureyrarbæjar, mun verða
komið upp iðnsýningu, sem gefur nokkru gleggri
mynd af þeirri iðnþróun, sem hér hefur orðið, en
hægt er að gefa í stuttri blaðagrein, og munu bæjar-
búar og aðkomugestir, með eigin augum geta séð
þar margt, sem eigi hefur tekizt að skilgreina hér
sem skyldi.
Á þessu merka afmæli bæjarins, held ég að iðnað-
urinn geti eigi gefið bæjarfélaginu aðra afmælisgjöf
betri, en þá, að hver einstakur iðnrekandi og fólkið
sem við iðnaðinn starfar, setji sér það ákveðna mark,
að hefja iðnaðinn til enn meiri vegs og virðingar,
á komandi tímum, en tekizt hefur til þessa, og skal
þó játað, að margt hefur þar vel tekizt á umliðnum
árum.
Forráðamenn Akureyrarbæjar mega ávallt vera
þess minnugir, að iðnaðurinn þarfnast umhyggju
þeirra og skilnings á þeim verkefnum, sem hann
tekur sér fyrir hendur, en þann veg getur iðnaður-
inn í nútíð og framtíð bezt gegnt því hlutverki sínu
að vera styrkasta stoðin undir atvinnulífi bæjarins.
Arnþór Þorsteinsson.
DAGUR 29